Descargar Imprimir esta página

RIGTIG FOODIE Z00602 Manual De Instrucciones página 16

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 9
IS
Leiðbeiningar
Rafmagnsketillinn er settur á botnstykkið. Hafið leiðsluna eins
stutta og unnt er; þeim hluta leiðslunnar sem umfram er má
rúlla upp undir botnstykkinu. Ketillinn verður stöðugur þegar
fyllt er á hann með vatni.
MIKILVÆGT: Áður en vatn er sett á ketilinn skal taka hann af
botnstykkinu. Opnaðu lokið með því að ýta á hnappinn á hand-
fanginu. Aðeins má fylla á með vatni upp að MAX-merkingunni,
eða 1 l (sjá mynd 1) og lokið þarf að setja tryggilega á.
AÐVÖRUN: Ef meira vatn er sett í ketilinn en sem nemur
MAX-merkingunni getur sjóðandi vatn bullað upp úr katlinum
við notkun.
Þegar ketillinn er notaður í fyrsta skiptið ætti að sjóða vatn í
honum þrisvar sinnum áður en vatn er soðið til neyslu. Þannig er
tryggt að hugsanleg óhreinindi eftir framleiðsluferlið hverfi.
Kveikt er á katlinum með hnappinum til að kveikja/ slökkva, sem
er undir handfanginu (sjá mynd 2). Við suðu getur gufa/þétti-
vatn myndast við eða í kring um kveikjarann/slökkvarann.
MIKILVÆGT: Það verður að setja kalksíuna á fyrir suðu.
Þegar vatnið sýður (við 100 °C) slekkur ketillinn sjálfkrafa á sér
og ljósið slokknar. Ef sjóða á meira vatn þarf því að ýta aftur á
hnappinn. Sjálfvirka slokknunin kemur í veg fyrir ónauðsynlega
upphitun þegar hellt hefur verið úr katlinum og hann settur
aftur á botnstykkið. Takið ketilinn alltaf úr sambandi þegar ekki
er verið að nota hann (sjá mynd 3).
MIKILVÆGT: Gangið ævinlega úr skugga um að lokið hafi verið
tryggilega fest áður en kveikt er á katlinum. Þegar lokið fellur
á sinn stað heyrist smellur. Ef lokið er ekki á sínum stað mun
sjálfvirk slokknun ketilsins ekki virka sem skyldi. Ekki má nota
ketilinn án loks, því þá er hætta á að sjóðandi vatn skvettist upp
úr honum. Ef vandamál koma upp varðandi sjálfvirku slokknuni-
na, til dæmis ef ketillinn slekkur á sér áður en vatnið nær 100 °C
eða ef hann heldur áfram að sjóða eftir að því marki er náð, ætti
að kalkhreinsa ketilinn, sjá kafla um viðhald.
Vörn gegn suðu með engu vatni
Ketillinn er með innbyggða vörn gegn því að hann sjóði án
vatns, en það þýðir að hitagjafinn slekkur sjálfkrafa á sér ef
ketillinn er kalkaður, ef kveikt er á honum tómum eða ef allt
vatn gufar upp úr honum. Ef ketillinn slekkur sjálfkrafa á sér
án augljósrar ástæðu skal kanna hvort það séu kalkútfellingar
í botninum og kalkhreinsa ketilinn ef þörf krefur. Því næst skal
prófa ketilinn með því að fylla hann af vatni og kveikja á honum.
Ef ketillinn heldur áfram að slökkva á sér áður en suðumarki er
náð skal fara með hann, ásamt botnstykkinu, til skoðunar hjá
þeim söluaðila þar sem hann var keyptur.
VIÐHALD
Kalkhreinsun síu
Ketillinn er búinn kalksíu sem má fjarlægja og er staðsett við
hellistútinn. Sían kemur í veg fyrir að kalkagnir í vatninu berist
með í bollann. Það er mikilvægt að hreinsa síuna áður en hún
verður mjög kalkmettuð þar sem vatnið mun þá ekki komast
gegnum síuna. Það eykur hættu á brunameiðslum.
