ResMed Astral Guia Del Usuario página 168

Batería externa
Ocultar thumbs Ver también para Astral:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 306
Tvær ytri rafhlöður notaðar með Astral tækinu
Hægt er að tengja aðra ytri rahlöðu við Astral tækið til að fá 8
klukkustundir til viðbótar af afli við dæmigerða notkun. Hægt er
að tengja að hámarki tvær rafhlöður við Astral tækið.
VARÚÐ
Ekki reyna að tengja fleiri en tvær ytri rafhlöður. Skilaboð á
Astral tækinu sem eiga sérstaklega við rafhlöðuna koma ekki
á öðrum viðbótareiningum.
Sjá mynd C.
1. Tengdu jafnstraumsúttakskapal fyrri ytri rafhlöðunnar í
jafnstraumsinntak Astral.
2. Tengið jafnstraumsúttakskapal seinni ytri rafhlöðunnar í
jafnstraumsinntak fyrri ytri rafhlöðunnar.
3. Tengið riðstraumskapalinn við jafnstraumsinntak seinni ytri
rafhlöðunnar.
4. Stingdu hinum enda riðstraumskapalsins í rafveituinnstungu.
Hleðsluröð
1. Innri rafhlaða Astral tækisins er hlaðin fyrst.
2. Þegar innri rafhlaðan er fullhlaðin er ytri rafhlaðan (rafhlaða 1)
hlaðin næst.
3. Ef önnur ytri rafhlaða (rafhlaða 2) er tengd þá er hún hlaðin eftir
að rafhlaða 1 er fullhlaðin.
Athugið: Rafhlöðurnar afhlaðast í öfugri röð (þ.e. innri rafhlaðan
er afhlaðin síðast).
Uppsetning fyrir færanlega notkun
Ytri rafhlaðan er tilvalin fyrir færanlega notkun (þ.e. með hjólastól)
þegar gæti verið þörf á varaafli fyrir Astral tækið. Í færanlegum
kringumstæðum skal athuga reglulega með hleðsluna á ytri
rafhlöðunni.
Athugið: Flutningstaskan er með hólf sem rúmar aðeins eina ytri
rafhlöðu. Ef ferðast er með fleiri en eina ytri rafhlöðu skal bíða
þar til fyrsta ytri rafhlaðan er tóm (sem gefið er til kynna með
viðvörun um notkun innri rafhlöðu) áður en skipt er yfir í aðra ytri
rafhlöðu. Astral tækið heldur áfram öndunaraðstoð með því að
nota innri rafhlöðuna meðan skipt er um ytri rafhlöðu.
Rafhlaða 1
8 klst.
Rafhlaða 2
+ 8 klst.
Íslenska
5

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido