IKEA FULLGÖRA Manual Del Usuario página 70

Ocultar thumbs Ver también para FULLGÖRA:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 34
ÍSLENSKA
Notið frystinn eingöngu til að geyma
frosinn mat, frysta fersk matvæli og búa til
klaka.
Forðist að láta óinnpakkaðan mat
komast í snertingu við innri fleti frystisins.
C-Pentane er notað sem þensluefni í
einangrunarfreyði og er eldfim
gastegund.
Hólfin sem henta best fyrir geymslu á
ákveðnum fæðutegundum, með tilliti
til mismunandi hitastigs í mismunandi
hólfum, eru eftirfarandi:
- Frystihólf:
Fjögurra stjörnu (****) hólf hentar til að
frysta matvæli frá umhverfishitastigi og til
að geyma frystan mat þar sem hitastigið
er jafnt yfir allt hólfið.
Frosin matvæli sem keypt eru í verslunum
hafa síðasta söludag prentaðan á
umbúðirnar. Þessi dagsetning miðast við
tegund geymdra matvæla og því verður að
fara eftir henni. Geymslutími ferskfrystra
matvæla skal vera eftirfarandi: 1-3 mánuðir
fyrir ost, skelfisk, rjómaís, skinku/pylsu,
mjólk og ferska vökva; 4 mánuðir fyrir
steikur eða kjötstykki (naut, lamb, svín); 6
mánuðir fyrir smjör, smjörlíki og fuglakjöt
(kjúkling, kalkún);
8-12 mánuðir fyrir ávexti (utan súraldina),
steikt kjöt (naut, svín, lamb) og grænmeti.
Fara verður eftir síðasta söludag á
umbúðum matvæla sem geymd eru í
tveggja stjörnu hólfinu.
Til að koma í veg fyrir að matvæli mengist
skal athuga eftirfarandi:
– Að hafa hurðina opna í langan tíma getur
valdið verulegri hækkun hitastigs í hólfum
tækisins.
– Hreinsið reglulega yfirborð sem
gætu komist í snertingu við matvæli og
aðgengilegan frárennslisbúnað.
– Hreinsið vatnsgeyma ef þeir hafa
ekki verið notaðir í 48 klst.; skolið
vatnsbúnaðinn sem tengdur er við
vatnsveitu ef vatn hefur ekki verið tekið úr
í 5 daga.
– Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi
ílátum í tækinu þannig að komist ekki í
snertingu við annan mat né leki á hann.
– Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli
henta til að geyma fryst matvæli, geyma
eða búa til rjómaís og ísmola.
– Frystið ekki fersk matvæli í hólfum með
einni, tveimur eða þrem stjörnum.
– Ef ísskápurinn er hafður tómur í langan
tíma, slökkvið þá, afþíðið, hreinsið, þurrkið
og skiljið hurðina eftir opna til að koma í
veg fyrir að mygla myndist innan í tækinu.
UPPSETNING
A.m.k. tveir aðilar eiga að meðhöndla
tækið og setja það upp vegna hættu á
meiðslum. Notið hlífðarhanska við að taka
úr pakkningum og setja upp - hætta á því
að skerast.
Aðeins hæfur tæknimaður má sjá um
uppsetningu tækisins, þ.m.t. vatnsinntak
(ef til staðar), raftengingar og viðgerðir.
Gerið ekki við eða skiptið út neinum
hluta tækisins nema það sé sérstaklega
tekið fram í notendahandbókinni. Haldið
börnum frá uppsetningarstaðnum. Þegar
umbúðir hafa verið teknar utan af tækinu
skal ganga úr skugga um að það hafi ekki
skemmst við flutningana. Ef vandamál
koma upp skal hafa samband við næsta
þjónustuaðila. Eftir uppsetningu skal
geyma pökkunarúrgang (plast, frauðplast
o.s.frv.) fjarri börnum - hætta á köfnun.
Áður en uppsetning á sér stað verður að
tryggja að helluborðið sé ekki tengt við
rafveitu vegna hættu á raflosti.
Á meðan uppsetning á sér stað skal
tryggja að helluborðið skemmi ekki
rafsnúrur vegna eldhættu eða hættu
á raflosti. Ekki gangsetja tækið fyrr en
uppsetningu er lokið.
Gætið þess að skemma ekki gólf (t.d.
parketgólf) þegar tækið er fært til. Setjið
tækið á gólf sem er nógu sterkt til að þola
þyngd þess og á stað sem hentar notkun
og stærð tækisins. Tryggið að tækið sé ekki
nærri hitagjafa og að fæturnir fjórir séu
stöðugir og hvíli á gólfinu. Stillið þá eftir
þörfum og tryggið að tækið sé fullkomlega
afrétt með hallamæli. Bíðið í a.m.k. tvær
klukkustundir áður en kveikt er á tækinu til
að tryggja að kælirásin virki sem skyldi.
Til að tryggja nægilega loftræstingu
skal skilja eftir bil á báðum hliðum og fyrir
ofan tækið. Fjarlægðin á milli bakhliðar
tækisins og veggsins fyrir aftan tækið ætti
að vera 50 mm, til að forðast nálægð við
heit yfirborð. Sé bilið minnkað eykur það
orkunotkun tækisins.
VIÐVÖRUN: Gangið úr skugga um
að rafmagnssnúran klemmist ekki eða
skemmist þegar verið er að staðsetja
tækið.
70

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

004.948.03404.948.01

Tabla de contenido