ÍSLENSKA
Fyrirhuguð notkun
Með hleðslusnúrunni er hægt að hlaða raf- og tvinnbíla,
hér eftir nefndir „bílar", með viðeigandi hleðslubúnaði með
hleðslustaðarmerkingu C samkvæmt DIN EN 17186.
Ef vafi leikur á um hvort hleðslubúnaðurinn er af
réttri gerð skal láta rafvirkja ganga úr skugga um
það.
Önnur notkun er ekki fyrirhuguð og er því óheimil.
Hleðslusnúran er ekki notuð með öruggum hætti
nema að farið sé eftir því sem fram kemur í þessum
notkunarleiðbeiningum og fylgiskjölum bílsins.
f Lesa skal notkunarleiðbeiningarnar og fylgiskjöl bílsins
áður en byrjað er að nota hleðslusnúruna.
f Fylgja skal leiðbeiningunum sem þar koma fram við
notkun hleðslusnúrunnar.
Ef leiðbeiningum er ekki fylgt getur það haft slys á fólki
eða tjón í för með sér, t.d. vegna raflosts, skammhlaups
eða eldsvoða.
Röng notkun
Röng notkun eykur hættu á slysum á fólki og tjóni. Einkum
er óheimilt að:
Breyta hleðslusnúrunni eða eiga við hana með öðrum
hætti.
Tengja hleðslusnúruna við rangan eða bilaðan
hleðslubúnað, sem er til dæmis ekki gerður fyrir
viðeigandi stöðugt álag.
Nota hleðslusnúru sem er í ólagi.
Notandi ber sjálfur ábyrgð á öllum slysum á fólki og tjóni
sem rekja má til rangrar notkunar.
Ábyrgð MENNEKES Stecker GmbH & Co. KG nær ekki
til mistaka við stjórnun og tjóns sem rekja má til rangrar
notkunar.
57
Mikilvægar öryggisupplýsingar
Sjá kápu – mynd 1.
Aðstæðurnar sem sýndar eru á mynd 1 eru
bannaðar. Ef ekki eru gerðar ráðstafanir til að
forðast þessar aðstæður er hætta á því að slys
og tjón eigi sér stað.
Haldið börnum frá hleðslusnúrunni.
Haldið dýrum frá hleðslusnúrunni.
Ekki má nota millistykki eða framlengingarsnúrur.
Tengja skal hleðslusnúruna við hleðslubúnað sem er í
lagi og af réttri gerð.
Ekki má nota hleðslusnúruna í sprengifimu umhverfi.
Tæknilýsing
Heiti
Mode 3-hleðslusnúra
(gerð 2 / gerð 1)
Mode 3-hleðslusnúra
(gerð GB)
Málspenna (gerð 2)
Málspenna (gerð GB)
Málspenna (gerð 1)
Máltíðni
Málstraumur
(gerð 2 + gerð 1)
Málstraumur (gerð GB)
Hleðsluafl
Varnarflokkur
(gerð 2 / gerð 1)
Varnarflokkur (gerð GB)
Umhverfishitastig
Geymsluhitastig
f Sjá einnig upplýsingaspjaldið á hleðslubúnaðinum.
Gildi
Staðall IEC 61851
Staðall IEC 62196
Staðall GB/T 20234
hám. 480 V AC
hám. 440 V AC
hám. 250 V AC
50 Hz / 60 Hz
20 A / 32 A
16 A / 32 A
4,6 – 22 kW
IP20 (ekki í sambandi)
IP44 (í sambandi)
IP44 (með loki)
IP20 (ekki í sambandi)
IP55 (í sambandi)
IP54 (með loki)
-30 ... +50 °C
-30 ... +50 °C