Descargar Imprimir esta página

Etac R82 Kudu Manual Del Usuario página 167

Ocultar thumbs Ver también para R82 Kudu:

Publicidad

Almennt
Við kunnum að meta val þitt á nýrri vöru frá R82 - alþjóðlegum söluaðila tæknilegra hjálpartækja
og búnaðs fyrir börn og unglinga með sérþarfir. Til að njóta góðs af þeim valkostum sem þessi vara
hefur upp á að bjóða skaltu lesa notendahandbókina fyrir notkun og geyma hana til síðari nota.
Fyrirhugaður tilgangur
Tækið er hjólastóll ætlaður börnum og
fullorðnum með fötlun.
Ábendingar
Börn og fullorðnir með fötlun geta notað tækið
ef þau skortir getu til að halda sitjandi stöðu
eða hreyfa sig um án hjálpartækja. Þannig er
markhópur tækisins byggður á hreyfigetu en
ekki sérstöku heilsufarsástandi eða aldri.
Notandinn er sá sem situr í tækinu.
Umönnunaraðilinn er sá sem stýrir tækinu.
Notandinn má aldrei vera eftirlitslaus í tækinu.
Tryggið að umönnunaraðili sinni stöðugu
eftirliti.
Tækið verður sjaldnar í notkun á daginn
á meðan notandinn liggur, stendur eða situr í
öðru hjálpartæki eða hefðbundinni vöru.
Í flutningum á milli staða hentar tækið börnum
og fullorðnum á bilinu 22 kg til tilgreindrar
hámarksþyngdar notanda fyrir flutninga.
Frábendingar
Engar frábendingar eru þekktar
Varúðarráðstafanir
Sérstök áhersla skal lögð á eftirfarandi atriði
varðandi uppsetningu vörunnar og notkun
aukahluta fyrir notendur með takmarkanir á:
• Taka þarf skynjun og sársaukaskyn
sérstaklega til greina með tilliti til
þrýstingins sem stoðir tækisins
og fylgihlutir valda.
• Ef um mikla hreyfingu er að ræða
(t.d. ósjálfráðar hreyfingar) skal íhuga
að nota tæki með stillanlegri bakstoð.
• Ef notandi getur viðhaldið sitjandi
stöðu skal nota vöruna með fylgihlutum
(t.d. hliðarstoðum, vestum, beltum,
stoðum fyrir hendur og bakka).
• Geta til að viðhalda stöðu höfuðsins
skal íhuga að nota fylgihluti eða vöru
sem veitir stuðning við höfuðið.
Notkunarsvið
Varan er hönnuð til notkunar innan- og
utandyra
Verkfæri sem fylgja með:
• 4+5 mm sexkantlykill
• 13 mm skrúflykill
Samræmisyfirlýsing
Varan samræmist kröfum reglugerðar
XX IS
ÍSLENSKA
um lækningatæki (2017/745). Auk þess
samræmist varan kröfum samkvæmt:
• EN 12183
Fjarlægja verður CE-merkinguna ef:
• tækið er sett saman aftur eftir að hafa
verið tekið í sundur
• tækið er ekki notað í samræmi
við fyrirhugaðan tilgang þess og
samræmisyfirlýsingu
• notaðir eru varahlutir eða útbúnaður sem
ekki er frá R82.
Þegar tækið er notað samhliða öðrum tækjum
má slík samsetning ekki vera í því skyni að
breyta fyrirhuguðum tilgangi viðkomandi tækja
og ekki má breyta tækjunum á þann veg að
það geti haft áhrif á samræmi við gildandi
kröfur. Aðilinn/fyrirtækið sem ber ábyrgð á
samhliða notkun tækjanna skal tryggja að
gildandi kröfur séu uppfylltar.
Dæmi um gildandi kröfur:
• Öryggi efna (lífsamrýmanleiki, eldfimi),
vélrænt öryggi (stöðugleiki, hætta á að
kremjast, samtengingar), rafmagnsöryggi.
Förgun
Þegar endingartími vörunnar er liðinn skal hún
tekin í sundur eftir efnistegundum svo hægt
sé að endurvinna eða farga hlutum hennar á
réttan hátt. Ef þörf krefur skal hafa samband
við næsta söluaðila til að fá nákvæma lýsingu
á hverju efni. Hafið samband við staðaryfirvöld
til að fá upplýsingar um hvaða valkostir eru
í boði fyrir umhverfisvæna endurvinnslu.
Aukabúnaður og varahlutir
Vörurnar frá R82 er hægt að fá með ýmsum
aukahlutum, þar með talið vestum og beltum
sem eru í samræmi við þarfir hvers notanda.
Hægt er að panta varahluti eftir óskum.
Tilgreindan aukabúnað má finna á vefsvæði
okkar en einnig er hægt að hafa samband við
næsta söluaðila til að fá frekari upplýsingar.
Ábyrgð R82
www.etac.com/support
Upplýsingar og leiðbeiningar áður
en varan er keypt
Finna má upplýsingar og leiðbeiningar fyrir
kaup á www.etac.com, undir vöruheitinu í
skjalahlutanum.
167
etac.com

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

R82 kudu 1R82 kudu 2R82 kudu 3R82 kudu 4