Descargar Imprimir esta página

Gardol GEK-E 2240 Manual De Instrucciones Original página 248

Ocultar thumbs Ver también para GEK-E 2240:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 61
5. Fyrir notkun
Gangið úr skugga um að rafrásin sem notuð er
passi við þær upplýsingar sem gefnar eru upp á
upplýsingarskilti tækisins.
Takið tækið úr sambandi við straum áður en
að það er stillt.
Varúð! Tengið keðjusögina fyrst við rafmagn
þegar að búið er að setja hana saman að fullu og
búið er að spenna sagarkeðjuna.
Notið ávalt hlífðarvettlinga þegar að unnið er
með keðjusöginni til þess að minnka hættuna á
slysum.
5.1 Samsetning sverðs og sagarkeðju
Takið hlutina varlega úr umbúðunum og gan-
gið úr skugga um að enga hluti vanti (myndir
2-3).
Losið festiskrúfu fyrir keðjuhjólshlíf (mynd 4).
Fjarlægið keðjuhlífina (mynd 5).
Leggið keðjuna ofan í umlyggjandi keðjus-
týringu (mynd 6 / staða A).
Setjið sverð með sagarkeðjunni eins og sýnt
er á mynd inn í festinguna (mynd 6). Um leið
verður að þræða keðjuna utan um tannhjólið
(mynd 6 / staða B).
Setjið keðjuhjólahlífina aftur á sinn stað og
herðið festiskrúfuna (mynd 7) lauslega. Varúð!
Herðið festiskrúfuna til fulls eftir að búið er að
spenna sagarkeðjuna (sjá lið 5.2).
5.2 Sagarkeðja spennt
Varúð! Takið tækið ávallt úr sambandi við straum
áður en að það er yfi rfarið og stillt. Notið ávallt
hlífðarvettlinga þegar að unnið er að keðjusöginni
til þess að koma í veg fyrir meiðsl.
Losið festiskrúfu keðjuhjólshlífar um nokkra
snúninga (mynd 4).
Stillið keðjuspennuna með keðjuspennuskrú-
funni (mynd 8). Réttsælis snúningur eykur
spennuna, rangsælis snúningur losar um sa-
garkeðjuna. Sagarkeðjan er rétt spennt þegar
að hægt er að lyfta henni um það bil 3-4mm á
miðju sverðinu (mynd 9).
Herðið aftur festiskrúfu keðjuhjólahlífarinnar
(mynd 7).
Varúð! Allir hlekkir sagarkeðjunnar verða að
liggja rétt ofan í keðjustýringunni.
Tilmæli varðandi keðjuspennu:
Sagarkeðjan verður að vera rétt spennt til þess að
geta tryggt örugga notkun á tækinu. Rétta spennu
er hægt að sjá með því að ef hægt er að lyfta keð-
Anl_GEK_E_2240_SPK7.indb 248
Anl_GEK_E_2240_SPK7.indb 248
IS
junni 3-4mm upp á miðju sverðinu.
Sagarkeðjan hitnar við notkun og við það breytir
hún lengd sinni, yfi rfarið því spennuna á 10
mínútna fresti og breytið henni ef þörf er á. Þetta á
sérstaklega við um nýjar sagarkeðjur. Slakið á sa-
garkeðjunni eftir notkun því hún styttist þegar að
hún kólnar. Við það er hægt að komast í veg fyrir
að sagarkeðjan skemmist.
5.3 Smurning sagarkeðjunnar
Varúð! Takið tækið ávallt úr sambandi við straum
áður en að það er yfi rfarið og stillt. Notið ávallt
hlífðarvettlinga þegar að unnið er að keðjusöginni
til þess að koma í veg fyrir meiðsl.
Varúð! Notið keðjusögina aldrei án olíu! Ef keð-
jusögin er notuð án olíu eða þegar að þegar að
yfi rborð olíu er undir lágmarki á kvarða (mynd 10 /
staða B) leiðir það til skemmda á sagarkeðjunni!
Varúð! Fylgist með hitastigi:
Mismunandi hitastig kalla á smurningu með
mismunandi þykktarleika. Við lágan hita þarf að
nota þunnar olíur (lág segja) til þess að geta til að
mynda nægjanlega góða olíufi lmu. Ef sama olía er
notuð að sumarlagi, þynnist hún einungis vegna
umhverfi shita. Þess vegna getur olíufi lman ekki
haldist, keðjan ofhitnar og getur skemmst. Auk
þess brennur olían og myndar mengun.
Olíugeymir fylltur:
Leggið sagarkeðju á sléttan flöt.
Hreinsið svæðið í kringum olíuáfyllingaropið
(mynd 10 / staða A) og opnið það.
Fyllið olíugeymi með olíu. Athugið að það
komist ekki óhreinindi ofan í olíugeyminn þar
sem að það myndi stífla olíustút.
Lokið olíuloki.
6. Notkun
6.1 Tæki tengt við rafmagn
Tengið rafmagnsleiðslu við viðgeigandi fram-
lengingarleiðslu. Athugið að framlengingar-
leiðsla sé nægilega góð fyrir afl tækisins.
Þræðið framlengingarleiðslu eins og sýnt er á
mynd 12 til þess að hlífa henni og koma í veg
fyrir að hún detti úr sambandi.
Tengið framlengingarleiðsluna við viðeigandi
tryggða inntungu.
- 248 -
13.10.2023 11:49:20
13.10.2023 11:49:20

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

45.017.41