Descargar Imprimir esta página

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 44
Íslenska
Öryggisviðvörun
LESTU ALLAR ÖRYGGISUPPLÝSINGAR OG LEIÐBEININGAR ÁÐUR EN VARAN ER
TEKIN Í NOTKUN. Ef þeim er ekki fylgt getur það valdið RAFLOSTI, SPRENGINGU,
ELDHÆTTU, MEIÐSLUM, DAUÐA eða EIGNASKAÐA.
Hannað til að hlaða 12V hefðbundnar rafhlöður (WET, MF, SMF, CaCa, EFB, AGM
og GEL) og samhæfðar litíum (litíum og LiFePO4) rafhlöður eingöngu.
Fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðandans áður en hlaðið er. (Sumar litíum og LiFePO4
rafhlöður henta ekki til hleðslu).
Fyrir þær litíumgerðir sem henta skaltu ganga úr skugga um að rafhlaðan sé samhæf
við 14,5V hleðsluspennu.
Ekki hlaða litíum rafhlöðu með blýsýrustillingum eða blýsýru rafhlöðu á litíumstillingu.
Ekki hlaða þurrafhlöður eða rafhlöður sem ekki er hægt að endurhlaða.
Það er hættulegt að starfa nálægt blýsýrurafhlöðu.
Tryggðu fullnægjandi loftræstingu því að gas sem myndast við hleðslu er hugsanlega
sprengifimt ef það er látið safnast fyrir á lokuðu svæði.
Aldrei skal reykja eða hafa opinn eld eða neistaflug í grennd við hleðslutækið eða
rafhlöðuna.
Ekki loka fyrir rafhlöðuloka eða loftop.
Aldrei skal hlaða frosna rafhlöðu.
Ekki nota utandyra eða útsetja fyrir vökva.
Notaðu aðeins aukabúnað sem fylgir með eða framleiddur er fyrir þetta hleðslutæki
af Yuasa.
Fyrir hreinsun skal taka tækið úr sambandi.
Slökktu á tækinu áður en tengt er við það eða það tekið úr sambandi við rafhlöðuna.
Forðast skal notkun framlengingarsnúru.
Ekki nota ef tækið hefur fallið eða er skemmt.
Ekki nota ef snúrur eru skemmdar.
Ekki taka hleðslutækið í sundur.
Börn eiga ekki að nota tækið.
Fjarlægðu skartgripi eða aðra málmhluti áður en þú meðhöndlar hleðslutækið eða
rafhlöðuna.
Aflgjafastilling hleðslutækisins er eingöngu hönnuð fyrir rafhlöður. Ekki fyrir önnur tæki.
Þegar þú notar aflgjafastillingu skaltu forðast tengingu með öfugri pólun við rafhlöðuna.
Notkunarleiðbeiningar
Þetta hleðslutæki er með skiptanlegum rafmagnsklóm til notkunar í Bretlandi og ESB.
Að tengja hleðslutækið við rafhlöðuna þína
Tengdu alltaf hleðslutækið við rafhlöðuna áður en það er tengt við rafmagn.
Ef rafhlaðan er ekki staðsett í ökutækinu:
Tengdu rauðu leiðslu hleðslutækisins við jákvæða (+) pól rafhlöðunnar.
Tengdu svörtu leiðslu hleðslutækisins við neikvæða(-) pól rafhlöðunnar.
144

Publicidad

loading

Productos relacionados para gs yuasa YCX6

Este manual también es adecuado para:

Ycx12