Descargar Imprimir esta página

Zapf Creation Baby Born 820704 Manual Del Usuario página 17

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 8
Ábendingar
Ef hárið flækist í bendla má losa úr þeim og bursta hárið hægt og hægt frá endum til róta.
Þannig er best að koma í veg fyrir að hárið myndi flóka eða göndla.
Athugið!
Hárið á BABY born® Sister er úr nælonþráðum og má því ekki komast í snertingu við hita,
eins og t.d. heitt vatn, heitt loft úr hárþurrkara eða heitt krullujárn. Ekki má nota hárlit eða
skol á hárið á BABY born® Sister. Ekki ætti heldur að nota hárlakk, hárúða, lakk eða gel
í hárið.
Hún getur drukkið og grátið
BABY born® Sister getur drukkið og grátið í alvörunni. Til þess þarf að fylla pelann sem fyl-
gir með hreinu neysluvatni. Þegar BABY born® Sister er gefið að drekka á að halda henni
uppréttri. Gefið henni ekkert annað en vatn að drekka. Allir aðrir vökvar geta stíflað slöngur-
nar og vatnsgeyminn innan í brúðunni. Munnstykkið þarf að skrúfa fast á pelann. Til að gefa
BABY born® Sister að drekka þarf að stinga pelanum djúpt inn í munninn á henni. Með því
að þrýsta á hliðarnar á pelanum getur BABY born® Sister drukkið um það bil 2/3 úr honum.
Til þess að BABY born® Sister geti grátið raunverulegum tárum þarf að þrýsta nokkrum
sinnum þétt á hægri handlegginn á henni.
Hún fer í bað
Hægt er að baða BABY born® Sister í baðkerinu eða taka hana með í sundlaugina. Hins
vegar ætti ekki að setja hana á kaf í vatnið. BABY born® Sister ætti ekki að vera lengi ein
og án eftirlits í beinu sólarljósi (hám. 1 klst.).
Áður en BABY born® Sister er böðuð þarf að ganga úr skugga um að ventillinn á bakinu á
henni sé lokaður (skoran á lokinu á að vera lóðrétt). Til að baða hana á eingöngu að nota
kalt eða volgt vatn og venjuleg baðefni sem henta fyrir börn. Ekki ætti að leika sér með
BABY born® Sister lengur en 1 klukkustund í baðvatni né heldur í klórblönduðu eða söltu
vatni, því þá er ekki hægt að útiloka kemísk áhrif eða upplitun á efni brúðunnar. Eftir baðið
ætti að skola BABY born® Sister (líka hárið) með hreinu vatni.
Ef vatn skyldi komast inn í brúðuna í baðinu má þurrka BABY born® Sister aftur á eftirfaran-
di hátt: Opnið snúanlega lokið á bakinu á BABY born® Sister með skrúfjárni eða smápen-
ingi (með því að skrúfa það rangsælis) og togið það svolítið út. Lokið er ekki hægt að taka
alveg af! Með því að hrista brúðuna gætilega til og frá (snúið bakinu niður!) má ná vatninu
úr henni. Þetta þarf að endurtaka nokkrum sinnum. Ef þarf má láta brúðuna liggja í nokkrar
klukkustundir með ventilinn opinn til þess að fullþurrka hana að innan. Þegar brúðan hefur
verið þurrkuð er ventlinum lokað aftur með því að snúa lokinu réttsælis til baka.
Mikilvægt
1. BABY born® Sister hentar ekki sem flothjálp í sundi.
2. Notið hvorki húðkrem né aðrar snyrtivörur á BABY born® Sister.
3. Gætið þess að hárið á brúðunni þorni vel eftir baðið.
Hvernig BABY born® Sister er hreinsuð
Til að hreinsa brúðuna að utan má nota klút vættan í vatni með venjulegum uppþvottalegi.
LT
Mieli Tėveliai,
Sveikiname Jus įsigijus Zapf Creation AG firmos gaminį. Patariame prieš pradedant nau-
doti rūpestingai perskaityti naudojimo instrukciją ir išsaugoti ją bei pakuotę tam atvejui, jei
jų prisireiktų vėliau.
FUNKCIJOS
Judrumas
Turėdama judrius sąnarius rankose, kojose ir prie galvos, BABY born® Sister yra gana
judri. Ji gali pati stovėti arba patogiai sėdėti (Pav.1&2).
17

Publicidad

loading