Descargar Imprimir esta página

VARILITE Icon Manual De Instrucciones página 51

Ocultar thumbs Ver también para Icon:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 28
Icon
bakkerfi / JUNIOR-bakstuðningur Notendahandbók
IS
UPPSETNING OG STILLING PÚÐA:
Þrýstingur púða:
1. Púðinn er blásinn upp með því að losa púðann undan þunga.
2. Opnaðu loftventilinn með því að snúa honum rangsælis.
3. Þegar púðinn hefur blásist upp að fullu skaltu loka loftventlinum með því að snúa honum réttsælis.
Púðinn stilltur:
1. Magn lofts í púða VARILITE-bakstuðnings er stillt með því að byrja á því að hafa púðann blásinn upp að fullu og
ventilinn lokaðan.
2. Komdu þér örugglega fyrir í hjólastólnum.
3. Snúðu ventlinum rangsælis til að opna hann og hleypa út lofti.
4. Lokaðu ventlinum þegar þú hefur fundið þá stöðu sem veitir mest þægindi og stuðning.
Púðinn fjarlægður:
1. Togaðu púðann upp til að losa áklæðið frá skelinni.
2. Losaðu handfangsflipann frá handfangsrenningnum innan í skelinni og togaðu flipann í gegnum raufina í skelinni.
3. Fjarlægðu bakpúðann af áfesta flipanum innan í áklæðinu.
Athugið: Uppsetning er gerð í öfugri röð við fjarlægingu.
BILANALEIT
Ef þörf er á frekari aðstoð skaltu kanna leiðbeiningar um uppsetningu Icon-bakkerfisins og JUNIOR-bakstuðnings eða hafa
samband við þjónustuver VARILITE.
ÞRIF OG SÓTTHREINSUN
Viðvörun: Ekki hreinsa bakstuðninginn með vörum sem innihalda fjórgreint ammóníum-, klór- eða
vetnisperoxíðssamband. Slíkar vörur geta skemmt bakstuðninginn.
Sótthreinsisefni skila ekki góðum árangri á gropnu yfirborði á borð við frauð eða við. Ef nauðsyn krefur má hreinsa það
með rökum klút. Ekki er auðvelt að sótthreinsa það og mismunandi einstaklingar mega EKKI nota það.
VARILITE mælir með því að nota 70% lausn af ísóprópýlalkóhóli sem sótthreinsiefni.
Þegar skelin er þrifin og sótthreinsuð skal forðast að vökvi berist undir brúnina.
Ferli við þrif og sótthreinsun áklæðis:
Sjá tákn um þvott í þessu skjali og á merkimiða vörunnar.
Ferli við þrif og sótthreinsun púða:
1. Handþvoðu púðann undir heitu kranavatni (40 °C) þar til öll sýnileg óhreinindi hafa verið fjarlægð. Notaðu mildan
uppþvottalög ef þess þarf. Endurtaktu ef þörf krefur.
2. Skolaðu púðann vandlega og allar leifar af sápunni.
3. Láttu púðann þorna í að minnsta kosti 30 mínútur.
4. Úðaðu alla púðann með 70% ísóprópýlalkóhóli og gættu þess að allt yfirborðið sé úðað.
5. Láttu púðann bíða í 10 mínútur með 70% ísóprópýlalkóhólinu.
6. Endurtaktu skref fjögur og fimm einu sinni í viðbót.
Gættu þess að púðinn hafi þornað að fullu áður en þú tekur hann aftur í notkun.
Ferli við þrif og sótthreinsun skeljar:
1. Handþvoðu skelina undir heitu kranavatni (40 °C) þar til öll sýnileg óhreinindi hafa verið fjarlægð. Notaðu mildan
uppþvottalög ef þess þarf. Endurtaktu ef þörf krefur.
2. Sótthreinsað er með því að úða með 70% ísóprópýlalkóhóli og tryggja að allt yfirborð sé bleytt. Látið skelina vera vota í
10 mínútur.
Gættu þess að skelin hafi þornað að fullu áður en þú tekur hann aftur í notkun.
FLUTNINGUR, FÖRGUN OG ENDURVINNSLA
Ef þú þarft að senda VARILITE-vöruna skaltu setja hana í plastpoka til að verja bakstuðninginn fyrir ögnum og óhreinindum og
setja hana svo í pappakassa fyrir flutning.
Þegar nýtingartíma VARILITE-vörunnar er lokið skal meðhöndla hana sem almennan úrgang og farga í samræmi við reglur sem
gilda á viðkomandi stað. Hafðu samband við næstu endurvinnslustöð til að komast að því hvort hægt sé að endurvinna vöruna.
UPPLÝSINGAR UM FRAMLEIÐANDA OG ÁBYRGÐ
Hafðu samband við söluaðilann eða dreifingaraðilann sem þú keyptir VARILITE-vöruna frá til að fá upplýsingar um vöruábyrgð.
Ein eða fleiri bandarísk og alþjóðleg einkaleyfi og vörumerki kunna að gilda um vörur, þar á meðal Icon
bakstuðning.
Ef alvarlegt vandamál kemur upp eða notandi verður fyrir meiðslum skaltu tilkynna þjónustuveri VARILITE um það. Ef þú býrð í
Evrópusambandinu skaltu auk þess tilkynna um það til framleiðanda eða dreifingaraðila og lögbæru yfirvaldi í því aðildarríki sem
þú býrð í.
Upplýsingar í þessari handbók gætu hafa breyst eftir prentun.
Nýjustu upplýsingar má finna á vefsvæði okkar, www.VARILITE.com.
Hægt er að skrá vöruna á vefsvæði okkar, www.VARILITE.com.
Cascade Designs, Inc.
4000 1st Ave South
Seattle, WA 98134,
Bandaríkjunum
Sími: (800) 827-4548
Bréfasími: (206) 343-5795
www.VARILITE.com
MDSS GmbH
Schiffgraben 41
30175 Hannover, Þýskalandi
LOFTVENTILL
bakkerfi og JUNIOR-
HANDFANGSFLIPI
OG RAUF Á SKEL
Leiðbeiningar um
þrif og sótthreinsun
áklæðis
Leiðbeiningar um
þrif á púða og skel
Leiðbeiningar um
þrif og sótthreinsun
á skel
©2021 Cascade Designs, Inc. #34-286-1

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Junior