Descargar Imprimir esta página

cozze 90354 Manual De Usuario página 90

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 26
PÍTSUSTEINN
Notaðu milda sápuvatnslausn. Einnig má nota ræstiduft sem ekki er svarfandi á erfiða
bletti og skola svo með vatni.
BESTU PÍTSURNAR ERU BAKAÐAR Í COZZE-PÍTSUOFNI
Til að útkoman verði sem best þarf gott deig og mjög heitan pítsuofn, helst um 400 °C.
Í stuttu máli þarf pítsuofninn að vera MJÖG heitur því það er hinn mikli hiti sem gerir
pítsuna stökka og létta.
Kveiktu á pítsuofninum vel áður en þú ætlar að baka pítsuna.
Það sem á að gera:
Gakktu úr skugga um að staðsetningar pítsuofnsins og pítsusteinsins séu réttar. Tengdu
gaskút við pítsuofninn og stilltu hann á hæsta hitastig. Þrír brennarar eru í Cozze-
pítsuofninum; tveir á hliðum og einn aftast. Gakktu úr skugga um að kveikt sé á þeim
öllum.
Hitamælirinn sýnir hitastigið í ofninum og er aðeins ætlaður til leiðbeiningar.
Það tekur alltaf lengri tíma að hita steininn en sjálfan ofninn og hann verður aðeins
nægilega heitur eftir hitun í minnst 20 mínútur.
Nota má innrauðan Cozze-hitamæli til að finna nákvæmt hitastig steinsins.
Hafðu í huga að vindur og hitastig úti geta haft áhrif á hitunartíma.
Leyfðu pítsuofninum að hitna í um 20 mínútur. Þá er hann tilbúinn til að baka ljúffengar
pítsur.
Þegar pítsan er tilbúin í bakstur skaltu ýta henni gætilega á pítsusteininn inn ofninum
með pítsuspaða. Lækkaðu hitann niður á miðlungshita til að toppur pítsunnar brenni
ekki.
Taktu pítsuna út eftir um 30 sekúndur, snúðu henni um fjórðung og ýttu henni gætilega
inn aftur.
Endurtaktu þetta þar til pítsan er stökk og osturinn hefur bráðnað.
Fjarlægðu pítsuna varlega úr ofninum og settu hana á skurðbretti.
Láttu rjúkandi heita pítsuna kólna örlítið áður en þú skerð hana og deilir henni með
fólkinu þínu.
Stilltu pítsuofninn á hæsta hita og láttu hann bíða í nokkrar mínútur áður en þú bakar
næstu pítsu.
Njóttu pítsuofnsins og verði þér að góðu!
90

Publicidad

loading

Productos relacionados para cozze 90354

Este manual también es adecuado para:

Ag-pz03a-bk-dk