LiftMaster myQ LM70EVFF Instrucciones De Montaje página 274

Ocultar thumbs Ver también para myQ LM70EVFF:
Tabla de contenido

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 162
E.
Skipt á milli hraðrar og hægrar hraðastillingar
Lýsing á virkni:
Hurðaopnarinn velur sjálfkrafa nauðsynlegan hraða.
Skipt um hraða:
1. Færið hurðina í lokuðu endastöðuna.
2. Ýtið samtímis á UPP- og NIÐUR-hnappana þar til ljósið á
hurðaopnaranum blikkar.
Varúð: Af öryggisástæðum er hraðastillingin hægari á hurðum
með styttri brautarlengd en 190 cm. Heilar hurðir, lyftihurðir og
allar gerðir hurða sem opnast út á við má aðeins hreyfa í hægri
hraðastillingu.
F.
Hnappar á fjarstýringu tengdir við OPNA, STÖÐVA eða LOKA
Lýsing á virkni:
Hægt er að nota hvaða hnapp sem er á fjarstýringunni fyrir
aðgerðirnar OPNA, STÖÐVA eða LOKA. OPNA: Ýtið samtímis
á gula samstillingarhnappinn og OPNA-hnappinn þar til LED-ljó-
sið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn sem óskað er eftir að stýri
aðgerðinni OPNA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki.
STÖÐVA: Ýtið samtímis á gula samstillingarhnappinn og rétthyrn-
da stillingar-hnappinn þar til LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á
hnappinn á fjarstýringunni sem óskað er eftir að stýri aðgerðinni
STÖÐVA og bíðið eftir að ljósið á opnaranum blikki. LOKA: Ýtið
samtímis á gula samstillingarhnappinn og NIÐURhnappinn þar til
LED-ljósið kviknar. Ýtið því næst á hnappinn á fjarstýringunni sem
óskað er eftir að stýri aðgerðinni LOKA og bíðið eftir að ljósið á
opnaranum blikki.
G.
Stilling fyrir fríið (aðeins með 78EV veggeiningu):
Þegar þessi stilling er virk er ekki hægt að hreyfa hurðina með
fjarstýringu.
H.
Stilling á fjarstýringu með veggeiningu
(aðeins með 78EV veggeiningu).
I.
Kveikt og slökkt á ljósi hurðaopnarans
(aðeins með 78EV veggeiningu):
Hægt er að kveikja og slökkva á ljósi hurðaopnarans hvenær sem
er. Sjálfvirk lýsing (aðeins með ljóshliði og veggeiningu) Ef hurðin
er opin og farið er fyrir ljósgeislann kviknar sjálfkrafa á ljósinu. Sett
á: Haldið „LIGHT"-hnappinum á veggeiningunni inni í 10 sekúndur.
Tekið af: Sjá „Sett á"
J.
Þráðlaust, lyklalaust aðgangskerfi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Veljið persónulegan 4 stafa talnakóða fyrir notkun hurðarinnar.
K.
Tímabundinn aðgangur
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að stilla inn tímabundinn kóða fyrir takmarkaðan aðgang
að bílskúrnum (annaðhvort með tímatakmörkun eða takmörkuðum
fjölda opnunaraðgerða).
L.
Lokun með einum hnappi
(aðeins með 747EV þráðlausri kóðalæsingu):
Hægt er að loka hurðinni án aðgangskóða í hvaða stöðu sem er
(ekki hægt að opna).
M.
MyQ ( aðeins með 828EV netgáttinni (Gateway):
Gerir kleift að stjórna bílskúrshurðinni í gegnum internetið eða
samhæfða farsíma.
N.
Bílskúrshurðaskynjari
(aðeins með 829EV bílskúrshurðaskynjara):
Getur gefið frá sér sýnileg merki (með LED-ljósum) og hljóðmerki
þegar fylgst er með stöðu hurðar. Einnig er hægt að nota tækið til
að loka hurðinni.
O.
Straumur til ytri tækja (30 volta klemma)
30 V DC/hám. 50 mA
Athugið: Fyrir ytri (fjölnota) móttakara verður að stilla af biðstöðu
fyrir minna en 1 W.
P.
Stillt af/á biðstöðu fyrir minna en 1 W
Þegar búnaðurinn kemur frá verksmiðju er alltaf stillt á biðstöðu
fyrir minna en 1 W. (Eftir að slokknar á ljósi og bílskúrshurð hefur
verið lokað.) Stillt af biðstöðu fyrir minna en 1 W:
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið UPP- og NIÐUR-hnöppunum á bakhlið stilliborðsins
báðum inni í einu.
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið
inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur blikkar ljós hurðaopnarans 10x til
staðfestingar. Athugið: Í hvert sinn sem hurðaopnarinn er settur
aftur í samband við rafmagn blikkar ljósið á honum 10x til að gefa
til kynna að stillt hafi verið af biðstöðu fyrir minna en 1 W. Stillt á
biðstöðu fyrir minna en 1 W: Sjá „Sett á"
Q.
Teljari fyrir aðgerðalotur
Hægt er að láta opnarann sýna hversu margar aðgerðalotur hafa
verið framkvæmdar (opna–loka = 1).
1. Takið tækið úr sambandi við rafmagn.
2. Haldið hringlaga og ferhyrnda hnappinum á bakhlið opnarans
báðum inni í einu.
3. Tengið tækið aftur við rafmagn á meðan hnöppunum er haldið
inni.
4. Eftir u.þ.b. 5 sekúndur byrjar ljósdíóðan að blikka. Ljósdíóðan
blikkar 1x fyrir hverjar 1.000 aðgerðalotur. Að því loknu skal sleppa
hnöppunum.
is 9

Publicidad

Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Myq lm70evffc

Tabla de contenido