Peltor Tactical XP Manual De Instrucciones página 49

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 26
IS
Stilling á hnakkaspöng
(C:5) Leggðu skálarnar yfir eyrun þannig að þéttihringirnir umlyki þau alveg.
(C:6) Stilltu af hæð skálanna með hvirfilólinni þannig að þær sitji þétt og þægilega.
(C:7) Spöngin á að liggja beint yfir höfuðið. Spöngin á að liggja beint yfir höfuðið.
MIKILVÆGT! Til að fá fulla vörn þarf að ýta frá hárinu kringum eyrun svo að þét-
tihringirnir falli þétt að höfðinu. Gleraugnaspangir eiga að vera eins mjóar og hægt
er og falla þétt að höfðinu.
Stilling á höfuðspöng sem fella má saman
(C:8) Taktu spöngina í sundur.
(C:9) Brettu út skálarnar þannig að leiðslunni verði komið fyrir utan á spönginni.
Sveigðu út eyrnaskálarnar og settu þær yfir eyrun þannig að þéttihringirnir umlyki
eyrun og falli þétt að höfðinu.
(C:10) Haltu spönginni að höfðinu og stilltu hæðina á báðum eyrnaskálunum þangað
til þær sitja þétt og þægilega.
(C:11) Spöngin á að liggja beint yfir höfuðið.
MIKILVÆGT! Til að fá fulla vörn þarf að ýta frá hárinu kringum eyrun svo að þét-
tihringirnir falli þétt að höfðinu. Gleraugnaspangir eiga að vera eins mjóar og hægt
er og falla þétt að höfðinu.
Að fella saman höfuðspöng
(C:12) Þrýstu hlífunum alveg saman.
(C:13) Felldu spöngina saman. Gættu þess að engin felling sé á þéttihringjunum og
að þeir liggi sléttir saman.
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN (D)
Að kveikja og slökkva
Þrýstu á mið / stillihnappinn og haltu honum niðri í a.m.k. 2 sekúndur.
Velja aðgerð
Þrýstu einu sinni á mið / stillihnappinn til þess að fara áfram í valmynd. Þrýstu tvisvar
á mið / stillihnappinn til þess að fara aftur á bak í valmynd.
Að hækka / lækka hljóðstyrk styrkstillingar
Þrýstu á efri (+) hnappinn til að hækka. Þrýstu á neðri (–) hnappinn til að lækka.
Að stilla jafnvægið
Þrýstu á mið / stillihnappinn uns talgervill segir balance. Stilltu jafnvægið til vinstri
eða hægri með (+) eða (–) hnappinum. Þrýstu á (+) og (–) hnappinn samtímis til
þess að miðja jafnvægið.
Tónjafnari
Þrýstu á mið / stillihnappinn uns talgervill segir equalizer. Stilltu tónjafnarann með (+)
eða (–) hnappinum. Mögulegar stillingar eru: Lágt, Hlutlaust, Eðlilegt og Mjög hátt.
Tímastilling raddstýringar
Þrýstu á mið / stillihnappinn uns talgervill segir release time. Stilltu tímastillinguna með
(+) eða (–) hnappinum. Mögulegar stillingar eru: Eðlilegt, Hægt og Mjög hægt.
Að stilla tónstyrk fyrir ytra tengi
Þrýstu á mið / stillihnappinn uns talgervill segir external input. Stilltu tónstyrkinn með
(+) eða (–) hnappinum. Mögulegar stillingar eru: Eðlilegt og Hátt.
VIÐVÖRUN – Sé stillt á Hátt getur tónstyrkurinn farið yfir 82 dB.
ATHUGIÐ – Sé tónstyrkur ytra tengis stilltur á Hátt vistast sú stilling ekki þegar slökkt
er á heyrnartólunum.
Að stilla tónstyrk fyrir ytra tengi -07, -77 (bara heyrnartól)
Þrýstu á mið/stillihnappinn uns talgervill segir external input mode. Stilltu tónstyrkinn
með (+) eða (-) hnappinum. Mögulegar stillingar eru: 1, 2 og 3. Stilling 1 er besti
fáanlegi kosturinn fyrir atvinnutalstöðvar. Stilling 3 er besti fáanlegi kosturinn fyrir
búnað á borð við DECT- og farsíma. Prófaðu mismunandi stillingar þar til þú finnur
þá sem best hentar þínum fjarskiptabúnaði.
46

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Mt1h7 2 serieMt1h7p3 2 serieMt1h7a2Mt1h7b2Mt1h7f2

Tabla de contenido