NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Hällde RG-30
(IS)
AÐVÖRUN!
Gætið þess að koma ekki nærri beittum
hnífum og hreyfanlegum hlutum með
höndunum.
Lyftið alltaf vélinni upp á báðum
handföngum (A17) á hliðum
vélarhússins.
Stingið aldrei höndum ofan í stóra
matarahólfið (A4) né matarapípuna
(A2).
Notið alltaf stautinn (A1) þegar
matarapípan (A2) er notuð.
Stöðvið alltaf vélina með því að snúa
hraðastilli (A15) í stöðu "0" og draga
síðan út tengilinn eða loka straumrofa
áður en vélin er hreinsuð.
Haldið ævinlega í handfang matarans
(A3) þegar matarinn (A5) er opnaður
eða honum lokað.
Einungis löggiltir fagmenn mega gera
við vélina og opna vélarhúsið (A16).
Útpökkun.
Gangið úr skugga um að allir hlutar fylgi vélinni,
að vélin sé í lagi og að ekkert hafi skemmst í
flutningi. Athugasemdir verða að hafa borist selj-
anda vélarinnar innan átta daga.
Uppsetning.
Tengið vélina við rafstraum með réttri uppgefinni
spennu í samræmi við upplýsingar á kenniplötu
aftan á vélarhúsinu (A16).
Komið vélinni fyrir á stöðugum bekk eða borði
sem er 650-900 mm hátt.
Festið vegghengi (E) fyrir skurðarverkfærin (A6-
A12) og frárásarskífu (A1 3) á vegginn nálægt
vélinni.
Öryggiseftirlit áður en matarinn
(A15) er tekinn í notkun.
Fjarlægið matarann (A5), e.t.v. skurðarverkfæri
(A6-A12) og frárásarskífu (A13) samkvæmt
fyrirmælum undir fyrirsögninni "Sundurtekt matar-
ans" og gangið síðan úr skugga um að vélin fari
ekki í gang þegar hraðastillinum (A15) er snúið í
stöðu "I".
Leggið matarann (A5) ofan á vélarhúsið (A16)
þannig að textinn "Close Open" lendi "klukkan
fimm" miðað við frárásarop vélarhússins (mynd
D1) og þrýstið mataranum réttsælis þangað til
hann stöðvast og matarinn situr fastur (mynd D2).
Gangið síðan úr skugga um að vélin stöðvist
þegar matarahandfanginu (A3) er lyft upp og fari
aftur í gang þegar matarahandfangið er fellt niður,
ef hraðastillir er í stöðu "I".
Snúið hraðastilli í stöðu "I" og lyftið
matarahandfanginu upp og gangið úr skugga um
að öxullinn (A14) hætti þá að snúast innan fjögurra
sekúndna.
Ef eitthvað reynist ekki í lagi ber að kalla til
viðgerðarmann áður en vélin er tekin í notkun.
Matarinn (A5).
Matarinn er notaður ásamt tilheyrandi
skurðarverkfærum (A6-A12) til að sneiða, skera í
teninga, strimla og rífa ávexti, grænmeti, þurrt
brauð, ost, hnetur og/eða sveppi.
Stóra matarahólfið (A4) er fyrst og fremst notað til
að meðhöndla kartöflur, lauk o.s.frv., einnig til að
skera stærri matvöru eins og kál. Stóra
matarahólfið er einnig notað ef skera á frá
ákveðinni hlið, svo sem við sneiðingu tómötum og
sítrónum.
Matarapípan (A2) er einkum notuð við skurð á
löngu og mjóu hráefni, til dæmis gúrkum.
Val á skurðarverkfærum (A6-A12).
Venjuleg skurðarskífa (A6): Sneiðir fasta matvöru.
Sker í teninga ásamt teningagrind (A10).
Báruskífa (A7): Fyrir bárulaga sneiðar.
Fínskurðarskífa (A8): Allar stærðir sneiða fasta
matvöru. 4 og 6 mm skífur sneiða einnig mjúka,
safaríka og viðkvæma matvöru eins og tómata. 2
mm skífur strimla hvítkál. 4 og 6mm skífur strimla
ísbergssalat, kínakál o.s.frv.
Strimlari (A9): Fyrir súpustrimla, kartöflustrimla,
gúrku o.s.frv. 4,5x5,5 mm fyrir blaðlausa
hvítkálsstrimla.
