IS – Notkunarleiðbeiningar fyrir grímur í seríu 8000
Mikilvægar ábendingar til notandans
gilda einungis í tengslum við notkunarleiðbeiningar fyrir gas-
og agnasíur. Sé ekki farið eftir þessum ábendingum varðandi
notkun vörunnar og ef öndunarhlífar eru ekki notaðar í mengaða
umhverfinu getur það spillt heilsunni og valdið varanlegum
skaða. • Þessi öndunarhlíf er ekki súrefnisgjafi (02) • Notið
tækið aðeins í nægilega vel loftræstu rými, (19,5 rúmmáls-%
súrefnis). • Grímu og síur verður að velja í samræmi við
eðli mengunarefnanna. (Sjá töflu 1). • Í lofttegundum með
ófullnægjandi viðvörunareinkenni má aðeins nota síur, ef gefnar
eru sérstakar notkunarreglur þar að lútandi. • Þar sem skilyrðin
eru óþekkt eða breytileg verður að klæðast einangrunarbúnaði.
• Yfirgefið vinnurýmið samstundis og skiptið um öndunargrímu,
ef: o gríman er sködduð, o öndunarerfiðleika verður vart, o
svimi eða þreyta koma fram. • Fylgið notkunarleiðbeiningunum
þegar gríman er notuð. • Varan hefur ekki að geyma neina
málmhluti sem leitt geta til íkveikju í sprengifimu andrúmslofti.
• Vakni spurningar varðandi notkun vörunnar, snúið ykkur þá
til MOLDEXMETRIC. • Auk þess skal við notkun öndunarhlífa
fylgt fyrirmælum og ákvæðum sem um þær gilda. • Skegg,
langir bartar eða önnur frávik á þéttisvæðum geta leitt til þess
að búnaðurinn falli ekki fyllilega þétt að andlitinu. • Grímunum
má ekki breyta á nokkurn hátt. • Notendur grímanna og síanna
skulu kunna skil á réttri meðferð þeirra. • Grímu og síu skal
geyma í mengunarlausu umhverfi þegar þær eru ekki í notkun.
Athugið: Ekki má vinna með síubúnað í óloftræstum geymum og
þröngu rými.
Undirbúningur undir notkun hálfgrímunnar
yfirfara fyrir hverja notkun. Komi skemmdir eða gallar í ljós
verður að skipta um grímu eða gera við hana. Aðgætið •
brot, sprungur og óhreinindi á grímunni. • virkni, afmyndanir,
Þessar leiðbeiningar
sprungur og hreinleika innöndunar- og útöndunarventils. • hvort
höfuðböndin séu óskemmd og nægileg teygjanleg. Hálfgríman
sett á (Myndir 1, 2 og 3) Setjið hálfgrímuna yfir munn og nef og
komið höfuðböndunum fyrir eins og myndin sýnir. Krækið neðri
böndunum saman á hnakkanum. Sjáið til þess að gríman falli þétt
að andlitinu með því að toga í enda höfuð- og hnakkabands.
Gangið úr skugga um að gríman falli þétt að andlitinu, áður en
farið er inn á vinnusvæðið. Þéttleiki kannaður með undirþrýstingi
(Mynd 4) Haldið fyrir opið á loki síuhússins með lófanum, andið
rólega að ykkur. Ef gríman dregst lítillega saman er hún nógu
þétt. Ef vart verður innstreymis lofts, skal breyta staðsetningu
grímunnar eða spennunni á böndunum. Endurtakið þessa
prófun þar til gríman fellur þétt að andlitinu. Þéttleiki prófaður
með yfirþrýstingi (Mynd 5) Haldið fyrir útöndunarventilinn með
lófanum, andið rólega frá ykkur. Ef ekkert loft streymir út milli
grímu og andlits er hún nógu þétt. Ef vart verður útstreymis lofts,
skal breyta staðsetningu grímunnar eða spennunni á böndunum.
Endurtakið þessa prófun þar til gríman fellur þétt að andlitinu.
Ef ekki tekst að láta grímuna falla nægilega þétt að andlitinu,
farið þá alls ekki inn á hættusvæðið. Hafið samband við
öryggisfulltrúa.
Viðhald hálfgrímunnar
og eftirlit sem í landinu gilda. Framleiðsludagsetningin er grafin
innan á grímuna (hægra og vinstra megin að innanverðu)
Dagatalsklukkur, sjá bls. 26. Hreinsun / Sótthreinsun Mælt er
með því að gríman sé hreinsuð eftir hverja notkun. Fjarlægið
síurnar, hreinsið grímuna sjálfa með heitu vatni (hámark 50°C).
Hálfgrímuna skal
Notið hlutlaust hreinsiefni sem og alkóhólsótthreinsiefni ef þarf.
Hægt er að taka ventilhimnuna úr festingunni til þess að þrífa
14
Fylgja skal þeim ákvæðum um viðhald