ÍSLENSKA
9
Þessi borðplata er gerð úr spónaplötu sem
klædd er 3.5 mm lagi af gegnheilum við.
Borðplatan er meðhöndluð með viðarolíu í
verksmiðjunni og frekari meðferð er ekki
nauðsynleg fyrr en fer að sjá á yfirborðinu.
Þegar yfirborðið fer að láta á sjá, eða þorna,
er kominn tími til að bera IKEA viðarolíu á
plötuna. Byrjið á að hreinsa borðplötuna
og undirbúa hana með því að pússa hana
aðeins með fínum sandpappír. Strjúkið
í sömu átt og æðarnar í viðnum liggja.
Strjúkið af með þurri tusku. Notið tusku
eða pensil til að bera þunnt og jafnt lag af
viðarolíu á borðplötuna. Leyfið henni að
smjúga inn í yfirborðið í u.þ.b. 15 mínútur.
Þurrkið þá alla umframolíu af með þurri,
mjúkri tusku. Pússið með fínum sandpappír
eftir fyrstu meðhöndlun. Leyfið yfirborðinu
að þorna og endurtakið meðferðina eftir
nokkra daga. Til að tryggja að borðplatan
haldi eiginleikum sínum um árabil þarf að
bera á hana þegar hún fer að láta á sjá eða
þorna.