Meðferðargríma 3100 NC
Meðferðargríma 3100 SP
Notkunarleiðbeiningar
1
Öryggisupplýsingar
Tilætluð notkun
Þessi gríma er ætluð fyrir meðferð með stöðugum jákvæðum loftvegaþrýstingi (CPAP) eða
tvískipta meðferð. Gríman er ætluð til notkunar hjá einum einstaklingi í heimahúsi og til notkunar
hjá fleiri einstaklingum á sjúkrahúsi/-stofnun. Gríman er ætluð til notkunar hjá sjúklingum > 7 ára
(> 18 kg) sem hafa fengið ávísaða meðferð með stöðugum jákvæðum loftvegaþrýstingi (CPAP)
eða tvískipta meðferð.
Athugið:
• Þessi gríma er ekki framleidd úr náttúrulegu gúmmílatexi eða DEHP.
• Hægt er að nálgast rafrænar leiðbeiningar á: www.philips.com/IFU.
Frábendingar
Meðferðargrímur 3100 NC og SP eru ekki ætlaðar til notkunar með lækningatækjum sem verða
fyrir truflunum vegna segla með segulstyrk sem nemur 0,2 mT í 5 cm fjarlægð frá tækinu.
Viðvörun: Merkir hugsanlega hættu fyrir notanda eða þann sem stjórnar tækinu.
Varúð: Merkir hugsanlega skemmd á tækinu.
Varnaðarorð
• Þessi gríma er ekki ætluð til notkunar hjá sjúklingum sem eru háðir öndunarvél.
• Notkun grímunnar þegar ekki er kveikt á vélinni og hún ekki í gangi getur valdið innöndun
útöndunarlofts. Innöndun útöndunarlofts lengur en í nokkrar mínútur getur í sumum
tilvikum valdið köfnun.
• Hætta skal notkun og hafa samband við heilbrigðisstarfsmann ef vart verður við eitthvað
af eftirfarandi: roða í húð, ertingu, óþægindi, óskýra sjón eða augnþurrk.
• Hætta skal notkun og hafa samband við heilbrigðisstarfsmann ef vart verður við einhver
af eftirtöldum einkennum: óvenjuleg óþægindi fyrir brjósti, mæði, alvarlegan höfuðverk,
augnverk eða augnsýkingar.
• Hætta skal notkun og hafa samband við heilbrigðisstarfsmann ef vart verður við einhver
af eftirtöldum einkennum: eymsli í tönnum, tannholdi eða kjálka. Notkun grímu getur
valdið því að fyrirliggjandi tannkvilli versni.
• Ekki má hindra útöndunarventlana.
• Ekki herða ólar höfuðbúnaðarins um of. Vera skal á varðbergi gagnvart merkjum um að
hert sé um of, svo sem miklum roða, sárum eða bungu í húð við brúnir grímunnar. Losa
skal ólar höfuðbúnaðarins til að lina einkennin.
• Gríman inniheldur smáa hluti sem geta valdið hættu á köfnun.
• Má ekki nota í eða nálægt segulómtæki (MRI).
74
IS