Descargar Imprimir esta página

Healthcraft Tub-Rail TBR-S Guia De Inicio Rapido página 12

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 8
YFIRLIT
Þakka þér fyrir að hafa valið Tub-Rail baðhandriðið frá HealthCraft.
Vinsamlegast lestu og tileinkaðu þér leiðbeiningarnar í þessum bæklingi og
geymdu hann. Rétt samsetning, uppsetning og viðhald á Tub-Rail
handriðinu þínu er á þína ábyrgð. Ef ekki er farið eftir leiðbeiningunum í
þessum bæklingi getur það valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða. Ef þú
getur ekki framkvæmt þá vinnu sem hér er lýst mælum við með því að þú
látir viðurkenndan verktaka setja upp Tub-Rail handriðið þitt.
Tub-Rail handriðið er hágæða baðhandrið sem er klemmt á hlið
baðkarsins. Tub-Rail handriðið er ætlað til að bera miðlungsmikinn
lóðréttan þunga til að veita stuðning fyrir fólk með skerta hreyfigetu þegar
það sest niður eða stendur upp. Klemman samanstendur af þræddri stöng
úr ryðfríu stáli sem togar til sín plötu þegar hún er hert upp að hlið
baðkarsins, til að mynda nægilega sterkt viðnám til að halda notandanum
uppi. Hámarksþyngd fyrir notanda þessarar vöru er 136 kg. Má ekki nota á
baðkar úr trefjagleri. Ath. Þessi vara er ekki ætluð til að halda uppi fullri
líkamsþyngd. Ekki má nota Tub-Rail handriðið fyrir neitt annað en það sem
hér er lýst.
EINS ÁRS ÁBYRGÐ
Vörur eru með eins árs ábyrgð gegn efnislegum göllum og vinnugöllum fyrir
upphaflegan kaupanda. Ábyrgðin nær ekki yfir vörur sem hafa skemmst
vegna rangrar notkunar, af slysni, vegna breytinga, vegna eðlilegs slits,
vegna viðarefnis og bletta eða vegna notkunar á ætandi eða rispandi
hreinsiefnum.
Kaupandi afléttir hér með skaðabótaskyldu af HealthCraft Products og
samþykkir að vernda það frá og gegn öllum skaðabótakröfum, kröfum (með
ástæðu eða án), tapi, tjóni, kostnaði og útgjöldum (þar á meðal, en
takmarkast ekki við afleitt tjón og eðlileg fagleg gjöld) sem verða til vegna
forskriftar kaupanda, notkunar eða rangrar notkunar á vörunni sem hér er
lýst, eða vegna aðgerðaleysis eða vanrækslu. HealthCraft Products Inc.
afsalar sér allri ábyrgð á tjóni vegna þjónustu sem var framkvæmd af
öðrum eða vegna rangrar uppsetningar, notkunar eða misbeitingu á vörum
sem HealthCraft Products Inc. selur. HealthCraft Products Inc. skal ekki
bera neina ábyrgð á mögulegum ávinningi eða sérstöku, óbeinu eða
afleiddu tjóni, eða á kostnaði vegna viðgerða sem voru framkvæmdar án
samþykkis HealthCraft Products Inc. Heildarskaðabótaábyrgð HealthCraft
Products Inc. skal aldrei verða hærri en kaupverð vörunnar sem lýst er.
Lýsing er háð breytingum án fyrirvara.
HealthCraft Products Inc.
2790 Fenton Road
Ottawa, Canada
K1T 3T7
12
Íslenska
Gate 88
Kanalgatan 45B
Skellefteå, Sweden
EC
REP
93123
AFHENT VARA / HLUTIR
1. Handfang
2. Klemmurarmur og plata
3. Hnúður
4. Plastskinna
ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR
1. Tub-Rail handriðið er EINGÖNGU ætlað til að bera miðlungsmikinn
lóðréttan þunga.
2. Tub-Rail handriðið er ekki ætlað til að bera hliðarþunga.
3. Tub-Rail handriðið er ekki ætlað til að bera fulla líkamsþyngd
fullorðinnar manneskju.
4. Tub-Rail er ekki ætlað sem leikfang fyrir börn eða til að hanga í.
5. VARÚÐ – klemman getur valdið skemmdum og mögulega klemmt
líkamshluta.
6. VARÚÐ – Tub-Rail handriðið og baðkarið eru sleip í bleytu.
SAMSETNING
1. Til að tryggja örugga uppsetningu skal þrífa snertifleti á baðkarinu
vandlega og þurrka þá.
2. Settu Tub-Rail handriðið á hlið baðkarsins (láttu hnúðinn vísa út) og
gættu þess að handfangið snerti efsta hluta og ytri hlið baðkarsins.
3. Snúðu hnúðnum þar til að klemmuplatan liggur þétt upp við innri hlið
baðkarsins.
4. Prófaðu og skoðaðu vöruna reglulega og hertu hana ef þess er þörf.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Sjá mynd D.
VÖRUNOTKUN
Sjá mynd E.
MYND A.
MYND B.
MYND C.

Publicidad

loading