30
Það er auðvelt að fjarlægja síuna úr katlinum með því að toga í
hana (sjá mynd 4). Kalkið í síunni má fjarlægja með uppþvotta-
bursta eða þvottastykki undir rennandi vatni, eða með því að
leggja síuna í bleyti í borðediki eða kalkhreinsivökva (sjá mynd
5). Eftir skolun með hreinu vatni er sían sett aftur á sinn stað.
Hreinsun ketilsins
Takið klóna úr sambandi og leyfið katlinum að kólna niður fyrir
hreinsun eða annað viðhald.
Ytra byrði ketilsins má hreinsa með því að strjúka af því með
mjúkum klúti, vættum í volgu vatni og uppþvottalegi. Þurrkið
af með þurrum klúti eða viskastykki. Notið aldrei skúringaduft
eða önnur hreinsiefni með svarfefnum, þar sem það mun rispa
yfirborð ketilsins.
Kalkhreinsun ketilsins
Það verður að kalkhreinsa suðuketilinn reglulega og engar
kalkútfellingar mega myndast á botninum.
Almennt viðhald. Kannið vikulega hvort ketillinn er orðinn
kalkaður. Mælt er með að sjóða aðeins það magn vatns sem þörf
er á hverju sinni. Þannig má forðast að vatn sitji eftir í katlinum,
en það eykur kalkútfellinguna. Þetta sparar einnig orku.
Kalkhreinsið eftir þörfum. Notið einhverja eftirtalinna aðferða:
· Aðferð 1: Til að forðast vægar kalkútfellingar skal setja
litarefnislaust borðedik í ketilinn einu sinni í viku, þannig að
vökvinn þeki botn ketilsins. Látið edikið standa í katlinum í
tvær klukkustundir, tæmið hann svo og skolið vel.
Ábending: Kalkhreinsiferlinu má hraða með því að hita
vökvann að 50–60 °C.
· Aðferð 2: Til að fjarlægja grófgerðari kalkútfellingar skal setja
0,25 l af litlausu borðediki og 0,75 l af vatni í ketilinn. Kveikið
á katlinum og látið blönduna sjóða. Látið vökvann kólna í katli-
num í 15 mínútur og sjóðið hann svo upp aftur tvisvar sinnum.
Eftir slíka hreinsun ætti að sjóða vatn í katlinum þrisvar sinnum
áður en vatn er soðið til neyslu. Þannig er tryggt að engar leifar
af kalkhreinsiefninu verði eftir í katlinum.
Ef eitthvert kalk virðist enn vera í katlinum að loknu kalkhreinsi-
ferlinu ætti að kalkhreinsa ketilinn oftar.
MIKILVÆGT: Notið aðeins kalkhreinsiefni og borðedik til að
kalkhreinsa ketilinn. Notið aldrei beitt áhöld við þrif eða kalk-
hreinsun hitaplötunnar undir katlinum. Ef ketillinn er ekki kalk-
hreinsaður reglulega getur það leitt til þess að hitaplatan eða
ketillinn eyðileggist. Slíkt tjón fellur ekki undir vöruábyrgðina.
ÖRYGGI
Lesið leiðbeiningarnar vandlega fyrir notkun og geymið þær til
síðari nota.
Tengið hraðsuðuketilinn við 220–240 V og notið hann aðeins til
að sjóða vatn.
Ketillinn er aðeins ætlaður til heimilisnota, en ekki í atvin-
nuskyni (t.d. í framleiðslueldhúsi). Sé hraðsuðuketillinn notaður
á annan hátt en ætlast er til, eða ekki notaður í samræmi við
leiðbeiningarnar, ber notandinn sjálfur alla ábyrgð á hugsan-
legum afleiðingum. Hugsanlegar skemmdir á katlinum eða
slys á fólki sem leiða kann af slíkri notkun falla því ekki undir
vöruábyrgðina.
Notið hraðsuðuketilinn aðeins undir eftirliti.
Kveikið aldrei á katlinum þegar hann er tómur.
Áður en vatn er sett á ketilinn skal taka hann af botnstykkinu.
