Descargar Imprimir esta página

Baker Hughes Consolidated 1900 Serie Manual De Instalación, Puesta En Marcha, Utilización Y Mantenimiento página 13

Ocultar thumbs Ver también para Consolidated 1900 Serie:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 7
Búnaðurinn sem þú keyptir er hannaður, framleiddur og prófaður í samræmi við öryggiskröfur
í Evróputilskipun ATEX 2014/34/EB og PED 2014/68/EB.
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega FYRIR uppsetningu, notkun eða viðhald á þessum öryggisloka.
Kröfur fyrir vörur sem setja á upp á stöðum sem kunna að innihalda sprengifimar lofttegundir eða eldfimt ryk:
a) Uppsetning, notkun og viðhald skal vera í samræmi við landslög og gildandi reglur á hverjum stað og í
samræmi við ráðleggingar í viðeigandi stöðlum fyrir sprengihættustaði.
b) Uppsetning, gangsetning og viðhald skal vera í höndum vottaðra fagaðila sem hlotið hafa viðeigandi
þjálfun á tækjabúnað sem notaður er á sprengihættustöðum.
Við viss vinnsluskilyrði kann notkun skemmds öryggisloka að valda skertum afköstum í kerfinu sem getur leitt
til slysa eða dauða.
Aðeins skal nota upprunalega varahluti frá framleiðanda til að tryggja að vörurnar uppfylli viðeigandi
öryggiskröfur þeirra Evróputilskipana sem tilgreindar voru hér að ofan.
Framleiðandi:
Raðnúmer:
Tilnefning gerð ventla (líkan):
CE merking
II 2 G Ex h IIC TX Gb Ta X (Athugasemd 1)
II 2 D Ex h IIIC TX Db Ta X (Athugasemd 2)
Samræmis Flokkur í samræmi við verndarstig "h"
Hitastig Flokkur: TX er ákvarðaður af hitastigi rekstrar eða vökvahita.
Umhverfishiti Ta: Sjá tækniforskrift fyrir Ta af hverju ventlaefni í flokki
X Mark: Sérstakt notkunarskilyrði. Málað yfirborð - Möguleg hætta af rafstöðu hleðslu - sjá leiðbeiningar
undir "UPPSETNING".
Athugasemd 1: IIC getur verið merkt sem IIB eða IIA- Sjá vara til merkingar og leiðbeiningar um málað yfirborð undir
"UPPSETNING"
Athugasemd 2: Rykvörn er aðeins tiltæk fyrir eftirfarandi gerðir ventla: 1900, 2900, 3900, 19000
UPPSETNING
Áður en uppsetning fer fram:
Takið öryggislokann varlega úr umbúðunum og gangið úr skugga um að hann sé óskemmdur. Gerið
framleiðanda viðvart ef skemmdir eru til staðar.
Gangið úr skugga um að búnaðurinn henti uppsetningarsvæðinu (tilskipun 99/92/EB).
AÐVÖRUN -Gangið úr skugga um að hámarkshiti vökva sem streymir í gegnum lokann sé ekki hærri en
hámarksyfirborðshiti hitaflokks T1 til T6 á því svæði sem búnaðurinn er uppsettur, sem og þeim
takmörkum sem framleiðandi mælir með (sjá handbækur sem hægt er að nálgast á vefsvæði framleiðanda
á www.valves.bhge.com).
AÐVÖRUN -Ef við á skal ganga úr skugga um að hámarkslofthiti fari ekki fram úr leyfilegum
hámarkslofthita sem gefinn er upp á merkingum frá framleiðanda hjá endastöðurofanum á lokanum (70
°C). Ef enginn endastöðurofi er til staðar er hámarkslofthiti sá sami og hámarkshiti vinnsluvökva.
Ef lokinn er með belg skal tryggja að hlífin sé með loftunarop sem leidd er á öruggt svæði.
Leiðbeiningar fyrir uppsetningu, gangsetningu og viðhald fyrir
Consolidated™-loka sem uppsettir eru á sprengihættustöðum
1900-, 2900-, 3900-, 19000- 1700- 2700- og 1811-línan
MERKINGAR
Framleiðsludagsetning:
Tækniskjal Nr:
AÐVÖRUN - Möguleg rafmagns hleðsluhætta - aðeins leyfilegt á föstum búnaði, þar sem hægt er að
stýra uppsöfnun stöðurafmagns með þessari aðferð:
Málað yfirborð - annaðhvort takmarka málningarþykkt < 0,2 mm fyrir hóp IIC, 2mm fyrir hóp IIA
eða IIB, eða nota málningu sem getur veitt aflkrefjandi húð, annaðhvort að uppfylla kröfurnar
um <4kV niðurbrot eða yfirborðsviðnám.
Ef lokinn er búinn endastöðurofa skal tengja hann við rafmagn eftir að gengið hefur verið úr skugga um að
það sé hægt á viðkomandi stað. Allar leiðbeiningar fyrir rétta og örugga uppsetningu endastöðurofans er að
finna í ATEX-leiðbeiningunum sem fylgja tækjabúnaðinum. Þessar leiðbeiningar er einnig að finna á
vefsvæðinu www.honeywell.com.
Einkum skal taka tillit til eftirfarandi atriða:
Tryggið að uppsetning sé í samræmi við viðeigandi reglugerðir og staðla og fylgið öryggisþáttum
tækjabúnaðarins.
Jarðtengið lokann og rafknúinn tækjabúnað.
Farið eftir rafskautum raftengingarinnar.
Notið snúruinntök sem henta svæðinu og öryggisstillingu tækjabúnaðarins.
Áður en lokinn er tekinn í notkun þarf að ganga úr skugga um að hann sé rétt tengdur og að innsigli
framleiðanda séu til staðar.
Notið lokann innan þeirra hitamarka sem framleiðandi mælir með (sjá málsgrein um uppsetningu).
Ekki nota lokann fyrir annað en hann er ætlaður.
Leitið reglulega eftir leka við inntak og úttak lokans.
Fylgið notkunarleiðbeiningunum fyrir tengdan rafbúnað.
Tryggið að vökvinn beri ekki með sér agnir sem geta valdið neista ef innra byrði lokans er flokkað sem
ATEX-svæði.
Áður en viðhaldi er sinnt skal tryggja að staðbundin skilyrði henti fyrir vinnu: Gangið úr skugga um að
viðeigandi öryggisbúnaður og hlífðartæki séu til staðar með tilliti til vinnu og svæðisins sem hún fer fram á.
Sinnið viðhaldi í samræmi við þær leiðbeiningar sem fylgdu vörunni.
Aðeins skal nota upprunalega varahluti frá framleiðanda.
Fjarlægið eldfimt ryk sem getur safnast upp á óvörðum flötum.
Til að koma í veg fyrir neistamyndun vegna afhleðslu stöðurafmagns er ráðlegt að fylgja leiðbeiningum í
reglum um starfsvenjur í CLC/TR50404. Sem dæmi þrífur notandinn búnaðinn, sérstaklega plastmerkið,
með blautri tusku.. Af öryggisástæðum er þetta eingöngu leyfilegt þegar sprengihætta er ekki til staðar.
Eftirlit með búnaði á sprengihættustöðum: Farið eftir viðeigandi reglugerðum (tilskipun 99/92/EB).
11/2019
Icelandic
GEA32105C-IS
GANGSETNING
NOTKUN
VIÐHALD

Publicidad

loading