Ekki má setja hleðslustöðina upp í
–
umhverfi þar sem ammoníak eða loft
sem inniheldur ammoníak er fyrir
hendi.
Ekki má setja hleðslustöðina upp á
–
IS
stöðum þar sem hætta er á að hlutir
falli á hana (t.d. kaplatromlur eða
dekk) og hún verði fyrir skemmdum.
Hleðslustöðin hentar til notkunar
–
innandyra, t.d. í bílskúrum, og á
skjólgóðum stöðum utandyra, t.d. í
bílskýlum. Ekki má setja hleðslustöðina
upp nálægt búnaði sem sprautar vatni,
t.d. bílaþvottastöðvum, háþrýstidælum
eða garðslöngum.
Verja skal hleðslustöðina fyrir regni til
–
að koma í veg fyrir skemmdir af
völdum frosts, hagls eða álíka.
Verjið hleðslustöðina fyrir beinu
–
sólarljósi. Hátt hitastig getur minnkað
hleðslustrauminn eða eftir atvikum
stöðvað hleðsluna.
Velja skal uppsetningarstað fyrir
–
hleðslustöðina með það í huga að ekki
sé hætta á að farartækjum sé ekið á
hana í ógáti. Ef ekki er hægt að útiloka
skemmdir verður að gera viðeigandi
varúðarráðstafanir.
64
Ef hleðslustöðin verður fyrir
–
skemmdum við uppsetningu verður að
taka hana úr notkun. Skipta verður
búnaðinum út.
2.4
Öryggisupplýsingar
varðandi tengingu við
rafmagn
Virðið gildandi lagakröfur um raflagnir,
–
eldvarnir, öryggisreglur og flóttaleiðir á
fyrirhuguðum uppsetningarstað. Fylgið
gildandi reglum um uppsetningu í
hverju landi.
Hver hleðslustöð verður að vera varin
–
með eigin lekastraumsrofa og sjálfvari
í rafkerfinu sem hún er tengd við. Sjá
"Kröfur til uppsetningarstaðar á bls.
68".
Áður en hleðslustöðin er tengd við
–
rafmagn skal ganga úr skugga um að
ekki sé spenna á rafmagnstengingum.
Þegar hleðslustöðin er sett í gang í
–
fyrsta sinn skal ekki tengja bíl við hana
strax.
Gangið úr skugga um að notaður sé
–
réttur rafstrengur fyrir tengingu við
veitukerfi rafmagns.
Skiljið hleðslustöðina ekki eftir án
–
eftirlits með uppsetningarhlífina opna.
Ekki má setja hleðslustöðina upp án
–
uppsetningargrindar.
Þegar stillingu DIP-rofa er breytt
–
verður að vera slökkt á búnaðinum.
Gætið að mögulegri tilkynningaskyldu
–
gagnvart rafveitu.
2.5
Öryggisupplýsingar
varðandi fyrstu
gangsetningu
Rafvirki verður að sjá um að taka
–
hleðslustöðina í notkun.
Áður en hleðslustöðin er tekin í
–
notkun skal rafvirki ganga úr skugga
um að hún sé rétt tengd.
Áður en hleðslustöðin er tekin í
–
notkun skal athuga með sýnilega
ágalla eða skemmdir á
hleðslusnúrunni, hleðsluklónni og
hleðslustöðinni. Ef skemmdir eru á
hleðslustöðinni, hleðslusnúrunni eða
hleðsluklónni má ekki taka búnaðinn í
notkun.
3
Lýsing á búnaðinum
Í þessum notkunar- og
uppsetningarleiðbeiningum er fjallað um
Webasto Pure-hleðslustöðina. Nákvæm
lýsing á búnaðinum kemur fram á
upplýsingaplötu hleðslustöðvarinnar.
Sjá einnig Mynd 1
5110159D Webasto Pure