IS
ACTIVE Pendelschirm –
Leiðarvísir fyrir uppsetningu
og notkun
Lestu þennan leiðarvísi fyrir
uppsetningu og notkun vandle-
ga til enda, einkum öryggisup-
plýsingarnar. Sé öryggisleiðbeiningunum
ekki fylgt getur það leitt til líkamstjóns eða
tjóns á sólhlífinni. Geymið leiðarvísi fyrir
uppsetningu og notkun til að nota síðar og
látið hana sömuleiðis fylgja með ef sólh-
lífin er afhent þriðja aðila.
Öryggi þitt
Hafðu eftirfarandi öryggisupplý-
singar í huga. Framleiðandinn er
ekki ábyrgur fyrir tjóni sem hlýst
af því að fara ekki eftir þeim.
Notaðu sólhlífina eingöngu með viðei-
gandi þyngingu (sjá „Tæknilegar upplý-
singar").
Stilltu sólhlífinni upp á föstu og sléttu
undirlagi.
Notaðu stöðuga undirstöðu fyrir sólhlífina.
Til þess hæfur, fullorðinn einstaklingur
skal setja sólhlífina upp.
Gættu þess að klemma ekki hendurnar
í fellibúnaðinum þegar þú opnar og lo-
kar sólhlífinni.
Í vindi eða stormi skal loka sólhlífinni og
festa hana með riflásnum. Annars gæ-
ti vindhviða feykt henni um koll með til-
heyrandi tjóni á henni og/eða öðrum
hlutum.
Lokaðu sólhlífinni þegar hún er ekki í not-
kun.
Ekki má vera opinn eldur fyrir neðan eða
í námunda við sólhlífina. Kviknað gæti
í sólhlífinni eða hún orðið fyrir skemm-
dum vegna fljúgandi neista. Haltu sólh-
lífinni frá miklum hita, s.s. geislahiturum,
grilli o.s.frv.
Sólhlífin er ekki leikfang. Börn geta klem-
mt sig á fingrum. Einnig er sólhlífin þung
og getur því valdið börnum skaða ef hún
dettur.
36
Ekki má hengja neitt á eða gera upphí-
fingar á þverslám sólhlífarinnar.
Sólhlífin getur varið húð þína fyrir bein-
ni útfjólublárri geislun en ekki fyrir endu-
rkasti slíkra geisla. Þess vegna er einnig
mælt með notkun sólarvarnar.
Til að vernda sólhlífina er mælst til þess
að henni sé lokað þegar rignir eða snjóar,
og hún fest með riflás.
Ekki má þvo yfirdekkið í þvottavél, með
kemískum efnum eða leggja í klór.
Ekki skal nota sterk kemísk hreinsief-
ni eða vökva, lausnir, gróft fægiefni eða
hluti, klór, háþrýstidælu og sterk þvotta-
efni.
Kynntu þér leiðbeiningar um umhirðu.
Notkun
Sólhlífin veitir vörn gegn beinni, út-
fjólublárri geislun. Henni er ekki ætlað að
veita vörn gegn rigningu eða snjó.
Sólhlífin er eingöngu til einkanota.
Ábyrgð fellur úr gildi við notkun í atvin-
nuskyni.
Sólhlífin sett saman
Í kassanum er að finna:
Þú þarft einnig:
8 steyptar hellur hver 50×
50 × 4 cm
Hægt er að fá hlífðarpoka fyrir sólhlífina
í fagverslunum ef með þarf.