Permobil ROHO Hybrid Elite Manual De Operación página 110

Ocultar thumbs Ver también para ROHO Hybrid Elite:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 11
Uppsetning sessu, framhald
MIKILVÆGT! Fyrir sessur með tveimur hólfum skal endurtaka öll skrefin fyrir báða lokana.
Uppblástur, hlíf og flutningur
1 Blásið upp: Opnið flipann á hlífinni. Opnið rennilásinn á slitsterku hlífinni.
a. Rennið stút pumpunnar yfir blásturslokann. Opnið blásturslokann. Blásið upp sessuna
þar til öll lofthólfin eru orðin stíf.
b. Skrúfið blásturslokann þar til hann stöðvast. Fjarlægið pumpuna. Gangið úr skugga um
að blásturslokinn sé lokaður.
Athugið: Snúið blásturslokanum minnst einn heilan hring til að opna. Blásturslokinn snýst
óhindrað þegar hann er opinn.
2 Hlíf: Gangið úr skugga um að hlífin sé sett rétt upp. Nánari upplýsingar er að finna
í leiðbeiningunum sem fylgdu hlífinni og í kaflanum „Hlíf fjarlægð og komið fyrir"
í þessari handbók.
3 Flutningur:
a. Setjið sessuna á hjólastólinn þannig að lofthólfin snúi upp og stami flöturinn á hlífinni snúi
niður. Nota má táknið með sitjandi manneskjunni á hlífinni til hliðsjónar til að tryggja að
sessan snúi rétt. (Mynd 1)
b. Einstaklingurinn á að flytja sig yfir í hjólastólinn og sitja á eðlilegan máta. Gangið úr skugga
um að lofthólfin liggi undir sitjandanum þar sem styst er í bein. Blásturslokinn ætti að vera
framan á, vinstra megin við einstaklinginn sem situr í stólnum. (Mynd 2)
Framkvæmd handvirkrar skoðunar
4 Handvirk skoðun er framkvæmd með því að nota fingurna til að kanna hversu mikið loft er
í sessunni. Þegar sessan er rétt uppblásin* sígur einstaklingurinn ofan í sessuna en fær enn
stuðning frá loftinu í henni:
a. Rennið hendi á milli lofthólfanna og sitjandans á þeim stað þar sem styst er í bein.
Tillaga: Auðveldara er að finna hvar styst er í bein fyrir handvirka skoðun með því að
hreyfa fótlegginn upp og niður.
b. Upplýsingar um stillingu sessunnar eru í leiðbeiningum fyrir handvirka skoðun hér að neðan.
LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVIRKA SKOÐUN
MIKILVÆGT! Fyrir sessur með tveimur hólfum skal skoða bæði hólfin.
OF LÍTIÐ LOFT!
Ekki hægt að hreyfa fingur.
Of lítið loft í sessunni.
Áhætta: Enginn stuðningur
frá lofti.
Ef OF LÍTIÐ LOFT er í sessu:
Blásið meira lofti í. Lokið blásturslokanum.
Framkvæmið handvirka skoðun aftur. Endurtakið
þetta þar til réttum loftþrýstingi er náð.
IS - Notkunarhandbók fyrir ROHO Hybrid Elite-sessu
OF MIKIÐ LOFT!
Hægt að hreyfa fingur
of mikið.
Of mikið loft í sessunni.
Áhætta: Einstaklingur sígur
ekki ofan í sessuna.
Ef OF MIKIÐ LOFT er í sessu:
Losið loft. Lokið blásturslokanum. Framkvæmið
handvirka skoðun aftur. Endurtakið þetta þar til
réttum loftþrýstingi er náð.
108
Opna
Mynd 1
* Ráðlögð fjarlægð á milli þess svæðis þar sem
styst er í bein og sætisyfirborðs er
1,5–2,5 cm.
RÉTTUR LOFTÞRÝSTINGUR!
Hægt að hreyfa
fingurna lítillega.
Einstaklingur sígur ofan í
sessuna með stuðning frá lofti.
Ef sessan er RÉTT UPPBLÁSIN er hún tilbúin
til notkunar.
Viðvörun: Gangið úr skugga um að það séu
að minnsta kosti 1,5 cm (½ to.) af lofti undir þeim
stað þar sem styst er í bein.
Loka
Mynd 2

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido