Descargar Imprimir esta página

cozze 90514 Manual De Usuario página 97

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 52
KVEIKT Á STEIKINGARPÖNNUNNI
1. Lyftu lokinu áður en þú kveikir á steikingarpönnunni.
2. Tengdu gaskútinn við steikingarpönnuna með því að fylgja leiðbeiningum sem fylgdu
með þrýstijafnaranum.
3. Snúðu öllum stjórnhnöppunum á „OFF".
4. Skrúfaðu frá gasinntaki á gaskútinum eða þrýstijafnaranum með því að fylgja
leiðbeiningunum um tengingu og notkun þrýstijafnarans. Athugaðu hvort tenging
gaskútsins við þrýstijafnarann og tenging slöngunnar við steikingarpönnunnar leki
með því að nota sápuvatn. Ef leki er til staðar sjást sápukúlur á svæði lekans. Ef leki
finnst skal ekki nota steikingarpönnuna. Hafðu samband við söluaðila gaskútsins eða
steikingarpönnunnar til að fá ráðleggingar.
5. Til að kveikja á vinstri brennaranum skaltu halda stjórnhnappi vinstri brennarans inni og
snúa honum rangsælis um 90 gráður (staða fyrir fullan kraft). Smellur heyrist og þá ætti
að kvikna á brennaranum. Gakktu úr skugga um að það hafi kviknað á brennaranum. Ef
ekki skaltu endurtaka ferlið.
6. Ef ekki kviknar á brennaranum eftir tvær tilraunir skal skrúfa fyrir gasið og bíða í 5
mínútur þar til reynt er aftur.
7. Ef það hefur kviknað á brennaranum er hægt að stilla styrk brunans með því að ýta
hnappinum niður og snúa honum rangsælis á stöðu milli mikils og lítils styrks.
8. Kveikt er á hægri brennaranum með því að endurtaka ofangreint ferli.
9. Slökkt er á steikingarpönnunni með því að snúa handfangi gaskútsventilsins eða
þrýstijafnarans á „OFF" í samræmi við leiðbeiningar þrýstijafnarans. Þegar slokknað
hefur á brennurunum skaltu snúa öllum stjórnhnöppunum á „OFF".
Viðvörun: Ef ekki kviknar á brennara skaltu slökkva með stjórnhnappinum (snúa honum
réttsælis) og skrúfa einnig fyrir gaskútsventilinn. Bíddu í fimm mínútur áður en þú reynir aftur
kveikja á brennurunum.
Eftir notkun skaltu skrúfa fyrir gasinntak með því að annaðhvort slökkva með rofa
þrýstijafnarans eða skrúfa fyrir gaskútsventilinn.
Ef blossar koma upp á meðan tækið er í notkun. Snúðu öllum stjórnhnöppunum,
gaskútsventlinum og rofa þrýstijafnarans á „OFF". Bíddu í 5 mínútur áður en þú reynir aftur
kveikja upp í tækinu. Ef vandinn er enn til staðar eftir að aftur hefur verið kveikt upp í tækinu
skaltu hafa samband við söluaðila gaskútsins eða steikingarpönnunnar, eða viðurkenndan
tæknimann sem gefur veitt aðstoð eða gert við tækið. Ekki reyna að leysa vandamál upp á
eigin spýtur þar sem það gæti valdið alvarlegu líkamstjóni og/eða eignatjóni.
Hreinsaðu umframfitu af tækinu áður en það er sett í geymslu með því að nota rakan klút
með mildu hreinsiefni.
Geymdu tækið á hreinum og þurrum stað.
Ekki geyma gaskútinn innandyra. Geymist á vel loftræstum stað fjarri sólarljósi.
97

Publicidad

loading