IS - Notkunarhandbók fyrir ROHO DRY FLOATATION-sessu – eitt hólf, Sensor Ready, ENHANCER, SELECT
Fyrirhuguð notkun
Allar ROHO DRY FLOATATION-vörur sem fjallað er um í þessari handbók eru stillanlegar, loftfylltar stuðningssessur með hólfahönnun fyrir hjólastóla. Engin
þyngdarmörk eru á sessunum en þær þurfa þó að vera í réttri stærð fyrir hvern og einn.
Allar vörurnar sem taldar eru upp hér að neðan nýta DRY FLOATATION-tækni
og þeim er ætlað að laga sig að sitjanda þess sem situr til að vernda húð/
mjúkvefi, styðja við rétta líkamsstöðu og skapa ákjósanlegar aðstæður til að
sár grói.
SELECT- og ENHANCER-sessur:
ROHO QUADTRO SELECT LOW PROFILE-sessa (QUADTRO SELECT LOW
PROFILE); ROHO QUADTRO SELECT MID PROFILE-sessa (QUADTRO
SELECT MID PROFILE); ROHO QUADTRO SELECT HIGH PROFILE-sessa
(QUADTRO SELECT HIGH PROFILE); ROHO CONTOUR SELECT-sessa
(CONTOUR SELECT); ROHO ENHANCER-sessa (ENHANCER).
Frábending: Klínískar, vísindalegar eða verkfræðilegar rannsóknir gætu hafa sýnt fram á að þessar vörur henti ekki einstaklingum með ósamhverfar mjaðmir þar
sem munurinn er meiri en ___ cm, eins og tilgreint er á vörunni:
2,5 cm – QUADTRO SELECT LOW PROFILE, ENHANCER, CONTOUR SELECT, LOW PROFILE-sessa, eitt hólf
5 cm – QUADTRO SELECT MID PROFILE
7,5 cm – QUADTRO SELECT HIGH PROFILE, HIGH PROFILE Sensor Ready-sessa, HIGH PROFILE-sessa, eitt hólf
Læknir með sérfræðiþekkingu á setu og líkamsstöðu þarf að ákveða hvort varan hentar setuþörfum viðkomandi einstaklings. Ekki ætti að treysta eingöngu á
yfirlýsingu um fyrirhugaða notkun við slíka ákvörðun.
Lækningavörur sem fjallað er um í þessu skjali eru ætlaðar sem hluti af heildarmeðferð sem nær til allra setu- og hreyfihjálpartækja og læknisfræðilegra inngripa.
Læknir með sérfræðiþekkingu á setu og líkamsstöðu þarf að ákveða meðferðina eftir mat á líkamlegum þörfum og heilsufari viðkomandi einstaklings.
Læknir ætti einnig að meta skerðingu á sjón, lestrargetu og vitsmunum með það að markmiði að meta hvort einstaklingurinn þurfi aðstoðarmanneskju eða
tæknilega aðstoð, á borð við leiðbeiningar með stóru letri, til að tryggja rétta notkun vörunnar.
Mikilvægar öryggisupplýsingar
Viðvaranir:
- Ýmsir þættir geta valdið niðurbroti húðar/mjúkvefja og þeir eru mismunandi
á milli einstaklinga. Skoðið húð oft, minnst einu sinni á dag. Roði, marblettir
eða dökk svæði (samanborið við eðlilega húð) geta gefið til kynna
grunnlæga eða djúplæga áverka á líkamsvef og þessu þarf að huga að.
HÆTTIÐ NOTKUN tafarlaust ef vart verður við óeðlilegan lit á húð/mjúkvef.
Ef óeðlilegur litur hverfur ekki 30 mínútum eftir að notkun er hætt skal
tafarlaust leita til læknis.
- EKKI nota þessa vöru ofan á eða með öðrum vörum eða efnum nema slíkt
sé sérstaklega tekið fram í þessari handbók. Slík notkun getur valdið því að
einstaklingurinn sé úr jafnvægi og í fallhættu. Ef sessan virðist óstöðug skal
lesa „Úrræðaleit" eða leita ráða hjá lækni um rétta notkun.
