NOTKUNARLEIÐ BEININGAR
HALLDE
RG - 250
( IS )
VARÚÐ:
Varist að skera hendurnar á beittum hnífum
og lausum vélarhlutum.
Notið ávallt stautinn þegar skorið er með
matarapípunni, og setjið aldrei hendurnar
inn í matarapípuna.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt
að tengja þriggja fasa útgáfuna af RG-100
vélinni.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
gera við vélina og opna vélarhúsið.
Haldið aðeins um handfang mataraskí-
funnar þegar matarinn er opnaður eða
honum lokað.
Kjarnahreinsibúnaðinn þarf að herða
(rangsælis) og losa (réttsælis) með
skrúflykli.
Notið ekki vélina til að skera frosin matvæli.
Fjarlægið alla harða hluta úr matnum áður
en hann er skorinn (t.d. eplakjarna, trénaða
hluta næpa o.s.frv.) til að skemma ekki
hnífana.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af
börnum eða einstaklingum með skerta
líkamlega, skyn- eða andlega getu eða skort
á reynslu á tækjum sem þessu, nema viðko-
mandi einstaklingur hafi hlotið fullnægjandi
leiðsögn eða tilsögn um notkun tækisins.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Gætið þess að allir hlutar fylgi vélinni, að vélin
sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í flutningi.
Athugasemdir verða að hafa borist seljanda
innan átta daga.
UPPSETNING
Tengið vélina við rafstraum með réttri uppge-
finni spennu.
Vélinni ætti að vera komið fyrir á bekk eða borði
sem er um 650 mm á hæð.
Setjið veggfestinguna fyrir skurðarverkfærin á
vegg nálægt vélinni til hægðarauka og öryggis.
Athugið næstu tvö atriði án þess að skurðar-
verkfæri eða frárásarskífa séu fest við vélina.
Gangið úr skugga um að vélin stöðist þegar
þrýstiplatan er færð upp og henni snúið út og
fari aftur í gang þegar þrýstiplötunni er snúið
inn og hún færð niður.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að
ræsa vélina þegar matarahólkurinn hefur verið
fjarlægður og þrýstiplatan færð niður.
HALLDE • User Instructions
Ef vélin virkar ekki rétt ber að kalla til löggiltan
fagmann til að laga gallann áður en vélin er
tekin aftur í notkun.
KANNIÐ ÁVALLT FYRIR
NOTKUN
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Gangið úr skugga um, þegar skurðarverkfæri
er í vélinni, að hún stöðvist innan 2 sekúndna
þegar þrýstiplatan er færð til hliðar og fari
aftur í gang þegar þrýstiplatan er færð aftur
yfir matarann.
Gangið úr skugga um að ekki sé hægt að
ræsa vélina þegar matarahólkurinn hefur verið
fjarlægður og þrýstiplatan færð niður.
Ef annar öryggisþáttanna virkar ekki eins og
hann á að gera eða ef rafmagnssnúran er
ekki heil ber að kalla til löggiltan fagmann eða
rafvirkja til að laga gallann áður en vélin er aftur
tengd við rafmagn.
Gangið úr skugga um að þrýstiplötuöxullinn
snúist óhindrað. Ef öxullinn snýst ekki óhindrað
skal þrífa hann vandlega og smyrja með
nokkrum dropum af vélaolíu.
Gangið úr skugga um að skurðarverkfærin séu
heil og bíti vel.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
41.
VINNSLUGERÐIR
Sneiðir, sker í teninga, rífur, tætir og sker í
strimla í ýmsum stærðum, eftir því hvaða
skurðarverkfæri er valið. Vinnur grænmeti,
ávexti, brauð, ost, hnetur, sveppi o.s.frv.
NOTENDUR
Veitingastaðir, verslunareldhús, spítalar,
mötuneyti, elliheimili, skólar, skyndibitastaðir,
veisluþjónustur, dagheimili, salatbarir, pítsus-
taðir, skip, iðnaðareldhús o.s.frv.
VINNSLUGETA
Allt að 1000 skammtar á dag og 10 kíló á
mínútu.
NOTKUN MATARA
Stóra matarahólfið er einkum notað til að vinna
með matvæli í miklu magni og skera stærri
vörur eins og hvítkál.
Stóra matarahólfið er líka notað þegar skera
á matvælin frá ákveðinni hlið, eins og tómata
og sítrónur. Komið vörunni fyrir eins og sýnt
er á myndinni.
Innbyggða matarapípan er notuð til að skera
langt og mjótt hráefni eins og gúrkur, sjá mynd.
ÞRÝSTIPLÖTUNNI KOMIÐ
FYRIR
Takið um þrýstiplötuna með báðum höndum
og stingið öxulendanum inn í gatið á vélinni.
Þrýstið þrýstiplötunni eins langt niður og hún
kemst.
ÞRÝSTIPLATAN FJARLÆGÐ
Lyftið þrýstiplötunni og snúið henni til vinstri.
Takið um þrýstiplötuna með báðum höndum.
Dragið þrýstiplötuna upp og út.
SKURÐARVERKFÆRUNUM
KOMIÐ FYRIR
Lyftið þrýstiplötunni og snúið henni til vinstri.
Snúið læsihnappnum rangsælis og lyftið
matarahólknum.
Setjið frárásarskífuna á öxulinn, snúið henni og
þrýstið henni niður svo hún festist á sínum stað.
Setjið valið skurðarverkfæri á öxulinn og snúið
því þar til það festist á sínum stað.
Skorið í teninga: komið teningagrind fyrir
þannig að egg hnífanna vísi upp, og skoran á
hlið teningagrindarinnar passi inn í stilligrópina
á vélinni. Setjið svo skurðarskífuna á öxulinn
þannig að hún festist á sínum stað.
Komið kjarnahreinsibúnaðinum fyrir með því
að snúa honum rangsælis með skrúflykli á
miðjuöxul skurðarverkfærisins.
Færið matarahólkinn niður og snúið
læsihnappnum réttsælis þar til hann festist.
SKURÐARVERKFÆRI
FJARLÆGÐ
Lyftið þrýstiplötunni og snúið henni til vinstri.
Snúið læsihnappnum rangsælis og lyftið
matarahólknum.
Fjarlægið kjarnahreinsibúnaðinn með því að
snúa honum réttsælis með skrúflykli.
Fjarlægið skurðarverkfærið/verkfærin og
frárásarskífuna.
ÞRIF
Lesið allar leiðbeiningar áður vélin er þrifin.
FYRIR ÞRIF: Slökkvið ávallt á vélinni og takið
hana úr sambandi. Ef vélin er ekki með kló
skuluð þið slökkva á straumrofa. Fjarlægið alla
hluta sem má fjarlægja og á að þrífa.
UPPÞVOTTAVÉL: Notið eingöngu uppþvot-
taefni sem hentar fyrir ál. Notið aldrei uppþvot-
tavél sem notar plastkorn eða önnur rispandi
efni við uppþvottinn.
HANDÞVOTTUR: Notið aðeins uppþvottalög
með litlu klórinnihaldi. Notið aldrei oddhvassa
eða rispandi hluti eða rispandi efni við uppþvot-
tinn.
27