*
Alltaf þarf að hafa í huga að Elli Smiles fylgihlutir og leikföng henta ekki handa raunverulegum hvítvoðungum
og smábörnum.
*
Hægt er að hreinsa höfuðið, handleggina, fæturnar og taulíkaman með rökum (ekki blautum) klút.
Vinsamlegast baðið ekki Elli Smiles og þvoið hana aldrei í þvottavél. Hægt er að þvo samfestinginn í
handþvotti.
Allt um rafhlöður/hleðslurafhlöður
•
Notið alkaline rafhlöður til að tryggja betri gæði og lengri endingu.
•
Notið eingöngu rafhlöður sem mælt er með fyrir vöruna.
•
Látið fullorðna eingöngu sjá um að skipta um rafhlöður.
•
Gætið að rafhlöðurnar snúi rétt (+ og -).
•
Blandið ekki saman mismunandi tegundum af rafhlöðum.
•
Ekki nota endingarstuttar rafhlöður.
•
Ef tækið er ekki notað í nokkurn tíma, stillið takkann á "OFF" til að rafhlöðurnar lifi lengur. Við mælum einnig
með að rafhlöðurnar séu fjarlægðar til að koma í veg fyrir leka og eyðileggingu á vörunni.
•
Ekki blanda saman hleðslurafhlöðum og venjulegum rafhlöðum.
•
Hlaðið ekki venjulegar rafhlöður.
•
Ónýtar rafhlöður þarf að fjarlægja úr leikfanginu og henda í sérstaka endurvinnslutunnu.
•
Haldið rafhlöðum frá eldi þar sem þau geta lekið eða sprungið.
•
Ef vatn kemst í rafhlöðuhólfið, þurrkið með klút.
•
Hleðslurafhlöður þarf að fjarlækja úr leikfanginu áður en þau eru hlaðin.
•
Hleðslurafhlöður þarf að hlaða undir eftirliti fullorðinna.
Tíðniband: 2407 – 2477 MHz
Hámarksafl fjarskiptatíðni: Keðja: -21.73 dBm, Brúða: -18.04 dBm
Athugið:
Gefið Elli Smiles aldrei neitt annað en hreint vatn!!!
Þegar brúðan fær pelann þarf alltaf að gæta þess að honum sé stungið nægilega djúpt upp í munninn.
Einnig þarf að hafa í huga að vegna þess að brúðan getur ekki sogið vatn sjálf þarf að þrýsta á hliðarnar
á pelanum. Brúðan drekkur best með því að þrýsta saman pelanum og slaka á til skiptis. Það tryggir að
vatnsgeymirinn innan í brúðunni fyllist jafnt aftur.
Undirbúningur
Innsetning á rafhlöðum skal gerð af fullorðnum sem hér segir:
1. Stillið rofann á rafhlöðuhólfinu á "OFF". (Fig. 1)
2. Notið skrúfjárn til að opna rafhlöðuhólfið. (Fig. 1)
3. Setjið 3x 1.5V AA (LR6) rafhlöður. Vinsamlega athugið að rafstyrkurinn er réttur. (Fig. 2)
4. Skrúfið lokið á rafhlöðuhólfið á aftur. (Fig. 1)
5. Stillið rofann á rafhlöðuhólfinu á "ON". (Fig. 3)
Aðgerðir
Til að geta notað möguleika Elli Smiles, kveikið á rofanum (ON) á rafhlöðuhylkinu innan í dúkkunni. Strax og
kveikt er á Elli Smiles, heyrast barnahljóð frá henni. Elli Smiles hagar sér eins og alvöru barn, með raunsæjum
barnahljóðum og sætri andlitstjáningu.
Til að virkja möguleika hálsmensins, ýtið á hnapp hálsmensins eða að brúðumamman setur það um eigin háls.
Púlsandi ljós lætur í ljós að hálsmenið er núna virkt. Hálsmenið mun koma á tengingu við brúðuna sem kveikt er á.
Strax og það gerist, mun Elli Smiles brosa, segja Mamma og hlæja. Tengingin heldur yfir fjarlægð sem nemur 1/2
metra. Þegar menið er tengt, en ekki er verið að leika við hana, skiptir hún eftir eina mínútu yfir í biðham. Eftir 5
mínútur í viðbót slekkur hún sjálfkrafa á sér. Til að endurræsa hálsmenið, verður að ýta á hnappinn á hálsmeninu
aftur, eða bera það.
Elli Smiles getur:
•
drukkið alvöru vatn úr flöskunni sinni. Við það hreyfir hún munninn og gefur frá sér kyngingarhljóð. Eftir
drykkjuna þarf Elli Smiles að ropa. Stundum þrýstir maginn svo mikið á, að hún byrjar að gráta. Sjá atriði 3
Grátur. (Mynd 1 og 2)
Mikilvægt:
Gefið Elli Smiles einungis hreint vatn að drekka!!!
Þegar brúðan fær pelann þarf alltaf að gæta þess að honum sé stungið nægilega djúpt upp í
munninn.
39