HREINSUN BRENNARASAMSTÆÐU
Skrúfaðu fyrir gasið með stjórnhnappinum og aftengdu gaskútinn.
Fjarlægðu eldunarpönnuna.
Hreinsaðu brennarann með mjúkum klút eða þrýstilofti og strjúktu með klút.
Hreinsaðu stífluð tengi með pípuhreinsi eða stífum vír (til dæmis bréfaklemmu sem búið er
að rétta úr).
Athugaðu hvort einhverjar skemmdir séu á brennurum (sprungur eða holur). Ef einhverjar
skemmdir finnast skal skipta um brennara. Settu upp nýjan brennara, gakktu úr skugga um
að op á ventlum snúi rétt og séu tryggilega fest innan í brennarainntakinu (þrengslaröri).
Í sumum tilfellum blossar logi vegna skordýrs í þrengslaröri eða köngulóarvefs í
brennaranum. Leysa má úr þessu með því að setja flöskubursta inn í þrengslarörið og
ýta því inn í brennarann. Ef það leysir ekki vandann skaltu hafa samband við söluaðila
gaskútsins.
VIÐGERÐIR
Hæfur og viðurkenndur aðili skal sinna viðgerðum á gasknúnu steikingarpönnunni.
101