Íslenska - IKEA BETTORP Serie Manual De Instrucciones

Ocultar thumbs Ver también para BETTORP Serie:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 24
Íslenska
Vöruupplýsingar
• Hleður þráðlaust 2 QI-vottuð tæki samtímis.
• Vottað samkvæmt skilgreiningu Qi 1.2.4BPP.
• Vaktar hitastig og orku í öryggisskyni.
• LED stöðuvísir.
Notkunarleiðbeiningar
• Tengdu hleðslusnúruna við straumbreytinn og
settu í samband í vegginnstungu.
• Fyrir þráðlausa hleðslu þarf að setja tækið ofan
á plúsmerkið (+). Tækið þarf að setja beint ofan á
plúsmerkið (+) til að hleðslan gangi sem best fyrir
sig. Athugaðu að á sumum tækjum þarf að virkja
þráðlausa hleðslu í stillingum.
• Ef engin hleðsla er á rafhlöðunni gæti tekið
nokkrar mínútur fyrir hleðslu að hefjast. Það
er eðlilegt. Þú sérð að hleðsla er hafin þegar
rafhlöðutáknið birtist á tækinu þínu.
LED stöðuvísir (sjá myndir):
1. Kveikt: LED ljósið lýsir í 3 sekúndur.
2. Hleður sig: Kveikt er á LED ljósi.
3 Hleðslu lokið: Slökkt á LED ljósi.
4. Villa: LED ljósið blikkar.
Gott að vita
• Búnaðurinn gæti hitnað þegar hann er í hleðslu.
Það er eðlilegt og hann kólnar aftur þegar hann
er fullhlaðinn.
• Hleðslutími er mismunandi, hann fer eftir
afkastagetu rafhlöðu, hleðslustigi, aldri
rafhlöðunnar og hitastigi umhverfisins sem
hleðslan fer fram í.
• Hitastig við geymslu: -20°C til 25°C.
• Hitastig við hleðslu : 0°C til 40°C.
• Taktu hleðslutækið úr sambandi fyrir þrif og
þegar það er ekki í notkun.
• Þurrkaðu af hleðslutækinu með rökum klút.
Hleðslutækið má aldrei liggja í vatni.
Varúðarráðstafanir og tæknilegar upplýsingar má
sjá á bakhlið hleðslutækisins.
Geymdu leiðbeiningarnar.
VIÐVÖRUN!
• Aðeins hlaða tæki sem eru Qi-vottuð.
• Innstungan þarf að vera nálægt búnaðinum og
aðgengileg.
• Notaðu aðeins í þurru umhverfi.
• Notaðu aðeins 24.0 V millistykkið sem fylgir með
þráðlausa hleðslutækinu. Önnur millistykki gætu
skemmt hleðslutækið
• Eftirlit ætti að vera með börnum, til að tryggja að
þau leiki sér ekki með vöruna.
• Ekki nota tækin í bleytu, raka eða miklu ryki þar
sem það gæti valdið skemmdum.
• Ef snúran skemmist þarf að farga vörunni.
Viðgerð á vöru
Ekki reyna að gera við vöruna sjálf/ur. Ef þú opnar
eða fjarlægir hluta gætir þú komist í snertingu við
hættulega rafspennu eða aðra hættuvalda.
Reglugerð um fjarskiptatíðni
Samkvæmt reglugerð um fjarskiptatíðni ætti
notandinn ekki að vera í minna en 10 cm fjarlægð
frá tækinu við hefðbundna notkun.
Tæknilegar upplýsingar
Tegund: E2021 BETTORP
Inntak: 24,0V DC, 0,7A, 18,0W
Tegund: ICTD-5-BI-3
Inntak: 19,0-24,0V DC, 0,5A
Rekstrartíðni: 110.1 - 148 kHz
Útgangsafl: -2 dBuA/m á 10m (2 x 5,0W)
Aflgjafi
Tegund: ICPSW24-19-1
Inntak: 100-240 VAC, 50/60 Hz, 0,4A
Úttak: 24,0V DC
Hámarksspenna: 0,8A, 19,0W
(Aðeins ESB/UK)
Virk afkastageta að meðaltali: 89,1%
Afkastageta undir litlu álagi: (10 %): 83,0 %
Orkunotkun undir engu álagi: 0,08 W
Aðeins fyrir notkun innandyra
14

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

904.303.69

Tabla de contenido