Íslenska
28
|
Wallbox eMH1 – Öryggisupplýsingar
Öryggisupplýsingar
Sé ekki farið eftir öryggisupplýsingunum í þessari handbók eða þær virtar að vettugi, getur það
leitt til raflosts, eldsvoða, alvarlegs líkamstjóns og/eða dauða.
Vinsamlegast athugið eftirfarandi atriði:
Vinsamlegast lesið þessa handbók gaumgæfilega.
Farið eftir öllum viðvörunum og fylgið öllum leiðbeiningum.
Geymið þessa handbók á öruggum og aðgengilegum stað: Efni þessarar handbókar og þá sérstaklega
öryggistilkynningar, verða að vera tiltækar öllum notendum vörunnar.
Setjið þessa vöru ekki upp nálægt rennandi vatni, vatnsúða eða á svæðum þar sem vatn getur flætt.
Ekki má setja vöruna upp á sprengifimum svæðum (EX-svæðum).
Uppsetning rafmagns skal framkvæmd samkvæmt staðarreglum af hæfum rafvirkja, sem á grundvelli
sérþjálfunar og reynslu, ásamt þekkingu á viðkomandi reglugerðum, getur metið og framkvæmt þá
vinnu sem lýst er í þessari handbók og borið kennsl á mögulegar hættur.
Vinsamlegast athugið að mögulega kveður rekstraraðili rafmagnsdreifikerfisins, orkufyrirtæki
eða landslög á um samþykktarskyldu varðandi uppsetningu eða starfrækslu hleðslustöðva.
Gangið úr skugga um að málspenna og málstraumur vörunnar uppfylli viðmiðanir
rafmagnsdreifikerfisins á staðnum og ekki sé farið yfir málspennuúttak við notkun.
Aðeins má nota vöruna eftir að hún hefur fengið lokaúttekt frá hæfum rafvirkja.
Ekki má hylja vöruna með límmiðum eða öðrum hlutum eða efnum.
Ekki má setja neina vökva eða ílát sem innihalda vökva á vöruna.
Vinsamlegast athugið að notkun útvarpssendis nálægt vörunni (<20 cm) getur orsakað bilanir.
Ekki er ætlast til að þessi vara sé notuð af einstaklingum (þar með töldum börnum) með skerta
líkamlega, skynjunartengda eða andlega hæfni eða sem skortir reynslu og/eða þekkingu, nema þeir
séu undir umsjón einhvers sem ber ábyrgð á öryggi þeirra eða þeir hafi fengið leiðbeiningar um hvernig
eigi að nota vöruna.
Hafa verður eftirlit með börnum þannig að þau séu ekki að leika sér að vörunni.
Gerið ekki breytingar á vörunni undir neinum kringumstæðum. Öll brot á þessum leiðbeiningum leiða af
sér öryggishættu, brjóta í grundvallaratriðum gegn ákvæðum ábyrgðar og geta tafarlaust ógilt hana.
Hæfur rafvirki skal gera við bilanir sem stofna öryggi einstaklinga eða vörunnar sjálfrar í hættu.
Vinsamlegast hafið samband við rafvirkja komi einhver af eftirfarandi bilunum upp:
y Ytra byrði vörunnar hefur orðið fyrir vélrænum skemmdum eða lok ytra byrðisins hefur verið
fjarlægt eða ekki hægt að loka því lengur.
y Nægileg vörn gegn vatnsskvettum og/eða aðskotahlutum er ekki lengur til staðar.
y Varan starfar ekki rétt eða hefur skemmst á annan hátt.
y Hleðsluinnstunga, föst hleðslusnúra eða hleðslutengill hafa orðið fyrir sjáanlegum skemmdum eða
starfa ekki rétt.