Descargar Imprimir esta página

stelton EM77 Manual Del Usuario página 17

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 10
IS – EM77 hraðsuðuketill
Leiðbeiningar
Rafmagns ketillinn er settur á botnstykkið með hnappnum
yfir snúruna. Hafið leiðsluna eins stutta og unnt er; þeim
hluta leiðslunnar sem umfram er má rúlla upp undir
botnstykkinu.
MIKILVÆGT: Áður en vatn er sett á ketilinn skal taka hann
af botnstykkinu. Aðeins má fylla á með vatni upp að
MAX-merkingunni, eða 1,5 l (sjá mynd 1) og lokið þarf að
setja tryggilega á.
AÐVÖRUN: Ef meira vatn er sett í ketilinn en sem nemur
MAX-merkingunni getur sjóðandi vatn bullað upp úr
katlinum við notkun.
Þegar ketillinn er notaður í fyrsta skiptið ætti að sjóða
vatn í honum þrisvar sinnum áður en vatn er soðið til
neyslu. Þannig er tryggt að hugsanleg óhreinindi eftir
framleiðsluferlið hverfi.
Kveikt er á katlinum með hnappinum til að kveikja/
slökkva, sem er undir handfanginu (sjá mynd 2).
Þegar vatnið sýður (við 100 °C) slekkur ketillinn sjálfkrafa
á sér og ljósið slokknar. Ef sjóða á meira vatn þarf því að
ýta aftur á hnappinn. Sjálfvirka slokknunin kemur í veg
fyrir ónauðsynlega upphitun þegar hellt hefur verið úr
katlinum og hann settur aftur á botnstykkið. Takið ketilinn
alltaf úr sambandi þegar ekki er verið að nota hann (sjá
mynd 3).
MIKILVÆGT: Gangið ævinlega úr skugga um að lokið hafi
verið tryggilega fest áður en kveikt er á katlinum. Þegar
lokið fellur á sinn stað heyrist smellur. Ef lokið er ekki á
sínum stað mun sjálfvirk slokknun ketilsins ekki virka sem
skyldi. Ekki má nota ketilinn án loks, þar sem þá er hætta
á að sjóðandi vatn skvettist upp úr honum. Ef vandamál
koma upp varðandi sjálfvirku slokknunina, til dæmis ef
ketillinn slekkur á sér áður en vatnið nær 100 °C eða ef
hann heldur áfram að sjóða eftir að því marki er náð, ætti
að kalkhreinsa ketilinn, sjá kafla um viðhald.
Vörn gegn suðu með engu vatni
Ketillinn er með innbyggða vörn gegn því að hann sjóði
án vatns, en það þýðir að hitaelementið slekkur sjálfkrafa
á sér ef ketillinn er kalkaður, ef kveikt er á honum tómum
eða ef allt vatn gufar upp úr honum. Ef ketillinn slekkur
sjálfkrafa á sér án augljósrar ástæðu skal kanna hvort
það séu kalkútfellingar í botninum og kalkhreinsa ketilinn
ef þörf krefur. Því næst skal prófa ketilinn með því að fylla
hann af vatni og kveikja á honum. Ef ketillinn heldur áfram
að slökkva á sér áður en suðumarki er náð skal fara með
hann, ásamt botnstykkinu, til skoðunar hjá þeim söluaðila
þar sem hann var keyptur.
Viðhald
Kalkhreinsun síu
Ketillinn er búinn kalksíu sem má fjarlægja og er staðsett
við hellistútinn. Sían kemur í veg fyrir að kalkagnir í vatninu
berist með í bollann. Það er mikilvægt að hreinsa síuna
áður en hún verður mjög kalkmettuð þar sem vatnið mun
þá ekki komast gegnum síuna, heldur getur runnið með
fram hliðum loksins. Það eykur hættu á brunameiðslum.
32
Það er auðvelt að fjarlægja síuna úr katlinum með því
að toga í það (sjá mynd 4). Kalkið í síunni má fjarlægja