Teningagrind (A10): Sker smáteninga, notuð ásamt
venjulegri skurðarskífu (A6).
Grænmetisrifskífa (A1 1): Rífur gulrætur, hvítkál,
hnetur, ost, þurrt brauð o.s.frv.
Fínrifskífa (A12): Fínrífur hráar kartöflur, harðan/
þurran ost o.s.frv.
Sundurtekt matarans (A5).
Snúið mataranum rangsælis þangað til hann
stöðvast (mynd C) og lyftið mataranum síðan upp.
Snúið skurðarverkfærinu (A6, 7, 8, 9, 1 1 eða 12)
réttsælis og fjarlægið það.
Fjarlægið teningagrindina (A10)
Lyftið frárásarskífunni (A13) upp.
Uppsetning matarans (A5).
Leggið frárásarskífuna (A1 3) á öxulinn (A14) og
snúið og þrýstið frárásarskífunni niður í festingu sína
(mynd B1).
Við teningaskurð, þrýstið teningagrindinni (A10)
niður með beittar skurðareggjarnar upp á við,
þannig að raufin á hlið grindarinnar falli að
hælnum innan á vélarhúsinu (mynd B2). Rennið
síðan venjulegu skurðarskífunni (A6) upp á öxulinn
(A14) og snúið skurðarskífunni þannig að hún falli
ofan í festinguna (mynd B3).
Þegar sneitt er, strimlað og rifið, rennið þá aðeins
viðeigandi skurðarverkfæri (A 6, 7, 8, 9, 1 1 eða
12) upp á öxulinn og snúið skurðarverkfærinu
þannig að það falli ofan í festingu sína.
Leggið matarann (A5) ofan á vélarhúsið (A16)
þannig að textinn "Close Open" lendi "klukkan
fimm" miðað við frárásarop vélarinnar (mynd D1)
og snúið mataranum síðan réttsælis þangað til
hann stöðvast og matarinn situr fastur (mynd D2).
Notkun hraðastillis (A15).
Þegar hraðastillir (A15) er í stöðu "0" er slökkt á
vélinni. Í stöðu "I" gengur vélin samfellt í
hægagangi og í stöðu "II" samfellt og mjög hratt.
Hreinsun.
Hreinsið alltaf vélina vandlega þegar eftir notkun.
Slökkvið fyrst á vélinni með því að færa
hraðastillinn (A15) á "0" og takið síðan vélina úr
sambandi eða lokið fyrir straumrofann.
Ef þið hafið notað teningagrind (A10), látið hana
vera kyrra í vélinni og ýtið fyrst með bursta út
teningum sem sitja fastir áður en teningagrindin er
fjarlægð.
Fjarlægið alla lausa hluta úr vélarhúsinu (A16) og
þvoið þá og þurrkið vandlega.
Skolið vélarhúsið ofan frá (aldrei frá hlið) og/eða
þurrkið af vélarhúsinu með rökum klút.
Skurðarverkfæri úr plasti má þvo í uppþvottavél,
en óráðlegt er að þvo skurðarverkfæri úr
léttmálmi í uppþvottavél þar sem hætta er á að
málmurinn tærist/verði svartur vegna hins háa
sýrustigs uppþvottaefnisins.
Notið aldrei oddhvassa hluti, rispandi
uppþvottaefni, rispandi þvottasvampa né
háþrýstisprautu.
Skiljið aldrei skurðarverkfærin (A6-A12) eftir blaut
né á ryðfríum bekk þegar þau eru ekki í notkun,
heldur þurrkið þau vel og geymið þau alltaf á
verkfærahengi (E) uppi á vegg.
Mánaðarlegt eftirlit.
Fjarlægið fyrst matarann (A5) og annaðhvort
skurðarverkfæri (A6-A12) og frárásarskífu (A13).
Snúið hraðastilli (A15) í stöðu "I" og gangið úr
skugga um að vélin fari þá ekki í gang.
Festið matarann (A5), snúið hraðastilli í stöðu "I" og
gangið síðan úr skugga um að vélin stöðvist þegar
matarahandfang (A3) er lyft og fari aftur í gang
þegar handfangið er fellt niður.
Snúið hraðastilli í stöðu "I", lyftið upp
matarahandfangi og gangið úr skugga um að