IS
16. ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUN
SKAÐABÓTASKYLDU
ATHUGASEMD: Eftirfarandi yfirlýsingar eiga ekki við í
Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Neytendur ættu að treysta á
lögvarin réttindi sín.
16.1. ÁBYRGÐ
Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal Safety Division sé
gölluð hvað efnivið eða handbragð varðar og ekki í samræmi
við ótvíræða ábyrgð varðandi sérstakan tilgang, er eina
skuldbinding 3M og úrbót þér til handa sú að 3M velur sjálft
um að gera við, skipta um eða endurgreiða þér kaupverð
viðkomandi hluta eða vöru, að því tilskyldu að þú hafir tilkynnt
í tíma um vandamálið og að staðfest sé að varan hafi verið
geymd, henni viðhaldið og hún notuð í samræmi við skriflegar
leiðbeiningar 3M.
ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST VIÐ OG KEMUR Í
STAÐINN EÐA ALLA YFIRLÝSTA ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ
EÐA SKILYRÐI SEM GEFIN ERU Í SKYN UM
SELJANLEIKA, GAGNSEMI EÐA ÁKVEÐINN TILGANG EÐA
AÐRA ÁBYRGÐ EÐA SKILYRÐI UM GÆÐI EÐA ÁBYRGÐ
SEM SPRETTUR AF SÖLUFERLI, VENJU EÐA NOTKUN Í
STARFI, NEMA HVAÐ VARÐAR TILKALL OG VEGNA
BROTA GEGN EINKALEYFI, NEMA LÖG HEIMILI ÞAÐ
EKKI.
3M ber samkvæmt ábyrgð þessari engar skyldur vegna
neinnar vöru sem ekki skilar ætluðum árangri vegna
ófullnægjandi eða rangrar geymslu, meðferðar eða viðhalds,
þegar ekki er farið eftir leiðbeiningum með vörunni eða þegar
henni er breytt eða hún skemmd af slysni eða vegna
vanrækslu eða rangrar notkunar.
16.2. TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ
3M SKAL AÐ ENGU LEYTI BERA ÁBYRGÐ Á NEINU
BEINU, ÓBEINU, SÉRSTÖKU, TILFALLANDI EÐA
AFLEIDDU TJÓNI EÐA SKEMMDUM (ÞAR MEÐ TALIÐ
HAGNAÐARTAP) SEM SPRETTUR AF VÖRU ÞESSARI,
BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ HVAÐA LAGAKENNINGUM ER BEITT,
NEMA ÞAR SEM ÞAÐ ER LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ.
ÚRRÆÐI EINSKORÐAST VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT
FRÁ.
16.3. ENGAR BREYTINGAR
Ekki skal gera neinar breytingar á tæki þessu nema með
skriflegu samþykki 3M fyrirtækisins. Óheimilar breytingar
gætu ógilt ábyrgð og heimild notanda til þess að nota tækið.
17. FÖRGUN
17.1. FÖRGUN RAFTÆKNIÚRGANGS
Ástralía: Viðskiptavinir skulu snúa sér til yfirvalda á hverjum
stað vegna förgunar raftækniúrgangs við lífsferilsenda.
Nýja-Sjáland: Viðskiptavinir skulu farga raftækniúrgangi að
notkun lokinni í viðeigandi förgunargáma lífsferilsenda.
Tækjum skal fargað í samræmi við lög og reglur á hverjum
stað.
113