Að Nota Hakkavél; Að Hreinsa Hakkavél - KitchenAid 5SSA Instrucciones Y Recetas

Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 49
Að nota hakkavél
VIÐVÖRUN
Hætta af blöðum á hreyfingu
Notaðu alltaf troðarann.
Haldið fingrum frá opum.
Geymist þar sem börn ná ekki til.
Sé það ekki gert getur óvarkárni
orsakað að viðkomandi missi
fingur eða hljóti skurðarsár.
1. Skerðu matinn í litlar ræmur eða bita
og settu í trektina. Kjöt ætti að vera
skorið í langar mjóar ræmur.
2. Settu hrærivélina á Hraða 4 og ekki
má hakka á meiri hraða. Settu matinn
í trektina og ýtið lauslega á með
sambyggða troðaranum (og lykill).
ATHUgASEMD: Vökvi gæti birst í
trektinni þegar verið er að vinna úr
stórum skömmtum af safaríkum mat eins
og tómötum, vínberjum eða fiski. Til að
tæma burt vökva skal halda áfram að láta
hrærivélina ganga áfram, en ekki hærra
en á hraða 4. Til að forðast að skemma
hrærivélina skal ekki vinna meiri matt fyrir
en vökvinn hefur tæmst úr trektinni.
gróf plata – Notuð til að
hakka hrátt eða eldað kjöt,
stinnt grænmeti, þurrkaða
ávexti og ost.
fín plata – Notuð til að hakka
hrátt kjöt, eldað kjöt fyrir
smurálegg og brauðmylsnu.
Hakkavél*
Að hakka kjöt – Fyrir betri blöndun og
mýkri árangur skal hakka kjötið tvisvar.
Besta áferðin kemur með því að hakka
mjög kalt eða hálf-frosið kjöt. Feitt kjöt
ætti einungis að hakka einu sinni.
Að hakka brauð – Til að hakka brauð
í mylsnu skaltu ganga úr skugga um
að brauðið sé annaðhvort ofnþurrkað
vandlega til að fjarlæga allan raka, eða alls
ekkert þurrkað. Hálf-þurrkað brauð gæti
stíflað hakkavélina.
ATHUgASEMD: Mjög hörð, þétt
matvæli, eins og fullþurrkað heimabakað
brauð, ætti ekki að hakka í hakkavélinni.
Heimabakað brauð ætti að hakka ferskt og
síðan má ofn- eða loft-þurrka það.
Að losa festihringinn – Ef hringurinn
er of hertur til að losa með höndum skal
smeygja samsetta troðara/lyklinum yfir
raufarnar og snúa rangsælis.
ATHUgASEMD: Til að forðast skemmdir
á hakkavélinni skal ekki nota sambyggða
troðarann( lykilinn) til að herða
festihringinn á hakkavélarhúsið.
Að hreinsa hakkavél
Taktu fyrst hakkavélina alveg í sundur.
Eftirfarandi hluti má þvo í uppþvottavél:
• Hakkavélarhús
• Snigil
• Festihringinn
• Sambyggða troðarann og lykillinn
Eftirfarandi hluti ætti að þvo í höndunum í
volgu sápuvatni og þurrka vandlega:
• Hníf
• Hökkunarplötur
3
* Hakkavél seld sér.

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido