Hallde CC-34 Instrucciones De Uso página 32

Ocultar thumbs Ver también para CC-34:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 17
NOTKUNARLEIÐ -
BEININGAR
HÄLLDE
CC - 34
( IS )
VARÚÐ:
Varist að skera ykkur á beittum hnífum og
lausum vélarhlutum.
Lyftið alltaf vélinni upp á báðum hand-
föngum á hliðum vélarhússins.
Setjið aldrei hendurnar ofan í skálina,
matarahólfið eða matarapípuna á grænme-
tisskurðarbúnaðinum.
Notið ávallt stautinn þegar skorið er með
matarapípunni á grænmetisskurðarbú-
naðinum.
Slökkvið alltaf á vélinni með því að snúa
hraðastillinum í stöðu „O" og taka hana úr
sambandi eða slökkva á straumrofa áður
en vélin er þrifin.
Grípið ávallt um handfangið á grænmetis-
skurðarbúnaðinum þegar matarahólfið er
opnað eða lokað.
Aðeins löggiltum fagmönnum er heimilt að
gera við vélina og opna vélarhúsið.
Notið ekki grænmetisskurðarbúnaðinn til að
skera frosin matvæli. Fjarlægið alla harða
hluta úr matnum áður en hann er skorinn
(t.d. eplakjarna, trénaða hluta næpa o.s.frv.)
til að skemma ekki hnífana.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af
börnum eða einstaklingum með skerta
líkamlega, skyn­ eða andlega getu eða skort
á reynslu á tækjum sem þessu, nema viðko-
mandi einstaklingur hafi hlotið fullnægjandi
leiðsögn eða tilsögn um notkun tækisins.
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
Gangið úr skugga um að allir hlutar fylgi vélinni,
að vélin sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í
flutningi. Athugasemdir verða að hafa borist
seljanda innan átta daga.
UPPSETNING
Fjarlægið hnífinn úr skálinni fyrir uppsetningu.
Tengið vélina við rafmagn í samræmi við
upplýsingarnar á kenniplötunni aftan á vélinni.
Komið vélinni fyrir á traustum bekk eða borði
sem er 650-900 mm hátt.
Festið veggfestinguna fyrir skurðarverkfærin og
frárásarskífuna á vegg nálægt vélinni.
32
KANNIÐ ÁVALLT FYRIR NOTKUN
MEÐ
GRÆNMETISSKURÐARBÚNAÐINUM:
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Fjarlægið grænmetisskurðarbúnaðinn, öll
skurðarverkfæri og frárásarskífuna samkvæmt
leiðbeiningum undir liðnum „Losun" og gangið
svo úr skugga um að vélin fari ekki í gang þegar
hraðastillirinn er í stöðu „II".
Setjið upp vélina samkvæmt leiðbeiningum
undir liðnum „Samsetning". Snúið hraðastil-
linum í stöðu „II". Gangið úr skugga um að
vélin stöðvist þegar handfangi grænmetis-
skurðarbúnaðarins er lyft upp og að öxullinn
hætti að snúast innan 2 sekúndna. Gangið svo
úr skugga um að vélin fari aftur í gang þegar
handfangið er dregið niður.
Gangið úr skugga um að gúmmíundirstöður
vélarinnar séu kirfilega skrúfaðar fastar.
Upplýsingar um skurðarverkfærin eru á síðum
55.
Kallið til löggiltan fagmann ef eitthvað er gallað
eða bilað til að laga gallann áður en vélin er
tekin í notkun.
MEÐ HNÍFS- OG SKÁLARBÚNAÐI:
Takið vélina úr sambandi eða slökkvið á
straumrofa og gangið síðan úr skugga um að
rafmagnssnúran sé heil og ósprungin.
Gangið úr skugga um að skálin, hnífurinn og
lokið sitji rétt. Snúið hraðastillinum í stöðu „II"
og gangið úr skugga um að öxullinn hætti
að snúast innan 4 sekúndna eftir að lokið er
fjarlægt með því að snúa því rangsælis eins
langt og hægt er.
Fjarlægið lokið, hnífinn og skálina. Snúið
hraðastilli í stöðu „II" og gangið úr skugga um
að vélin fari ekki í gang.
Gangið úr skugga um að gúmmífætur véla-
rinnar séu kirfilega skrúfaðir fastir.
Gangið úr skugga um að hnífarnir sé heilir
og bíti vel.
Kallið til löggiltan fagmann ef eitthvað er gallað
eða bilað til að laga gallann áður en vélin er
tekin í notkun.
VINNSLUGERÐIR
MEÐ
GRÆNMETISSKURÐARBÚNAÐINUM:
Sneiðir, sker í teninga, rífur, tætir og sker í
strimla í ýmsum stærðum, eftir því hvaða
skurðarverkfæri er valið. Vinnur grænmeti,
ávexti, brauð, ost , hnetur, sveppi o.s.frv.
Stóra matarahólfið er einkum notað til að vinna
með matvæli í miklu magni og skera stærri
vörur eins og hvítkál.
Stóra matarahólfið er líka notað þegar skera
á matvælin frá ákveðinni hlið, eins og tómata
og sítrónur. Komið vörunni fyrir eins og sýnt
er á myndinni.
Innbyggða matarapípan er notuð til að skera
langt og mjótt hráefni eins og gúrkur, sjá mynd.
MEÐ HNÍFS- OG SKÁLARBÚNAÐINUM:
Sker, malar og blandar saman kjöthakk,
kryddsmjör, salatsósu, eftirrétti, mauk, kæfu
o.s.frv. Vinnur kjöt, fisk, ávexti, grænmeti,
lauk, steinselju, hnetur, parmesanost, sveppi,
súkkulaði o.s.frv.
NOTENDUR
Veitingastaðir, verslunareldhús, kaffihús,
bakarí, mötuneyti, elliheimili, skólar, skyndibi-
tastaðir, dagheimili, salatbarir o.s.frv.
VINNSLUGETA
MEÐ
GRÆNMETISSKURÐARBÚNAÐINUM:
Allt að 80 skammtar á dag og 2 kíló á mínútu.
MEÐ HNÍFS- OG SKÁLARBÚNAÐINUM:
Vinnslutíminn og það magn og bitastærð sem
unnt er að vinna með í einu er mismunandi
eftir þéttleika hráefnisins og þeim árangri sem
stefnt er að.
Jafn og góður árangur fæst með því að hluta
hráefni eins og kjöt og fisk fyrst í nokkurn
veginn jafnstóra bita, ekki stærri en 3x3x3 sm.
Í eftirfarandi lista er gefið upp hámarksmagn
hráefnis sem ráðlagt er að vinna með í einu.
• Kjöt: 1 kíló
• Fiskur: 1 kíló
• Kryddsmjör: 1 kíló
• Majónes: 1 lítri
• Steinselja: 1 lítri
SKAFAN
HNÍFS- OG SKÁLARBÚNAÐUR:
Hafið sköfuna alltaf á þegar vélin er notuð þar
sem sköfublöðin þrjú hægja á snúningi þess
sem er í skálinni og beina því inn að miðju/
skurðarhluta hennar.
Með því að færa sköfuhandfangið fram og
aftur er auðveldlega hægt að skafa lok og
hliðar skálarinnar og láta matinn færast inn í
skurðarhluta hennar meðan vélin er í gangi.
SAMSETNING
GRÆNMETISSKURÐARBÚNAÐURINN:
Setjið frárásarskífuna á öxulinn, snúið henni og
þrýstið henni niður svo hún festist á sínum stað.
Setjið svo valið skurðarverkfæri á öxulinn og
snúið því þar til það festist.
Skorið í teninga: komið teningagrind fyrir
þannig að egg hnífanna vísi upp, og skoran á
hlið teningagrindarinnar passi inn í stilligrópina
á vélinni. Setjið svo skurðarskífuna á öxulinn
og snúið henni þar til hún festist.
Setjið grænmetisskurðarbúnaðinn á vélina
þannig að textinn „Close Open" vísi á klukkan
5 miðað við frárásarop vélarinnar og snúið
HALLDE • User Instructions

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido