Descargar Imprimir esta página

3M PELTOR ComTac VIII Headset Manual Del Usuario página 109

Publicidad

Idiomas disponibles
  • MX

Idiomas disponibles

  • MEXICANO, página 57
IS
3M™ PELTOR™ ComTac™ VIII heyrnartól
MT14H418A
**
**Sýnir aðra útgáfu af vörunni
1.
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja þessi heyrnartól sem
samskiptalausnir!
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum heyrnartólum er ætlað að veita vernd gegn hávaða
sem fer yfir hættumörk um leið og notandinn getur hlustað á
umhverfishljóð við lægri hljóðstyrk með aðstoð
umhverfishljóðnema og átt möguleika á talstöðvarsamskiptum
um utanáliggjandi fjarskiptatæki. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi Leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
3M PSD vörur eru eingöngu ætlaðar til notkunar í atvinnuskyni.
3M PELTOR vörur gætu einnig hentað til ákveðinna verkefna
annarra en í atvinnuskyni í Evrópu. Lestu alltaf og farðu eftir
Leiðbeiningum notanda.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Leitaðu til
tæknideildar 3M vegna frekari upplýsinga og með spurningar.
Samskiptaupplýsingar er að finna á öftustu síðu
handbókarinnar.
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða
-taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar notenda
eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kynna þér rétta
notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með bómull í eyrunum
eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða (byssuskot
meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla
að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa hávaðasama
umhverfið umsvifalaust og hafa samband við lækni og/eða
verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
• Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur það
dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt
stillt og mögulegt er að sætta sig við.
• Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi til
að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið
úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
• 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
allar heyrnarhlífar vandlega að sér.
104
Rannsóknir benda til þess að stundum sé hljóðeinangrun
minni en hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna
vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir
sig og færni viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér
viðeigandi reglur og leiðbeiningar á merkimiða um aðlögun
suðhlutfalls/falla til merkis. Séu viðeigandi reglur ekki fyrir
hendi er mælt með því að lækka suðhlutfall/föll til merkis til
að geta betur metið dæmigerða vernd.
• Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir á
ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að deyfa
hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
• EKKI nota heyrnartólin í Eyrnatappaham án rétt upp settra
eyrnatappa undir eyrnaskálunum, hækkaður hljóðstyrkur
gæti náð hættulegu stigi. Séu rétt upp settir eyrnatappar
ekki notaðir í Eyrnatappaham, gæti það leitt til heyrnartaps
eða meiðsla.
• Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
• Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt
annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar
o.s.frv.) sem gæti dregið úr einangrunargildi
eyrnahlífapúðanna og verndargildi hlífanna.
• Ekki beygja eða breyta lögun á höfuðspöng eða hálsspöng
og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
• Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með
tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í leit að
t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir notaðir
reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að minnsta
kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi vernd,
hreinlæti og þægindum.
• Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið
fram yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við. Hljóðstyrkur frá hvaða
tengdum ytri hljóðgjafa sem er, svo sem talstöðvum og
símum, getur farið yfir örugg hávaðamörk svo notandinn
verður að takmarka þau á viðeigandi hátt. Hafðu hljóðstyrk
frá ytri hljóðgjöfum alltaf eins lágt stilltan og mögulegt er við
hverjar aðstæður og takmarkaðu þann tíma sem hættulegur
hljóðstyrkur, skilgreindur af vinnuveitanda og viðeigandi
reglugerðum, getur valdið váhrifum. Ef þér finnst eins og þú
heyrir verr eða þú heyrir són eða suð í eða eftir hávaða eða
ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla að þú glímir við
heyrnarvanda, skaltu umsvifalaust fara í hljóðlátt umhverfi
og hafa samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
• Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.

Publicidad

loading

Este manual también es adecuado para:

Mt14h418a-02 geMt14h418a-02 gn