- EKKI setja neitt á milli einstaklingsins og sessunnar. Hlutir, aðrir en
samhæfar hlífar og aukabúnaður sem fjallað er um í kaflanum „Vörulýsing"
í þessari handbók, sem settir eru á milli einstaklingsins og sessunnar, hvort
sem er utan á eða undir hlífinni, draga úr virkni sessunnar.
- Sessan og hlífin VERÐA að vera í sömu stærð og þær VERÐUR að
nota eins og sagt er til um í þessari handbók. EF SVO ER EKKI: 1) kann
ávinningur af notkun sessunnar að verða minni eða enginn, með aukinni
hættu á áverkum á húð eða öðrum mjúkvef, og 2) kann notandinn að verða
óstöðugur og í fallhættu.
- Ef notandi er ófær um að framkvæma það sem fyrir er lagt í þessari
handbók skal leita aðstoðar hjá lækni, söluaðila búnaðarins, dreifingaraðila
eða þjónustudeild.
- Haldið sessunni í ÖRUGGRI FJARLÆGÐ frá miklum hita, opnum eldi eða
heitri ösku. Upplýsingar um prófanir og vottun þessa tækis, þar á meðal
eldfimi, kunna að falla úr gildi þegar það er notað með öðrum vörum eða
efnum. Skoðið upplýsingar um prófanir og vottanir allra annarra vara sem
notaðar eru með þessu tæki.
Allar vörurnar sem taldar eru upp hér að neðan nýta DRY FLOATATION-tækni
og þeim er ætlað að laga sig að sitjanda þess sem situr til að vernda húð/
mjúkvefi og skapa ákjósanlegar aðstæður til að sár grói.
Sessur með eitt hólf:
ROHO LOW PROFILE-sessa, eitt hólf (LOW PROFILE-sessa, eitt hólf);
ROHO HIGH PROFILE-sessa, eitt hólf (HIGH PROFILE-sessa, eitt hólf);
ROHO HIGH PROFILE-sessa, eitt hólf, með Sensor Ready-tækni
(HIGH PROFILE Sensor Ready-sessa).
Sensor Ready-sessan er samhæf Smart Check-loftþrýstigreiningarbúnaði.
Viðvaranir:
- Yfirborð sessunnar lagar sig að umhverfishitastiginu. Sýnið aðgát,
sér í lagi þegar sessan kemst í snertingu við óvarða húð.
- Sýnið aðgát við meðhöndlun sessunnar: Hægt er að klemma fingur á
málmhlutunum á hornunum.
- EKKI nota sessuna sem flotbúnað í vatni (t.d. sem björgunarbúnað).
Hún heldur þér EKKI á floti.
Varúð:
- Haldið sessunni í öruggri fjarlægð frá beittum hlutum.
- Breytingar á hæð yfir sjávarmáli kunna að krefjast breytinga á sessunni.
- Ef sessan hefur verið við hitastig undir 0 °C (32 °F) og virkar óeðlilega stíf
skal leyfa henni að ná stofuhita.
- EKKI nota aðra pumpu, hlíf eða viðgerðarsett en sem er samhæft vörunni.
- EKKI breyta sessunni eða íhlutum hennar. Það kann að valda skemmdum
á vörunni og ógilda ábyrgðina.
- EKKI láta sessuna komast í snertingu við olíublönduð krem eða lanólín.
Þessi efni geta brotið niður efnið í sessunni.
- Langvarandi snerting við óson getur valdið niðurbroti í efnum sessunnar,
haft áhrif á virkni hennar og ógilt ábyrgð á vörunni.
- Leitið reglulega eftir skemmdum á hlífinni og íhlutum og skiptið um ef þörf
er á. Frekari upplýsingar eru í „Úrræðaleit".
- EKKI nota neitt af eftirfarandi sem handfang til að bera eða draga
sessuna; varan getur rifnað: blástursloka, slöngu(r), hraðaftengi (Sensor
Ready-sessa) eða ISOFLO Memory Control (SELECT-sessa). Haldið
undir botn sessunnar eða notið handföngin á hlífinni þegar haldið er
á sessunni.
118