IS
ÖRYGGI
1. Lesið notkunarhandbókina vandlega fyrir notkun
og geymið hana til að geta leitað í hana síðar.
2. Setjið blandarann aðeins í samband við 220–240V innstungu
og notið hann á tilætlaðan hátt.
3. Takið blandarann ávallt úr sambandi þegar hann er ekki í notkun.
4. Dýfið blandaranum ekki í vatn eða aðra vökva.
5. Börn sem eru 8 ára og eldri og aðilar með skerta líkamlega, skynræna eða andlega
hæfni eða aðilar sem skortir reynslu eða hæfni mega nota blandarann ef þeir hafa
hlotið leiðsögn eða leiðbeiningar um hvernig nota eigi blandarann á öruggan hátt
af hálfu aðila sem ber ábyrgð á öryggi þeirra og hafi skilið þær hættur sem um er að
ræða.
6. Hafa skal umsjón með börnum til að tryggja að þau leiki sér ekki með blandarann.
Börn eru ekki alltaf meðvituð um hugsanlegar áhættur.
Kennið börnum að fara með raftæki á ábyrgan hátt.
7. Börn mega ekki sjá um hreinsun og viðhald blandarans
nema þau séu eldri en 8 ára og séu undir umsjón.
8. Blandarinn og rafmagnssnúran eiga að vera þar sem börn undir 8 ára aldri ná ekki til.
9. Tryggið að rafmagnssnúran lafi ekki út fyrir borðbrúnina.
10. Setjið blandarann ekki nálægt eða ofan á heitt yfirborð, opinn eld eða annað álíka.
11. VARÚÐ: Blöðin eru mjög beitt, farið að með aðgát þegar blandarinn er hreinsaður!
12. Ekki skal brýna blöð blandarans.
13. VARÚÐ: Til að forðast að hætta skapist má ekki tengja tækið við utanaðkomandi
gangsetningarbúnað, svo sem tímastilli, eða tengja það við rafrás sem slökknar og
kviknar á til skiptis.
14. Til að auka öryggi er mælt með að setja upp bilunarstraumrofa (HFI/PFI/HPFI
rafliðarás) sem er í mesta lagi 30 mA. Leitið ráða hjá menntuðum rafvirkja.
15. Ef tækið er notað í öðrum tilgangi en því er ætlað eða ef það er ekki notað í samræmi
við notkunarleiðbeiningar ber notandinn fulla ábyrgð á afleiðingum notkunarinnar.
Allar skemmdir á vörunni eða öðrum eignum heyra ekki undir ábyrgð.
16. Færið blandarann ekki til á meðan hann er í gangi.
30
VIÐHALD
Takið tækið úr sambandi og fjarlægið blöndunarsamstæðuna (B + C).
Sýnið aðgát við hreinsunina. Blöðin eru beitt.
Skolið flöskuna (B) og blaðeininguna (C) strax eftir notkun
með rennandi vatni og einnig lokið (D) í heitu vatni og smá uppþvottalegi.
Hægt er að þvo flöskuna (B), blaðaeininguna (C) og lokið (D) í uppþvottavélinni.
Til að þrífa mótoreininguna (A) skal nota rakan klút og þurrka hana vandlega.
Aldrei má setja mótoreininguna (A) í vatn eða annan vökva.
VÖRUSKIL VEGNA KVARTANA
Þú hefur rétt til að senda inn kvörtun í samræmi við viðeigandi löggjöf.
Ef kvörtun er gerð skal framvísa kvittun með kaupdegi sem er stimpluð með vél.
Ef kvartanir eru gerðar skal fara með búnaðinn á staðinn sem hhann var keyptur á.
FÖRGUN HEIMILISTÆKJA
Löggjöf krefst þess að raf- og rafeindatæki verði safnað og hlutar
tækjanna endurunnir. Rafmagns- og rafeindabúnaður sem merktur er með
úrgangsstjórnunartákninu skal afhentur í endurvinnslustöð sveitarfélaga.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
FOODIE smoothie-blandari
Art. No: IN-Z00605-X
220–240 V 50/60 HZ 180 W
Með fyrirvara um breytingar og úrbætur.
RIG-TIG
Christianshavns Kanal 4
1406 Copenhagen K
Denmark
IS
31