Setjið aldrei meira vatn í ketilinn en upp að MAX- merkingunni.
AÐVÖRUN: Ef ketillinn er yfirfylltur getur sjóðandi vatn bullað
upp um stútinn við notkun.
AÐVÖRUN: Hætta á brunameiðslum. Heit gufa og sjóðandi vatn
geta valdið bruna. Opnið aldrei lokið á meðan hraðsuðuketillinn
er í gangi og farið varlega þegar vatni er hellt úr honum.
Hraðsuðuketilinn má aðeins nota með meðfylgjandi botnstykki.
Við þrif og viðhald á katlinum skal alltaf taka klóna úr sambandi.
Til að forðast bruna, slys á mönnum og raflost má ekki leggja
neinn hluta hraðsuðuketilsins (nema lausu kalksíuna) í bleyti í
vatn eða annan vökva.
Notið hraðsuðuketilinn ekki utandyra.
Ketillinn verður alltaf að standa á stöðugu og sléttu yfirborði,
svo sem eldhúsborði.
Setjið ketilinn aldrei á eða nálægt eldavélarhellum, opnum eldi
eða þess háttar.
Haldið aðeins um handfang hraðsuðuketilsins og snertið ekki
heita fleti hans.
Leiðslan ætti aldrei að hanga laus fram af borðbrún eða liggja
á heitum fleti.
Hraðsuðuketilinn og leiðsluna skal staðsetja í hæfilegri fjarlægð
frá ofni eða eldavél og öðrum hitagjöfum.
MIKILVÆGT: Börn undir átta ára aldri mega ekki nota ketilinn
og einstaklingar með skerta líkamlega eða andlega færni, og
skerta skynjunarfærni, mega aðeins nota ketilinn að undangen-
ginni fræðslu um ábyrga notkun og áhættu samfara notkun. Slík
fræðsla skal veitt af þeim aðila sem ber ábyrgð á öryggi viðko-
mandi einstaklings og sá aðili skal hafa áframhaldandi eftirlit
með notkun ketilsins. Börn ættu alltaf að vera undir eftirliti til
að tryggja að þau leiki sér ekki með ketilinn eða noti hann með
óábyrgum hætti. Börn geta átt erfitt með að meta áhættu og
greina hættulegar aðstæður.
Börn þurfa að hafa náð átta ára aldri til að mega þrífa og sinna
viðhaldi á katlinum og þá aðeins undir eftirliti fullorðins.
Notið ekki hraðsuðuketilinn ef einhverjir hlutar hans eru
laskaðir. Til að forðast hættulegar aðstæður skal ævinlega
skoða hraðsuðuketilinn, handfang hans, leiðsluna og klóna fyrir
hverja notkun. Á ábyrgðartíma skal framleiðandi, þjónustuver-
kstæði framleiðanda eða annar vottaður aðili skipta um eða
gera við alla hluti sem reynast skemmdir, samkvæmt gildandi
lögum. Ef notaðir eru íhlutir frá öðrum en framleiðanda getur
það valdið eldsvoða, slysum á mönnum eða annarri hættu.
VÖRUSKIL VEGNA KVARTANA
Skilaréttur er samkvæmt gildandi lögum. Afhenda verður
útprentaða kassakvittun með kaupdagsetningu ef vörunni er
skilað. Skila verður vörunni á þann stað þar sem hún var keypt.
FÖRGUN KETILSINS
Lög kveða á um að safna skuli saman raftækjum og
rafeindabúnaði og endurvinna hluta þeirra.
Rafeindabúnaður og raftæki sem merkt eru með tákni
fyrir sorpflokkun skal skila inn á endurvinnslustöð í
hverju sveitarfélagi.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
FOODIE hraðsuðuketill
Leiðslulaus ketill
Með vörn gegn suðu án vatns
220–240 V
50/60 HZ
Afl: 1500 W
Rúmtak: 1 l
Með fyrirvara um breytingar og úrbætur.
RIG-TIG
Christianshavns Kanal 4
1406 Copenhagen K
Denmark
IS
31

Publicidad

loading