ÞRIF OG UMHIRÐA
Hreinsa skal hitamælinn með mjúkum klút og vatnsþynntu ísóprópanóli
eða með köldu sápuvatni.
Ekki skal nota tærandi hreinsiefni, leysiefni eða bensín við þrif.
Dýfa má hitamælinum í vatn eða sótthreinsilausn til að hreinsa hann. Ekki
má dauðhreinsa með suðu, gas- eða gufusæfingu.
Gæta verður þess að rispa ekki yfirborðið á hitanemanum og skjánum.
Eftir að hitaneminn er þrifinn með alkóhóli skal bíða í 5 mínútur áður
en hitamælirinn er notaður svo hann geti aftur náð nauðsynlegu
notkunarhitastigi.
ÁBYRGÐ
Fyllstu vandvirkni var gætt við framleiðslu og prófanir á tækinu. Reynist
tækið engu að síður vera gallað við afhendingu veitum við ábyrgð með
eftirfarandi skilyrðum:
Á ábyrgðartímabilinu, 2 árum frá kaupdegi, lagfærum við galla hvernig
sem okkur hentar og á okkar eigin kostnað í verksmiðju okkar með
viðgerðarvinnu, eða með því að skipta út og afhenda ógallað tæki.
Ábyrgðin nær ekki til venjulegs slits á slithlutum eða skemmdum sem
komnar eru til vegna þess að notkunarleiðbeiningum er ekki fylgt,
IS
óviðeigandi meðhöndlun (t.d. brotskemmdir, rafhlöðuleki) eða ef kaupandi
hefur tekið tækið í sundur. Enn fremur, ábyrgðin er ekki ástæða til að
sækjast eftir skaðabótakröfum á hendur okkur.
Ábyrgðarkröfum er aðeins hægt að færa fram á ábyrgðartímabilinu og
með því að leggja fram sönnun fyrir kaupum. Ef um ábyrgðarkröfu er að
ræða verður að senda tækið á eftirfarandi heimilisfang ásamt sönnun fyrir
kaupum og kvörtunarlýsingu:
NaturalCycles Nordic AB
Sankt Eriksgatan 63b
11234 Stockholm
Sweden
Sendandi skal bera kostnað af því að senda tækið aftur til verksmiðju okkar.
Lögbundnar kröfur og réttindi kaupanda á hendur seljanda (til dæmis, kröfur
vegna galla, ábyrgð framleiðanda) eru ekki takmarkaðar við þessa ábyrgð.
IS-158
Vinsamlegast athugið: Ef að ábyrgðarkröfu kemur er nauðsynlegt að
sönnun fyrir kaupum fylgi.
NaturalCycles Nordic AB
Sankt Eriksgatan 63b
11234 Stockholm, Sweden
help.naturalcycles.com
www.naturalcycles.com
IS
IS-159