Hleðsla
Hér á eftir er fjallað um hleðslu með Wallbox eM4 Single.
Gerið eftirfarandi:
1 Leggið bílnum þannig að auðvelt sé að stinga kló
hleðslusnúrunnar í samband við hleðslutengið á
bílnum.
Þegar hleðslustaðurinn á vegghleðslustöðinni
x
er tilbúinn fyrir hleðslu leiftrar stöðuvísirinn í
grænum lit (framsetning: 1 lota).
2 Undirbúið hleðslusnúru vegghleðslustöðvarinnar
og hleðslutengið á bílnum.
J Opnið hleðslutengið á bílnum og stingið
hleðslusnúrunni í samband við það.
J Opnið lokið á hleðslutengli
vegghleðslustöðvarinnar og stingið
hleðsluklónni í samband.
3 Gætið að stöðuvísinum á vegghleðslustöðinni.
Þegar búin er að tengja bílinn og hann greinist
x
logar stöðuvísirinn stöðugt í grænum lit.
ATHUGIÐ
Auðkenning Wallbox eM4 Single
Allt eftir útfærslu getur Wallbox eM4 Single verið grunnstillt með mismunandi hætti þegar hún er sett upp.
„Controller": Í „Controller"-útfærslu getur vegghleðslustöðin ýmist verið stök eða verið notuð með
x
bakvinnslu.
„Controller" með „Extender": Hægt er að nota „Controller" með einni eða fleiri „Extender"-
x
vegghleðslustöðvum í hóp með eða án bakvinnslu.
„Extender" fyrir sjálfstæða vinnslu: „Extender"-vegghleðslustöð sem er grunnstillt fyrir sjálfstæða vinnslu
x
er notuð stök án bakvinnslu.
Ef auðkenning fyrir hleðslu með RFID-korti er nauðsynleg skal fylgja leiðbeiningunum í skrefum 4 til 6 hér á eftir.
Ef auðkenning er ekki nauðsynleg skal fara beint í skref 7.
4 Gætið að stöðuvísinum á vegghleðslustöðinni.
Þegar opna þarf fyrir hleðslu með RFID-korti
x
logar blátt ljós á hreyfingu í stöðuvísinum.
Hleðsla
149