Descargar Imprimir esta página

doppler Active 380 Instrucciones De Montaje página 29

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 21
Active 380 –
Leiðarvísir fyrir uppset-
ningu og notkun
Lestu þennan leiðarvísi fyrir
uppsetningu og notkun vand-
lega til enda, einkum öryg-
gisupplýsingarnar. Sé öryggisupplý-
singunum ekki fylgt getur það leitt til
líkamstjóns eða tjóns á sólhlífinni.
Geymið leiðarvísi fyrir uppsetningu og
notkun til að nota síðar og látið hana
sömuleiðis fylgja með ef sólhlífin er af-
hent þriðja aðila.
Öryggi þitt
Hafðu eftirfarandi öryggisupplý-
singar í huga. Framleiðandinn er
ekki ábyrgur fyrir tjóni sem hlýst
af því að fara ekki eftir þeim.
Notaðu sólhlífina eingöngu með viðei-
gandi þyngingu (sjá „Tæknilegar upplý-
singar").
Stilltu sólhlífinni upp á föstu og sléttu
undirlagi.
Notaðu stöðugan standfót fyrir sólhlífina.
Til þess hæfur, fullorðinn einstaklingur
skal setja sólhlífina upp.
Gættu þess að klemma ekki hendurnar
í fellibúnaðinum þegar þú opnar og lo-
kar sólhlífinni.
Í vindi eða stormi skal loka sólhlífinni og
festa hana með festibandinu. Annars
gæti vindhviða feykt henni um koll með
tilheyrandi tjóni á henni og/eða öðrum
hlutum.
Ekki má vera opinn eldur fyrir neðan eða
í námunda við sólhlífina. Kviknað gæti
í sólhlífinni eða hún orðið fyrir skemm-
dum vegna fljúgandi neista. Haltu sólh-
lífinni frá miklum hita, s.s. geislahiturum,
grilli o.s.frv.
Sólhlífin er ekki leikfang. Börn geta klem-
mt sig á fingrum. Einnig er sólhlífin þung
og getur því valdið börnum skaða ef hún
dettur.
Ekki má hengja neitt á eða gera upphí-
fingar á þverslám sólhlífarinnar.
Sólhlífin getur varið húð þína fyrir bein-
ni útfjólublárri geislun en ekki fyrir endu-
rkasti slíkra geisla. Þess vegna er einnig
mælt með notkun sólarvarnar.
Til að vernda sólhlífina er mælst til þess
að henni sé lokað þegar rignir eða snjóar,
og hún fest með festibandi.
Ekki má þvo yfirdekkið í þvottavél, með
kemískum efnum eða leggja í klór.
Ekki skal nota sterk kemísk hreinsief-
ni eða vökva, lausnir, gróft fægiefni eða
hluti, klór, háþrýstidælu og sterk þvotta-
efni.
Kynntu þér leiðbeiningar um umhirðu.
Notkun
Sólhlífin veitir vörn gegn beinni, út-
fjólublárri geislun. Henni er ekki ætlað að
veita vörn gegn rigningu eða snjó.
Sólhlífin er eingöngu til einkanota.
Sólhlífin sett saman
Aðgættu!
– Notaðu viðeigandi undirstöðu fyrir
sólhlífina – hafðu í huga leiðbeiningar
framleiðanda undirstöðunnar.
1. Berðu nokkra dropa af olíu á skrúf-
gang 3 neðri stangarinnar 4 (sjá
mynd A).
2. Settu neðri stöngina 4 í sveifarhús 2
sólhlífarmastursins 1 og skrúfaðu ha-
na saman með því að snúa henni rétt-
sælis (sjá mynd A).
3. Settu sólhlífarmastrið 1 með neðri
stönginni 4 í undirstöðuna (sjá
mynd B) og festu ef með þarf (sjá le-
iðbeiningar um samsetningu undir-
stöðunnar).
IS
29

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

444438