Búnaðurinn sem þú keyptir er hannaður, framleiddur og prófaður í samræmi
við öryggiskröfur í Evróputilskipunum ATEX 2014/34/EB.
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega FYRIR uppsetningu, notkun eða viðhald
á þessum búnaði.
Kröfur fyrir vörur sem setja á upp á stöðum sem kunna að innihalda
sprengifimar lofttegundir eða eldfimt ryk:
Uppsetning, notkun og viðhald skal vera í samræmi við landslög og
gildandi reglur á hverjum stað og í samræmi við ráðleggingar í viðeigandi
stöðlum fyrir sprengihættustaði.
Uppsetning, gangsetning og viðhald skal vera í höndum vottaðra
fagaðila sem hlotið hafa viðeigandi þjálfun á tækjabúnað sem notaður
er á sprengihættustöðum.
Við viss vinnsluskilyrði kann notkun á skemmdum tækjabúnaði að valda
skertum afköstum í kerfinu sem getur leitt til slysa eða dauða.
Aðeins skal nota upprunalega varahluti frá framleiðanda til að tryggja að
vörurnar uppfylli viðeigandi öryggiskröfur þeirra Evróputilskipana sem
tilgreindar voru hér að ofan.
MERKINGAR
Dresser Produits Industriels S.A.S. eða Dresser de Mexico S.A de C.V. eða GE
Oil & Gas India Pvt. Ltd. eða Dresser LLC. eða Dresser Italia S.r.l. eða Dresser
Japan Ltd., allt eftir framleiðslustað.
II 2 G/D, II 2 G, II 3 G/D eða II 3 G, allt eftir umbúðum (*)
Ex h IIA eða IIB eða IIC eða IIB + H2 X Gb, allt eftir umbúðum (*)
Ex h IIIA eða IIIB eða IIIC eða IIIB + H2 X Db, allt eftir umbúðum (*)
Hámarkslofthiti, X: sjá leiðbeiningar
Hitastig vökva: sjá leiðbeiningar
Framleiðsluár
Raðnúmer
Tækniskjalsnúmer
Varúð: hætta á stöðurafmagni. Nuddið ekki plastfleti.
(*) Ræðst af þeim tækjabúnaði sem er í samstæðunni.
X: kannið vinnsluskilyrði loka – sjá leiðbeiningar í
„UPPSETNING".
UPPSETNING
Áður en uppsetning fer fram:
Takið búnaðinn varlega úr umbúðunum og gangið úr skugga um að hann
sé óskemmdur. Gerið framleiðanda viðvart ef skemmdir eru til staðar.
Gangið úr skugga um að búnaðurinn henti uppsetningarsvæðinu
(tilskipun 99/92/EB).
Hámarkslofthiti fyrir stimpilloka skal ekki fara yfir 60 °C.
Ef vottaður hámarkshiti tækjabúnaðarins er lægri en 60 °C skal gæta
þess að lofthitinn sé 10°C lægri en vottaður hámarkshiti segir til um. Sjá
vörulista á vefsvæði okkar https://valves.bhge.com/resource-center.
Farið eftir leiðbeiningum um hitaeinangrun frá framleiðanda. Einkum
skal ekki hitaeinangra vélarhlífina.
Leiðbeiningar fyrir uppsetningu, gangsetningu, notkun
og viðhald á Masoneilan™-lokum sem eru settir upp
á sprengihættustöðum.
Ekki skal tengja tækjabúnaðinn við loft eða rafmagn fyrr en búið er að ganga
úr skugga um að það sé leyfilegt samkvæmt lögum. Allar leiðbeiningar fyrir
rétta og örugga uppsetningu búnaðarins er að finna í ATEX-leiðbeiningunum
sem fylgja tækjabúnaðinum. Þessar leiðbeiningar er einnig að finna á
vefsvæði okkar https://valves.bhge.com/resource-center.
Einkum skal taka tillit til eftirfarandi atriða:
Tryggið að uppsetning sé í samræmi við viðeigandi reglugerðir og staðla
og fylgið öryggisþáttum tækjabúnaðarins.
Jarðtengið lokann og rafknúinn tækjabúnað.
Farið eftir rafskautum raftengingarinnar.
Notið snúruinntök sem eru í samræmi við ATEX-reglugerðir og henta
svæðinu og öryggisstillingu tækjabúnaðarins.
Athugasemd fyrir loka með valkvæmu títanboddí:
Þetta efni getur myndað neista við högg frá nægilega hörðu efni, jafnvel
þegar ekkert ryð er til staðar. Vinsamlegast hafið áhættuna frá slíkum
höggum í huga og gerið ráðstafanir til að draga úr henni ef þess er talin þörf.
GANGSETNING
Áður en lokinn er tekinn í notkun þarf að ganga úr skugga um að allur
búnaður sé rétt tengdur, jarðtengdur og að öryggishlífar og skrúfur séu
á sínum stað.
Notið lokann innan þeirra hitamarka sem framleiðandi mælir með
(sjá málsgrein um uppsetningu).
Ekki nota lokann fyrir annað en hann er ætlaður.
Gætið þess að enginn núningur sé á milli gufuskaftsins og pakkningar
ásþéttisins.
Athugið reglulega hvort einhver vökvi leki, einkum við pakkningar og
ásþéttinn.
Fylgið notkunarleiðbeiningunum fyrir tengdan rafbúnað.
Forðist að högg komi á álmálmblendiskelina.
Nuddið ekki plasthlífarnar á lokunum því það eykur hættu
á stöðurafmagni sem gæti valdið sprengingu.
Ekki nudda málningarhúð lokans þegar hann er notaður í andrúmslofti
með gashópi IIC, því það eykur hættu á stöðurafmagni sem gæti valdið
sprengingu.
Tryggið að vökvinn beri ekki með sér agnir sem geta valdið neista ef
innra byrði lokans er flokkað sem ATEX-svæði.
Áður en viðhaldi er sinnt skal tryggja að skilyrði á staðnum henti fyrir
viðkomandi aðgerðir: Gangið úr skugga um að viðeigandi öryggisbúnaður og
hlífðartæki séu til staðar með tilliti til þeirra verka sem vinna skal og
vinnusvæðisins.
Sinnið viðhaldi í samræmi við þær leiðbeiningar sem fylgdu vörunni.
Aðeins skal nota upprunalega varahluti frá framleiðanda.
Fjarlægið eldfimt ryk sem getur safnast upp á óvörðum flötum.
Ef gangsetningarbúnaði er skipt út er mikilvægt að geyma upprunalegar
merkingar framleiðanda og setja þær á nýja gangsetningarbúnaðinn.
Til að koma í veg fyrir neistamyndun vegna stöðurafmagns er ráðlegt að
fylgja leiðbeiningum í reglum um starfsvenjur í EN TR50404. Sem dæmi
skal notandinn hreinsa búnaðinn, sérstaklega
blautri tusku. Af öryggisástæðum er þetta eingöngu leyfilegt þegar
sprengihætta er ekki til staðar.
Eftirlit með búnaði á sprengihættustöðum: Farið eftir viðeigandi
reglugerðum (tilskipun 99/92/EB).
GEA32102D
(áður 186015)
11/2019 – Icelandic
NOTKUN
VIÐHALD
plasti hluti og
húðun, með