Descargar Imprimir esta página

WOOD'S AC Milan Silent 7K WIFI Smart Home Manual De Instrucciones página 144

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 63
Návod k obsluze
IS
WOOD'S FYRIR HREINT OG
HEILSUSAMLEGT INNANHÚSLOFT
Vörumerkið Wood's fæddist með Wood's-
fjölskyldunni fyrir rúmum 70 árum í
kanadísku borginni Guelph, Ontario. Þar
hóf Wood's að þróa og framleiða rakaeyða
árið 1950. Síðan þá hefur Wood aðstoðað
nokkur hundruð þúsund heimila við að
koma í veg fyrir skemmdir vegna myglu
og anda að sér hreinu lofti. Færanlegi
loftkælirinn okkar er hentugur til notkunar
í flestum tegundum loftslags, þar sem
afkastageta hans er mikil, einnig við
mismunandi hita- og rakastig. Þau eru
notuð með góðum árangri á stöðum þar
sem raki er, s.s. í dagstofum, skrifstofum
og svefnherbergjum. Það magn heits lofts
sem loftkælirinn fjarlægir fer eftir hitastigi,
rakastigi og staðsetningu tækisins. Ytri
veðurskilyrði geta einnig haft áhrif á afköst
loftkælisins.
Loftkælarnir frá Wood's eru öruggir í
notkun og endast árum saman við stöðuga
notkun.
HVERNIG VINNUR
LOFTKÆLINGARBÚNAÐURINN?
Lágur þrýstingur framleiðir kalt loft
Aðal búnaður loftkælisins er kælivökvi sem
undir lágum þrýstingi er breytt í gas. Ferlið
„býr til kulda", sem er sendur inn samtímis
sem að heitu lofti er haldið úti.
Fljótandi kælivökvi fer í gegnum
þenslulventil og í rör þar sem þrýstingur er
lágur.
Kælivökvinn gufar upp og verður að gasi.
Ferlið sogar að sér hita frá umhverfinu og
rörið kælist. Viftur blása köldu loftinu inn í
herbergið. Gasið fer í gegnum pressu sem
eykur þrýstinginn og breytir gasinu í vökva.
Í þessu ferli, er hita sleppt út, hann leiddur
í rör yfir í gagnstæða hlið og síða er hann
blásinn út með viftu.
Hitastillir slekkur á tækinu þegar
innanhússhitinn hefur kólnað nægilega.
144
1. ÖRYGGISVIÐVARANIR
Eldfim efni. Þetta tæki
inniheldur R290/ própan sem
er eldfimt kæliefni.
Notið þessa handbók til að
sjá öryggisupplýsingar
Lesa tæknihandbók
Lesa notkunarhandbók.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Áður en þú setur upp tækið og
byrjar að nota það skaltu lesa
meðfylgjandi leiðbeiningar
vandlega. Framleiðandi er ekki
ábyrgur ef röng uppsetning og
notkun valda meiðslum og tjóni.
Geymdu leiðbeiningarnar með
tækinu til að geta skoðað þær síðar.
Öryggi barna og viðkvæmra
VIÐVÖRUN
Hætta á meiðslum eða varanlegri
fötlun.
Börn 8 ára og eldri og einstaklingar
með skerta líkamlega getu, skynjun
eða andlega getu, eða skort á
reynslu og þekkingu geta notað
þetta tæki undir eftirliti eða eftir að
hafa fengið leiðbeiningar varðandi
notkun tækisins á öruggan hátt
og ef þau gera sér grein fyrir þeirri
áhættu sem því fylgir.
Leyfið ekki börnum að leika sér
með tækið.
Börnum yngri en 3 ára skal haldið
frá tækinu nema undir stöðugu
eftirlit.
Geymið allar umbúðir fjarri
börnum.
Börn skulu ekki annast hreinsun og
viðhald án umsjónar.
Almennt öryggi
Þetta tæki er ætlað til nota á
heimilum og svipuðum rýmum
svo sem: Dagstofum, alrýmum,
starfsmannaeldhúsum í verslunum,
skrifstofum og öðru vinnuumhverfi.
Flokkunarplatan er staðsett aftan á
eða á hlið loftkælisins.
Haldið aðskotahlutum fjarri
loftopum.
Notið ekki vélbúnað eða aðrar
aðferðir til að hraða afísingu en
þær sem framleiðandi mælir með.
Ekki skal geyma tækið í herbergi
þar sem neistagjafar eru í
gangi (opnir logar, gastæki eða
rafmagnshitarar). Gatið ekki eða
brennið.
Hafið í huga að kæliefni geta verið
lyktarlaus. Notið ekki vatnsúða
eða gufu til að hreinsa tækið.
Hreinsið tækið með rökum
mjúkum klút. Notið aðeins hlutlaus
hreinsiefni. Notið ekki slípivörur,
slípiefnasvampa, leysiefni eða
málmhluti.
Ef rafmagnssnúran er skemmd
þarf að skipta um hana hjá
framleiðanda, viðurkenndum
viðgerðaraðila eða sambærilegum
aðila til að forðast hættur.

Publicidad

loading