Anleitung WW 1200 - WW 2000 SPK7:Anl WH 2000 PTC SPK1
IS
1. Öryggisleiðbeiningar
Lesið notandaleiðbeiningarnar áður en að tækið er
tekið til notkunar og farið eftir þeim! Einungis má
nota þetta tæki eins og lýst er í
notandaleiðbeiningunum. Öll önnur notkun á
tækinu er óleyfileg.
Geymið leiðbeiningarnar vel og látið þær fylgja með
tækinu.
Athugið hvort að tækið sé í fullkomnu ástandi eftir
að það hefur verið keypt. Takið tækið ekki til
notkunar ef að skemmdir á því eru að finna.
Tækið er ætlað til herbergishitunar í lokuðum
rýmum.
Tækið er ekki ætlað til notkunar í atvinnuskyni.
Leiðið ekki rafmagnsleiðslu tækisins yfir eða við
heita hluta tækis.
Opnið ekki tækið og komið alls ekki við leiðandi
hluta þess – Lífshætta!
Setjið tækið ekki upp í rökum rýmum eða í nágrenni
þeirra (bað, sturta, sundlaug eða þessháttar).
Tækið má ekki vera það nálægt að persóna í sturtu,
í baði eða í öðru vökvafylltu íláti geti komið við það.
Komið ekki við tækið með blautar hendur.
Setjið tækið þannig upp að innstunga þess sé ávallt
aðgengileg.
Takið tækið úr sambandi við straum ef það er ekki
notað lengi!
Aðeins til notkunar undir eftirliti.
Tækið má ekki nota í rýmum þar sem að eldfima
vökva (til dæmis leysi efni og svo framvegis) eða
gas er að finna eða þar sem að slík efni eru notuð.
Haldið eldfimum efnum og gasi fjarri tækinu.
Notið ekki tækið þar sem að umhverfi er eldfimt
(eins og til dæmis viðarskúr).
Notið ofninn einungis með fullútrúllaða
rafmagnsleiðslu.
Ekki ætlað til tengingar við fastra rafmagnsleiðslu.
Setjið ekki utanaðkomandi hluti inn í op tækisins –
hætta á raflosti og skemmdum á tæki.
Haldið börnum og fólki undir áhrifa lyfja eða áfengis
fjarri tækisins.
Viðhald og viðgerðir á tækinu mega einungis vera
framkvæmdar af viðurkenndum fagaðila.
Athugið fyrir hverja notkun hvort að rafmagnsleiðsla
tækisins sé í fullkomnu ásigkomulagi.
Vatn eða aðrir vökvar mega alls ekki komast á eða í
tækið – Lífshætta!
Ef að tækið er sett upp inni á baðherbergi, verður
að taka tillit til öryggisfjarlægðar sem settar eru af
yfirvöldum í því landi sem að tækið er notað í.
Notkunarhluti tækisins má ekki vera það nálægt
46
25.06.2007
15:43 Uhr
persónu sem að er í sturtu, í baði eða í hverskonar
íláti sem fyllt er með vökva að hún geti komið við
hann. Í Þýskalandi má ekki setja upp tækið á svæði
0, 1 eða 2 samkvæmt öryggisstaðlinum VDE 0100
hluti 701. Vinsamlegast athugið lög og reglugerðir
um þau efni í þínu landi.
Tengi tækið einungis við jarðtengda
rafmagnsleiðslu á þeim stað sem að setja má upp
tækið.
Setjið tækið ekki upp beint yfir eða undir
rafmagnsinnstungu.
Hyljið ekki ofninn þar sem það lokar hitann af og
getur orsakað skemmdir á tækinu og valdið bruna
(mynd 8).
Tækið er ekki ætlað til notkunar við dýrahald eða
dýraeldi.
Hús tækisins hitnar mikið ef að það er notað í lengri
tíma. Stillið tækinu þannig upp að ekki sé komið við
það.
Látið tækið ekki standa á loðnu teppi.
Tækið má ekki vera notað af börnum eða minni
máttar nema undir eftirliti fullorðins aðila. Börn
mega ekki nota tækið sem leikfang.
Halda verður öryggisfjarlægð frá húsi tækis sem eru
100mm til hliðar, 300mm upp, 150mm niður (ef að
tæki er fest á vegg) og 500mm fyrir framan tækið.
2. Lýsing tækis
2.1 WW 1200 (mynd 1)
1 Standfótur
2 Hitastilling
3 Hitastigsstilling
4 LED hitaljós
5 LED hitastilling 500 W
6 LED hitastilling 700 W
2.2 WW 2000 (mynd 2)
1 Standfótur
2 Hitastilling
3 Hitastigsstilling
4 LED hitaljós
5 LED hitastilling á 1000 W
6 LED hitastilling á 2000 W
Seite 46