Descargar Imprimir esta página

Etac R82 Combi Frame:x Manual Del Usuario página 106

Ocultar thumbs Ver también para R82 Combi Frame:x:

Publicidad

Öryggi
Aldrei má hylja eða fjarlægja merkingar, tákn eða leiðbeiningar á vörunni og verður þetta að vera staðar og læsilegt
þar til endingartími vörunnar er liðinn. Skiptið strax um eða lagfærið ólæsilegar eða skemmdar merkingar, tákn eða
leiðbeiningar. Hafið samband við næsta söluaðila til að fá leiðbeiningar.
Ef aukaverkanir eiga sér stað í tengslum við tækið skal tilkynna atvik til söluaðila á staðnum
og lögbærra landsyfirvalda tímanlega. Söluaðilinn áframsendir upplýsingar til framleiðandans.
Umönnunaraðili
Lesið notendahandbókina vandlega fyrir notkun
og geymið hana til síðari nota. Röng notkun á
þessari vöru getur
valdið notanda alvarlegum meiðslum
Varan inniheldur smáhluti sem gætu valdið
köfnunarhættu ef þeir eru
fjarlægðir af fyrirhuguðum stað
Notið ávallt réttar aðferðir og hjálpartæki þegar
notanda er lyft
Notandi má aldrei vera eftirlitslaus
í stólnum. Tryggið að umönnunaraðili
sinni stöðugu eftirliti
Aðeins má framkvæma viðgerðir/
skipti með nýjum, upprunalegum
R82-varahlutum og tengjum og í samræmi
við viðmiðunarreglur og viðhaldstímabil sem
söluaðili hefur gefið fyrirmæli um
Ef einhver vafi leikur á áframhaldandi öruggri
notkun á R82 vörunni þinni eða
ef einhverjir hlutar ættu að bila skaltu hætta
notkun vörunnar strax og hafa samband við
söluaðila á staðnum
eins fljótt og auðið er
Þegar hreyfanlegir hlutar eru stilltir skal ganga úr
skugga um að þeir klemmi
ekki eða festi líkamshluta
Fyrir uppsetningu stoðtækja/fylgihluta
skal ganga úr skugga um að líkamshlutar séu
ekki fastir í opum
Notið vöruna alltaf á hóflegum hraða.
Ekki hlaupa með vöruna
Upplýsingar um flutninga er að finna
í skjalinu „M1460 Flutningar í vélknúnum
ökutækjum" sem fylgir með vörunni
Upplýsingar um möguleika á vegaflutningi er að
finna í skjalinu „Möguleikar
á vegaflutningi" sem fylgir með vörunni
Upplýsingar um samsetningu stoðgrindar og
sætis, þ.m.t. hámarksálag á samsetningu, má
finna á: etac.com
Umhverfi
Kannið yfirborðshita vörunnar áður
en notandinn er færður í stólinn. Þetta
á sérstaklega við ef notandi er með ónæma húð
þar sem hann finnur ekki
fyrir hitanum. Ef yfirborðshiti er yfir 41 °C skal
leyfa vörunni að kólna fyrir notkun
Notið vöruna á jafnsléttu án nokkurra hindrana.
Verið meðvituð um takmarkaða stjórn ef undirlag
er sleipt
Við notkun í halla skal stuðst við mælingar
Notandi
Ef notandinn er nálægt hámarks álagstakmarki
og/eða hefur miklar ósjálfráðar hreyfingar, t.d.
rokkandi,
ætti að hafa stærri stærð með hærri
hám. hleðslu eða aðra R82 vöru í huga
XX IS
Vara
Framkvæmið allar stillingar á vörunni og
aukabúnaði hennar og gangið úr skugga um að
allir hnúðar, skrúfur og sylgjur séu tryggilega
festar fyrir notkun. Geymið
öll verkfæri þar sem börn ná ekki til
Hlutir sem hægt er að fjarlægja án verkfæra: hjól
og fótskemill. Fjarlægingin mun hafa óæskileg
áhrif á tækið
Setjið bremsurnar á áður en notandinn
er færður í stólinn
Notið jafnvægisbúnaðinn þegar varan
er notuð í halla
Notið jafnvægisbúnaðinn áður en sætinu og
sætisbakinu er hallað
Ekki nota jafnvægisbúnaðinn þegar farið er yfir
kanta hærri en 100 mm
Gangið úr skugga um að stöðugleiki vörunnar
geti ekki raskast áður en notandi sest í stólinn
Við mælum með því að þú látir notandann vita
áður en þú hallar sætinu eða sætisbakinu
Gætið þess að hjólin séu örugg og virki sem
skyldi fyrir notkun
Upplýsingar um réttan dekkjaþrýsting má
finna á dekkjahlífunum eða í dekkjahluta
tæknilýsingarinnar
Ef gat kemur á dekk skal ekki nota vöruna fyrr en
úr hefur verið bætt
Tækið hentar til flutninga á landi og í lofti þegar
það er ekki í notkun
Vðbótarálag getur haft neikvæð áhrif á
stöðugleika vörunnar. Staðsetningar punkta
sem ætlaðir eru til að halda uppi viðbótarálagi
er tilgreind í viðeigandi festingarleiðbeiningum
sem vísað
er til í kafla fyrir aukahluti
Skoðið vöruna og alla fylgihluti hennar
og skiptið út slitnum hlutum fyrir notkun
Verjið pumpuna gegn þrýstingi eða
háum hita. EKKI gera gat á hana
Verjið stimpilstöngina gegn rispum, o.s.frv.
Mikilvægt er að nota klút eða álíka ef notuð eru
verkfæri til að stilla pumpuna
Varan er samþykkt til flutninga í ökutækjum
samkvæmt ISO 7176-19. Nánari upplýsingar
er að finna í skjalinu „M1460 Flutningur í
vélknúnum ökutækjum" sem fylgir vörunni
Varan er metin í samræmi við viðauka
D í ISO 7176-19 með tilliti til möguleika á því
að spenna belti yfir mjaðmir og öxl. Tækið fær
heildareinkunnina „Gott"
106
etac.com

Publicidad

loading