Návod k obsluze
IS
FYRSTA UPPSETNING LOFTKÆLIS
2. Uppsetning
FYRIR FYRSTU NOTKUN
Látið tækið standa í 2 klst fyrir notkun. Val á
staðsetningu
Mikilvægt
1. Loftkælinn má auðveldlega færa til innandyra. Halda
skal tækinu í uppréttri stöðu þegar það er fært. Staðsetja
skal loftkælinn á sléttu yfirborði.
Ekki skal setja tækið upp eða nota það í baðherbergi eða
öðru blautu umhverfi.
Þar sem að færanlegi loftkælirinn er á hjólum er
auðvelt að færa hann. Þegar hitinn hækkar er færanlegi
loftkælirinn einfaldlega færður inn í herbergið og getur
um leið farið að kæla niður rýmið.
Loftkælinn skal nota í lokuðu rými til þess að afköstin
verði sem best. Lokið öllum hurðum, gluggum og
öðrum utanaðkomandi loftopum herbergisins. Afköst
loftkælisins fara eftir hita- og rakastigi.
2. Staðsetjið loftkælinn þannig að loftflæði sé óhindrað
inn um framhlið tækisins.
3. Loftkæling sem starfar í herbergi mun hafa lítil eða
engin áhrif á þurrkun í aðliggjandi lokuðu geymslusvæði,
svo sem skáp, nema fullnægjandi dreifing lofts sé til
staðar í og út af svæðinu. Færanlegur loftkælir flytur
hitann frá tækinu með loftbarka út um glugga eða
loftræstiop.
4. Halda skal a.m.k. 30 cm fjarlægð milli loftkælisins og
nærliggjandi hluta. Sjá mynd til viðmiðunar.
146