Descargar Imprimir esta página

Eva Solo FireGlobe Manual página 23

Ocultar thumbs Ver también para FireGlobe:

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 15
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar áður en tækið er tekið í notkun
DK
Þessar leiðbeiningar innihalda margar mikilvægar leiðbeiningar og viðvaranir. Ef fólk
umgengst gas eða opinn eld af kæruleysi eða kunnáttuleysi getur það leitt til mikils
DE
tjóns á bæði fólki og eigum og sama máli gegnir um ranga meðferð á grillinu. Þess
vegna er mikilvægt að gefa sér tíma til að lesa allar leiðbeiningarnar áður en þú
tekur það í notkun.
UK
Yfirlit yfir FireGlobe-gasgrillið
1 Steikingarlok með hitamæli
ES
2 Grillgrind
3 Bragðgrind
4 Grillhólf
FR
5 Brennari
6 Stillihnappur
IS
7 Neistahnappur
8 Fitubakki
9 Fótur
IT
Uppsetning
Taktu alla hluta grillsins úr umbúðunum. Settu grillhólfið (4) á stöðugt undirlag og
NL
skrúfaðu því næst fæturna þrjá (9) fasta með handafli. Stilltu grillinu upp. Þrífðu
því næst bragðgrindina (3) og grillgrindina (2) með vatni og sápu til að fjarlægja
allar olíuleifar sem kunna að vera á grindunum eftir matreiðsluna. Komdu því næst
NO
bæði bragðgrindinni og grillgrindinni aftur fyrir á sínum stað á grillinu. Komdu þá
fitubakkanum (8) fyrir undir grillinu, eins og sýnt er á myndinni. Festu stillihnappana
þrjá með því að ýta þeim inn á réttum stöðum (6).
PT
Viðvaranir vegna uppsetningar:
SE
• Grillið má einungis nota utanhúss.
• Grillið þarf að standa þannig að það sé í a.m.k. 60 sm fjarlægð frá næsta
FI
brennanlega efni. Fyrir ofan grillið þarf að vera a.m.k. eins metra fjarlægð að
næsta þakskeggi.
• Hvorki má setja grillið upp né nota það undir brennanlegu þaki eða nálægt því.
• Hugaðu vel að vindáttinni þegar grillið er notað. Láttu hærri endann á grillinu snúa
á móti vindáttinni, til að draga úr áhrifum vindsins.
Að tengja grill við gaskút
FireGlobe-gasgrill er hægt að tengja við gaskút sem rúmar allt að 11 kg.
Reglur og staðlar um gasbúnað eru mismunandi frá einu landi til annars. Grillinu
fylgir gasstillir sem miðast við þá staðla sem gilda í því landi þar sem grillið var
keypt. Ef þú hefur keypt grillið í öðru landi þarftu að ganga úr skugga um að þú
megir nota það í því landi þar sem það er sett upp.
Með gasstillinum fylgja leiðbeiningar sem fylgja ber við uppsetningu. Í
leiðbeiningunum er því einnig lýst hvernig eigi að opna og loka fyrir gasstreymi að
grillinu. Þegar grillið er sett saman þarf að vera alveg lokað fyrir gasið. Það fer eftir
gerðinni hvort rofinn er stilltur á OFF eða alveg skrúfað fyrir hann (réttsælis eða til
hægri).
All manuals and user guides at all-guides.com
Þegar gasstillirinn hefur verið tengdur við slönguna á að tengja hana við tengistútinn
á grillinu (10). Slangan er með ró (11) sem er skrúfuð upp á skrúfganginn á millirörinu
og hert með skrúflykli.
Í hvert sinn sem nota á grillið ætti að kanna hvort það eru rifur, göt eða rispur á
gasslöngunni. Ef slangan er löskuð má alls ekki nota grillið. Ef gasslangan reynist
skemmd skaltu leita til söluaðila næst þér til að kaupa nýja slöngu.
Viðvaranir vegna tengingar við gaskút:
• Tengdu hann ekki í grennd við opinn eld eða annan loga sem getur valdið eldsvoða.
Ef það kviknar í gasi sem lekið hefur út getur það orsakað alvarlegt tjón á fólki og
eigum.
Að prófa hve þétt tenging er
Þegar slangan hefur verið tengd við tengistút gaskútsins öðru megin og gasstillinn
hinum megin er gasstillinum komið fyrir á gaskútnum (12). Gættu þess að
stillihnapparnir þrír á grillinu séu í lóðréttri stöðu (A) og að lokað sé fyrir gasstillinn.
Jafnvel þótt þú hafir vandað þig mjög við samsetninguna og farið eftir öllum
leiðbeiningum verður þú að prófa hvort öll samskeyti séu þétt. Ef þú losar slönguna
við síðara tækifæri frá annaðhvort tengirörinu eða stillingum þarftu ævinlega að
framkvæma eftirfarandi skoðun:
1. Blandaðu vatni og smávegis uppþvottalegi saman í skál.
2. Skrúfaðu frá gasstilli kútsins.
3. Notaðu klút til þess að bleyta samsetningarnar með sápuvatni. Ef loftbólur
myndast umhverfis samskeytin eru þau óþétt en þá þarf að herða þau betur og að
því búnu að endurtaka þéttleikaprófunina.
4. Þurrkaðu sápuleifar af samskeytunum með klúti sem vættur er í hreinu vatni.
Viðvaranir um prófanir á þéttleika:
• Athugaðu ekki þéttleika í grennd við opinn eld eða annan loga sem getur valdið
eldvoða. Ef það kviknar í gasi sem lekið hefur út getur það orsakað alvarlegt tjón á
fólki og eigum.
Meðferð og geymsla á gaskútum
Gaskútar geyma gas undir þrýstingi. Ef gas er geymt undir þrýstingi verður það
fljótandi. Ef þú ert í vafa um hvort gaskútur sé tómur geturðu losað hann og hrist
varlega. Ef ekki heyrist gutlhljóð er hann líklega tómur.
Þegar gaskútur hitnar eykst þrýstingurinn í honum. Gaskútar eru smíðaðir með það
fyrir augum að þola þetta við eðlilegar aðstæður. En verði mjög heitt getur það leitt
til leka úr kútnum. Svo hár hiti getur til dæmis myndast þegar kúturinn er geymdur í
bíl í sterku sólskini eða ef hann er látinn standa við öflugan hitagjafa.
Ef gaskútur er svo heitur að það er óþægilegt að koma við hann verður að koma í veg
fyrir frekari hitun og kæla hann áður en farið er að nota hann.
DK
DE
UK
ES
FR
IS
IT
NL
NO
PT
SE
FI

Publicidad

loading

Productos relacionados para Eva Solo FireGlobe