Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi við tæki í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð tækisins að falla úr gildi.
Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notenda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki sinna þjónustu og viðhaldi
á meðan varan er í notkun. Ef þörf krefum skal hafa samband við söluaðila á staðnum til að fá
aðstoð við uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi við tækið.
Endingartími
Endingartími vörunnar við venjulega notkun er 8 ár ef öllu
viðhaldi og þjónustu er sinnt samkvæmt leiðbeiningum
framleiðanda og skráð svo hægt sé að sýna fram á
það. Tækið verður hugsanlega gefið út aftur innan
endingartíma þess.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana getur breyst eftir notkun og sliti. Mælt er
með því að varan sé skoðuð árlega, í hvert sinn sem varan
er endurútgefin til notkunar og eftir langtímageymslu
(meira en 4 mánuði). Aðili sem hefur skilning á notkun
vörunnar skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi við fyrirhugaða
notkun:
•
Stilling sætis: Sætið er stillanlegt og
helst í þeirri stöðu sem það er stillt í.
•
Hallakerfi sætisins lætur sætið hreyfast auðveldlega
og án óþarfa hreyfinga.
•
Ekki má setja olíu í hallakerfið.
•
Tryggið að hjól hreyfist án nokkurrar fyrirstöðu og
að auðvelt sé að nota alla hjólalása/bremsur. Stillið
eftir þörfum.
•
Hægt er að fjarlægja / skipta út hjólum með
hraðtengi.
•
Hægt er að festa jafnvægisbúnað
í vinnu- og hvíldarstöðu.
•
Þrýstingur í dekkjum.
•
Hlífar á teinum eru lausar við sprungur og eru
tryggilega festar við dekkið með festingu sem sett
er upp á hverja hlíf.
•
Áður en stóllinn er settur í geymslu:
Takið hjólalæsingar/bremsur ávallt af.
•
Herðið rær og bolta á vörunni.
•
Berið olíu á framlengingarhluti.
•
Leitið eftir merkjum um sprungur
eða slitna íhluti.
•
Allar merkingar á vörunni eru heilar.
Gerið við eða skiptið um skemmda eða slitna hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
Þurrka leifar og óhreinindi af vörunni með klút með volgu
vatni og mildu hreinsiefni/sápu án klórs og láta stólinn
síðan þorna fyrir notkun. Gerið sjónræna skoðun á því
hvort einhverjir hlutir séu skemmdir eða slitnir.
Þvottur
Aðalvara
Vöruna má þvo á 60° hita með mildu þvottaefni í 10
mínútur í þvottavél sem er hönnuð fyrir lækningatæki.
Notið þurrkunaraðgerð vélarinnar til að þurrka vöruna.
Fjarlægið allan aukabúnað og þvoið hann sérstaklega.
Efni og áklæði
Áklæðið má þvo við hámark 60° hita með mildu
þvottaefni í þvottavél.
Takið áklæðið af svampinum fyrir þvott.
Svampur
Svampinn
má
aðeins
þvo
volgt
vatn
og
milt
hreinsiefni/sápu
og leyfið öllum hlutum að þorna fyrir notkun.
XX IS
í
höndunum.
Notið
án
klórs
115
Á meðan og eftir að svampur er þveginn skal ekki beygla,
kreista eða snúa upp á hann þar sem það getur haft
neikvæð áhrif á formið.
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo þessa vöru og fylgihluti hennar í
höndunum. Notið volgt vatn og milt hreinsiefni/ sápu án
klórs og leyfið öllum hlutum að þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Vöruna má sótthreinsa með 70% sótthreinsispritti.
Mælt er með því að nota klút með volgu vatni og
mildu hreinsiefni/sápu án klórs til að þurrka leifar og
óhreinindi af vörunni og leyfa henni síðan að þorna fyrir
sótthreinsun.
Efni
•
Stál
•
Ál
•
Plast
•
Gúmmí
•
Viður
•
Efni
•
Svampur
Yfirborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs hafa verið
notaðar til að verjast tæringu:
•
Lakkað yfirborð = pólýesterdufthúðun
eða ED-húðun
•
Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
•
Ólakkað yfirborð úr stáli = sinkhúðun
etac.com