með uppþvottabursta eða þvottastykki undir rennandi
vatni, eða með því að leggja síuna í bleyti í borðediki eða
kalkhreinsivökva (sjá mynd 5). Eftir skolun með hreinu vatni
er sían sett aftur á sinn stað.
Hreinsun ketilsins
Takið klóna úr sambandi og leyfið katlinum að kólna niður
fyrir hreinsun eða annað viðhald.
Ytra byrði ketilsins má hreinsa með því að strjúka
af því með mjúkum klúti, vættum í volgu vatni og
uppþvottalegi. Þurrkið af með þurrum klúti eða
viskastykki. Notið aldrei skúringaduft eða önnur hreinsiefni
með svarfefnum, þar sem það mun rispa yfirborð ketilsins.
Kalkhreinsun ketilsins
Ketilinn þarf að kalkhreinsa reglulega til að fjarlægja allar
kalkútfellingar.
Almennt viðhald. Kannið vikulega hvort ketillinn er orðinn
kalkaður. Mælt er með að sjóða aðeins það magn vatns
sem þörf er á hverju sinni. Þannig má forðast að vatn sitji
eftir í katlinum, en það eykur kalkútfellinguna. Þetta sparar
einnig orku.
Kalkhreinsið eftir þörfum. Notið einhverja eftirtalinna
aðferða:
· Aðferð 1: Til að forðast vægar kalkútfellingar skal setja
litarefnislaust borðedik í ketilinn einu sinni í viku, þannig
að vökvinn þeki botn ketilsins. Látið edikið standa í
katlinum í tvær klukkustundir, tæmið hann svo og skolið
vel.
Ábending: Kalkhreinsiferlinu má hraða með því að hita
vökvann að 50–60 °C.
· Aðferð 2: Til að fjarlægja grófgerðari kalkútfellingar skal
setja 0,25 l af litlausu borðediki og 0,75 l af vatni í ketilinn.
Kveikið á katlinum og látið blönduna sjóða. Látið
vökvann kólna í katlinum í 15 mínútur og sjóðið hann svo
upp aftur tvisvar sinnum.
Eftir slíka hreinsun ætti að sjóða vatn í katlinum þrisvar
sinnum áður en vatn er soðið til neyslu. Þannig er tryggt
að engar leifar af kalkhreinsiefninu verði eftir í katlinum.
Ef eitthvert kalk virðist enn vera í katlinum að loknu
kalkhreinsiferlinu ætti að kalkhreinsa ketilinn oftar.
MIKILVÆGT: Notið aðeins kalkhreinsiefni og borðedik til að
kalkhreinsa ketilinn. Notið aldrei beitt áhöld við þrif eða
kalkhreinsun hitaplötunnar undir katlinum. Ef ketillinn er
ekki kalkhreinsaður reglulega getur það leitt til þess að
hitaplatan eða ketillinn eyðileggist. Slíkt tjón fellur ekki
undir vöruábyrgðina.
ÖRYGGI
Lesið leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun og geymið
þær til síðari nota.
Tengið EM77 hraðsuðuketilinn við 220–240 V og notið hann
aðeins til að sjóða vatn.
Ketillinn er aðeins ætlaður til heimilisnota, en ekki í
atvinnuskyni (t.d. í framleiðslueldhúsi). Sé hraðsuðuketillinn
notaður á annan hátt en ætlast er til, eða ekki notaður
í samræmi við leiðbeiningarnar, ber notandinn sjálfur
alla ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum. Hugsanlegar
skemmdir á katlinum eða slys á fólki sem leiða kann af
slíkri notkun falla því ekki undir vöruábyrgðina.
Notið hraðsuðuketilinn aðeins undir eftirliti.
Kveikið aldrei á katlinum þegar hann er tómur.
Áður en vatn er sett á ketilinn skal taka hann af
botnstykkinu.
Setjið aldrei meira vatn í ketilinn en upp að MAX-
merkingunni.
AÐVÖRUN: Ef ketillinn er yfirfylltur getur sjóðandi vatn
bullað upp um stútinn við notkun.
AÐVÖRUN: Hætta á brunameiðslum. Heit gufa og
sjóðandi vatn geta valdið bruna. Opnið aldrei lokið á
meðan hraðsuðuketillinn er í gangi og farið varlega
þegar vatni er hellt úr honum.
Hraðsuðuketilinn má aðeins nota með meðfylgjandi
botnstykki.
Við þrif og viðhald á katlinum skal alltaf taka klóna úr
sambandi.
Til að forðast bruna, slys á mönnum og raflost má ekki
leggja neinn hluta hraðsuðuketilsins (nema lausu
kalksíuna) í bleyti í vatn eða annan vökva.
Notið hraðsuðuketilinn ekki utandyra.
Ketillinn verður alltaf að standa á stöðugu og sléttu
yfirborði, svo sem eldhúsborði.
Setjið ketilinn aldrei á eða nálægt eldavélarhellum,
opnum eldi eða þess háttar.
Haldið aðeins um handfang hraðsuðuketilsins og snertið
ekki heita fleti hans.
Leiðslan ætti aldrei að hanga laus fram af borðbrún eða
liggja á heitum fleti.
Hraðsuðuketilinn og leiðsluna skal staðsetja í hæfilegri
fjarlægð frá ofni eða eldavél og öðrum hitagjöfum.
MIKILVÆGT: Börn undir átta ára aldri mega ekki nota
ketilinn og einstaklingar með skerta líkamlega eða
andlega færni, og skerta skynjunarfærni, mega aðeins
nota ketilinn að undangenginni fræðslu um ábyrga
notkun og áhættu samfara notkun. Slík fræðsla skal
veitt af þeim aðila sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi
einstaklings og sá aðili skal hafa áframhaldandi eftirlit
með notkun ketilsins. Börn ættu alltaf að vera undir eftirliti
til að tryggja að þau leiki sér ekki með ketilinn eða noti
IS – EM77 hraðsuðuketill
hann með óábyrgum hætti. Börn geta átt erfitt með að
meta áhættu og greina hættulegar aðstæður.
Börn þurfa að hafa náð átta ára aldri til að mega þrífa
og sinna viðhaldi á katlinum og þá aðeins undir eftirliti
fullorðins.
Notið ekki hraðsuðuketilinn ef einhverjir hlutar hans
eru laskaðir. Til að forðast hættulegar aðstæður skal
ævinlega skoða hraðsuðuketilinn, handfang hans,
leiðsluna og klóna fyrir hverja notkun. Á ábyrgðartíma
skal framleiðandi, þjónustuverkstæði framleiðanda eða
annar vottaður aðili skipta um eða gera við alla hluti sem
reynast skemmdir, samkvæmt gildandi lögum. Ef notaðir
eru íhlutir frá öðrum en framleiðanda getur það valdið
eldsvoða, slysum á mönnum eða annarri hættu.
Vöruskil vegna kvartana
Skilaréttur er samkvæmt gildandi lögum. Afhenda verður
útprentaða kassakvittun með kaupdagsetningu ef
vörunni er skilað. Skila verður vörunni á þann stað þar sem
hún var keypt.
Förgun ketilsins
Lög kveða á um að safna skuli saman raftækjum
og rafeindabúnaði og endurvinna hluta
þeirra. Rafeindabúnaður og raftæki sem merkt
eru með tákni fyrir sorpflokkun skal skila inn á
endurvinnslustöð í hverju sveitarfélagi.
Tæknilegar upplýsingar
EM77 hraðsuðuketill
Leiðslulaus ketill
Með vörn gegn suðu án vatns
220–240 V
50/60 HZ
Afl: 1850–2200 W
Rúmtak: 1,5 l
Með fyrirvara um breytingar og úrbætur.
Stelton A/S
Christianshavns Kanal 4
1406 Copenhagen K
Denmark
33

Publicidad

loading

Productos relacionados para stelton EM77

Este manual también es adecuado para:

890-1