Descargar Imprimir esta página

cozze 90514 Manual De Usuario página 94

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 52
MIKILVÆGT
Lestu eftirfarandi leiðbeiningar vandlega og gakktu úr skugga um að uppsetning, samsetning
og viðhald steikingarpönnunnar séu í samræmi við þær. Ef þessum leiðbeiningum er ekki
fylgt getur það leitt til alvarlegs líkamstjóns og/eða eignatjóns.
Ef spurningar vakna um samsetningu eða notkun skaltu hafa samband við söluaðila
steikingarpönnunnar eða gaskútsins.
Ekki má kveikja á steikingarpönnunni með lokið niðri.
Tækið og gaskúturinn verða að vera á sléttu yfirborði og ekki má nota þau á meðan kveikt er
á tækinu.
Skipta skal um gaskút fjarri hvers konar kveikjuvaldi.
Ráðlagt er að nota hlífðarhanska við meðhöndlun mjög heitra hluta.
Notandi má ekki eiga við hluta sem eru innsiglaðir af framleiðanda eða fulltrúa hans.
ATHUGASEMD FYRIR NEYTENDUR: Geymið leiðbeiningarnar til síðari nota.
NOTKUN OG EINKENNI
Steikingarpannan er örugg og einföld í notkun. Nota skal bútangas við 28-30 mbör,
própangas við 37 mbör, bútan-/própanblöndu við 30 mbör, bútan-/própanblöndu við 37
mbör og bútan-/própanblöndu við 50 mbör. Gættu þess að nota steikingarpönnuna við þann
þrýsting sem tækið er hannað fyrir.
Elda má mat á steikingarpönnunni bæði með lokið uppi eða niðri. Þegar lokið er niðri skal
hafa sérstakar gætur á því að mikill hiti getur myndast.
Settu fitubakka undir kassann.
Nægileg loftun er nauðsynleg fyrir bruna og skilvirka notkun steikingarpönnunnar. Slíkt
tryggir öryggi notandans og annarra í námunda við pítsuofninn þegar hann er í notkun.
Aldrei má nota tækið á lokuðu svæði.
Þegar vindhraði er meiri en 2 m/sek. má steikingarpannan ekki snúa í átt að vindi þegar
hann er notaður.
Tækið er eingöngu gert fyrir notkun utandyra.
Ekki breyta tækinu.
94

Publicidad

loading