Tæknilegar Upplýsingar - Hallde RG-200 Instrucciones De Uso

Ocultar thumbs Ver también para RG-200:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 15
GANGIÐ ÚR SKUGGA
UM VIKULEGA
Að vélin stöðvist jafnskjótt og þrýstiplötunni
(1:A) er lyft upp og fari aftur í gang þegar
henni er ýtt niður.
Að ekki sé unnt að gangsetja vélina þegar
mataranum/lokinu er lyft og þrýstiplötunni
síðan ýtt niður.
Takið vélina úr sambandi og gangið síðan
úr skugga um að raflínan sé heil og engar
sprungur í henni.
Ef önnur hvor öryggisaðgerðin verkar ekki
eða ef sprungur eru í raflínunni ber að kalla
á viðgerðarmann áður en vélin er tengd
aftur.
Að öxull þrýstiplötunnar (1:I) sé nægilega
smurður og snúist óhindrað. Ef öxullinn er
stirður skal hreinsa hann vel og smyrja
síðan með nokkrum dropum af
smurningsolíu.
Að hnífar og rifjárn séu heil og bíti vel.
BILANALEIT
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast og
fer ekki aftur í gang.
VIÐBRÖGÐ: Gangið úr skugga um að
tengillinn sitji í vegginnstungu. Gangið úr
skugga um að matarinn/lokið (1:C) sé læst
í réttri stöðu. Ýtið þrýstiplötunni (1:A) niður
í matarann. Gangið úr skugga um að vör í
töfluskáp á staðnum séu heil og hafi rétta
amper-tölu. Bíðið nokkrar mínútur og reynið
að gangsetja vélina á nýjan leik. Kallið til
viðgerðarmann.
BILUN: Vélin vinnur illa eða sker slælega.
VIÐBRÖGÐ: Veljið rétta skurðarskífu eða
samsetningu á skurðarskífum (3). Skrúfið
hnífskrúfuna (1:J) fasta. Gangið úr skugga
um að hnífar og rifjárn séu heil og bíti vel.
þrýstið hráefninu laust niður.
BILUN: Skurðarskífan (3) situr blýföst.
VIÐBRÖGÐ: Notið ávallt útmötunarskífuna
(1:D). Notið þykkan leðurhanska eða
annað sem hnífar skurðarskífnanna ná ekki
gegnum og snúið skurðarskífunni réttsælis
þangað til hún losnar.
BILUN: Hnífskrúfan (1:J) situr blýföst.
VIÐBRÖGÐ: Skrúfið hnífskrúfuna af réttsælis
með lyklinum (1:K).
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
VÉL: Mótor: 0.37 kW, 230 V, 1-fasa, 50 Hz,
hitastýrð hreyfilvörn. Hraðaskipting:
Gírskipting. Öryggiskerfi: Tveir
öryggisrofar. Varnarflokkur: IP44.
Veggtenging: Jarðtengd, 1-fasa, 10 A.
Bræðivör í töfluskáp á staðnum 10 A treg.
Hljóðstyrkur LpA (EN 31201): 73 dBA.
SKURÐARSKÍFUR: þvermál: 185 mm.
Snúningshraði: 350 snún./mín.
EFNI: Vélarhús: Rafhúðað eða gljáfægt
álblendi. Skífur skurðarverkfæra: Ál eða
acetal. Skurðarhnífar: Hnífastál í hæsta
gæðaflokki.
NETTÓÞYNGD: Vél: 18.3 kg. Skurðarskífur:
U.þ.b. 0.5 kg að jafnaði.
STAÐLAR: NSF STANDARD 8, EU.
Vélartilskipun: 89/392 EEC.

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido