7. Hreinsun, umhirða, geymsla,
fl utningar og pöntun varahluta
Varúð:
Vinnið aldrei með mótorinn í gangi í nánd við hluti
sem leiða rafmagn og komið ekki við þá. Takið
ávallt kertahettuna af kertinu áður en hirt er um
tækið á einhvern hátt. Vinnið aldrei að tækinu á
meðan það er í gangi. Öll vinna við þetta tæki sem
ekki er lýst í notandaleiðbeiningunum verður að
vera framkvæmd af fagaðilum.
7.1 Hreinsun
Hreinsa ætti mosatætarann vandlega eftir hverja
notkun. Sérstaklega neðri hluta og hnífaeininguna.
Til þess verður að halla mosatætaranum aðeins til
hliðar og fjarlægja óhreinindi.
Varúð! Áður en að tækinu er hallað verður að
tæma bensíntankinn til þess að koma í veg fyrir
að bensín leki niður. Notið venjulega eldsneytis-
dælu til þess að tæma bensíntankinn.
7.2 Umhirða
Áfylling olíu athuguð:
Setjið tækið á sléttan og láréttan fl öt. Fjarlægið
olíumælikvarða með því að snúa honum rangsæ-
lis. Olíumagn verður að vera eins og sýnt er á
mynd 10.
Varúð: Notið mótor tækisins aldrei með of lítilli
eða engri olíu. Það getur skemmt mótorinn var-
anlega.
Olíuskipti
•
Olíuskipti þessa tækis ætti að fara fram árlega
fyrir byrjun tíðar (auk upplýsinga í þjónustu-
hefti bensín) á meðan að mótorinn er heitur.
•
Notið einungis mótorolíu sem mælt er með í
þessum leiðbeiningum.
•
Staðsetjið viðeigandi olíupönnu undir olíuaf-
töppunarskrúfuna.
•
Opnið olíuáfyllingarskrúfu (mynd 9 / staða A).
•
Opnið olíuaftöppunarskrúfuna (mynd 9 / staða
B) og látið olíuna leka niður í þar til gert ílát.
•
Setjið olíuaftöppunarskrúfuna aftur á sinn
stað eftir að olían hefur náð að leka niður.
•
Fyllið á nýja olíu eins og sýnt er á mynd 10.
•
Farga verður gamalli olíu eins og gildandi reg-
lur gera ráð fyrir.
Umhirða og stillingar barka
Smyrjið reglulega barka og athugið að þeir hrey-
fi st létt.
Anl_GBV_E_40_SPK7.indb 183
Anl_GBV_E_40_SPK7.indb 183
IS
Umhirða loftsíu
Óhrein loftsía minnkar afl mótors vegna þess að
ekki kemst nægilega mikið loft að mótornum. Því
er nauðsynlegt að yfi rfara síuna reglulega. Yfi rfara
ætti loftsíuna á 50 vinnustunda millibili og hreinsa
hana ef að þörf er á því. Ef loft er mjög rykugt ver-
ður að yfi rfara síuna oftar.
•
Fjarlægið loftsíuna eins og sýnt er á myndum
11-13.
•
Hreinsið loftsíuna einungis með háþrýstilofti
eða berjið af henni.
•
Samsetning fer fram eins og sundurtekningin
í öfugri röð
Varúð: Hreinsið lofstíuna aldrei með bensíni eða
öðrum eldfi mum vökvum.
Umhirða/skipti á kerti
Yfi rfarið kertið í fyrsta skiptið eftir um það bil 10
vinnustundir og athugið hvort að það sé orðið
óhreint og hreinsið það ef þörf er á með kopar-
bursta. Eftir það ætti að yfi rfara kertið á 50 vinnu-
stunda millibili.
•
Takið kertahettuna (mynd 14) af kertinu á
meðan að henni er snúið.
•
Fjarlægið kertið með kertalykli (mynd 15).
•
Samsetning fer fram eins og sundurtekningin
í öfugri röð.
7.3 Tækið gert tilbúið til geymslu
Varúðartilmæli: Fjarlægið ekki bensín af tækinu
í lokuðum rýmum, í nánd við eld eða á meðan að
reykt er. Bensíngufur geta valdið eldi eða spren-
gingum.
1. Tæmið eldsneytistanginn með eldsneytisdæ-
lu.
2. Gangsetjið mótorinn og látið hann ganga það
lengi að leifar af bensíni nái að klárast alveg.
3. Skiptið um olíu fyrir hverja tíðarbyrjun. Til þess
verður að fjarlægja gamla olíu af heitum mó-
tor og fylla á nýja.
4. Fjarlægið kertið úr strokknum. Setjið um það
bil 20 ml af olíu ofan í strokkinn með olíukön-
nu. Togið varlega í gangsetningarþráðinn
þannig að olían nái að dreifast um strokkinn
og hlífa honum. Skrúfi ð kertið aftur í strokkinn.
5. Hreinsið kæliplötur strokks og mótorhús.
6. Hreinsið allt tækið til þess að hlífa lakkhúð
þess.
7. Geymið tækið einungis í vel loftuðum rýmum
eða stað.
- 183 -
29.09.2016 17:59:15
29.09.2016 17:59:15