Little Giant EN 131 Instrucciones página 42

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 29
LEIÐBEININGAR
7. LISTI YFIR EININGAR SEM ÞARF AÐ SKOÐA
Eftirfarandi einingar þarf að skoða reglulega:
• Athugið hvort að hliðarstykkin/fæturnir (stoðirnar) séu sveigð, bogin, biluð, beygluð,
sprungin eða fúin.
• Athugið hvort að hliðarstykkin/fæturnir í kringum festingarstaði við aðra hluta séu í góðu
ásigkomulagi.
• Athugið hvort að festingar (aðallega hnoðnaglar, skrúfur og boltar) vanti, séu lausar eða
tærðar.
• Athugið hvort að rimar/þrep vanti, séu lausar, of slitnar, tærðar eða skemmdar.
• Athugið hvort að hjarir milli fram og afturhluta séu nokkuð skemmdar, lausar eða tærðar.
• Athugið hvort að læsing haldist lárétt, bakhandrið og hornstoðir vanti ekki, séu beygð, laus,
tærð eða skemmd.
• Athugið hvort að rimakróka vanti, séu skemmdir, lausir eða tærðir og hvort þeir séu
nægilega festir við rimurnar.
• Athugið hvort að hornklofa vanti, séu skemmdir, lausir eða tærðir og hvort þeir séu
nægilega festir á hliðarstykkin.
• Athugið hvort að fætur/undirstöðutappa vanti á stigann, séu lausar, of slitnar, tærðar eða
skemmdar.
• Athugið hvort að stiginn sé laus við aðskotaefni, t.d. óhreinindi, mold, málningu, olíu eða
fitu.
• Athugið hvort að festingarhespur (ef til staðar) séu ekki skemmdar eða tærðar og virki
eðlilega.
• Athugið hvort að á pallinn (ef til staðar) vanti einingar eða festingar og hvort hann sé
skemmdur eða tærður.
Ef, við skoðun, einhver þessara atriða að ofan eru ekki í lagi ætti ekki að nota stigann.
IS
Fyrir sérstakar gerðir af stigum gæti þurft að skoða fleiri einingar sem koma frá framleiðanda.
Til notkunar í atvinnuskyni þarf að skoða stigann reglulega af viðurkenndum aðila.
8. GEYMSLA / FLUTNINGUR
Mikilvæg atriði við geymslu stiga sem ekki er í notkun og ætti að hafa í huga eru:
• Er stiginn geymdur á stað þar sem að ástandi hans gæti hrakað hraðar, t.d. í raka, miklum
hita eða óvarinn gegn náttúruöflum?
• Er stiginn geymdur í slíkri stöðu að hann haldist beinn, t.d. hengdur upp á hliðarstykkju-
num á viðeigandi hornklofum fyrir stiga eða lagður á hreint yfirborð?
• Er stiginn geymdur þar sem hann verður ekki fyrir hnjaski af völdum ökutækja, þungra
hluta eða aðskotaefna?
• Er stiginn geymdur þar sem hann er ekki fyrir eða þar sem hætta er á að einhver hrasi
um hann?
• Er stiginn geymdur á öruggum stað þar sem ekki er auðvelt að nýta sér hann til afbrota?
• Ef að stiganum er varanlega komið fyrir, t.d. á vinnupalli, er hann varinn óleyfilegu klifri
á öruggan hátt, t.d. klifri barna?
• Ef stiginn er fluttur er hann örugglega festur á sínum stað, t.d. með ólum?
39

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

En 14183

Tabla de contenido