Fyrirhuguð notkun
Provox límvörurnar eru einnota búnaður sem ætlaður er sjúklingum, með
barkakýlisskurð, sem anda í gegnum barkarauf. Búnaðurinn er festur við húðina
í kringum barkaraufina til að hægt sé að nota aukahluti úr Provox HME línunni.
VARNAÐARORÐ
• Límvörurnar geta ert húðina. Ef erting á sér stað, hættu notkun á límvöru og
ráðfærðu þig við lækni.
• Provox límvörurnar má ekki nota á húðsvæði sem verið er að meðhöndla
með geislum. Ráðfærðu þig við lækninn áður en þú byrjar aftur að nota
límvöruna eftir geislameðferð.
• Endurnýting hefur áhrif á virkni og getur aukið sýkingarhættu.
• Notaðu eingöngu upprunalega Provox aukahluti sem ætlaðir eru til
notkunar með Provox límvörum. Aðrir aukahlutir geta valdið meiðslum eða
skemmdum á vörunum.
Notkunarleiðbeiningar
Undirbúningur
Gangið úr skugga um að engar skemmdir eða rifur séu á límvörunni eða
í kringum botnplötuna. Hreinsið alltaf húðina með Provox Cleaning Towel og/
eða sápu og vatni og látið húðina þorna áður en límvaran er sett á.
Notkun
Ef þörf krefur má nota húðverndandi vörur eins og Provox Skin Barrier eða
stuðningslímvörur eins og Provox Silicone Glue (lesið notkunarleiðbeiningar
viðkomandi vöru). Sjá leiðbeiningar um notkun á myndum 1.1–1.8 og 2.1–2.4.
Fjarlæging
Flettið límvörunni varlega af með því að nota fingraflipann. Límleysir, til
dæmis Provox Adhesive Remover (lesið notkunarleiðbeiningar sem fylgja
með vörunni) getur verið gagnlegur til að fjarlægja límvörur. Hreinsið alltaf
húðina með Provox Cleaning Towel og/eða sápu og vatni eftir að límvaran
hefur verið fjarlægð. Þurrkið svæðið vandlega.
VARÚÐ:
• Þegar límleifar eru hreinsaðar af húðinni þarf að gæta þess að agnir/vökvi
komist ekki inn í barkaraufina.
• Þegar OptiDerm er notað eftir aðgerð eða á viðkvæma húð þarf að fjarlægja
það mjög hægt og varlega.
ÍSLENSKA
29