Infratec™ Sofia
21 Öryggisupplýsingar (IS)
21.1 Almennt
Vinsamlegast lestu notendahandbókina vandlega
og notaðu tækið eins og ráðlagt er. Fylgdu öllum
öryggisráðstöfunum eins og sýnt er.
Öryggistákn
Skýring á öryggistáknum sem notuð eru í þessari
handbók.
Tákn
Lýsing
Þetta tákn stendur fyrir almenna
hættu.
Þetta tákn stendur fyrir heitt
yfirborð.
Hugtakasafn yfir öryggi
Skýring á öryggishugtökum sem notuð eru í
þessari handbók.
Hugtak
Lýsing
Viðvörun
Viðvörun gefur til kynna
hugsanlegt hættuástand sem, ef
ekki verður hjá því komist, getur
valdið dauða eða alvarlegum
meiðslum á starfsfólki. Lestu
textann sem fylgir viðvöruninni til
þess að þú verðir meðvitaður um
tiltekina hættu og forðist þannig
líkamlegt tjón eða alvarlegar
skemmdir á búnaði.
Aðvörun
Aðvörun gefur til kynna
hugsanlegt hættuástand sem, ef
ekki verður hjá því komist, geti
valdið skemmdum á búnaði eða
óviljandi kerfisbilun. Lestu
textann sem fylgir aðvöruninni til
þess að þú verðir meðvitaður um
tiltekina hættu og forðist
skemmdir á búnaði og kerfisbilun.
21.2 Öryggisráðstafanir
Viðvörun
Vinsamlegast flettu upp í þessari handbók
í öllum þeim tilfellum sem tákn þetta er
notað, til þess að komast að því hvert eðli
þessarar hugsanlegrar hættu er.
Aðvörun
Hólfin fjögur geta auðveldlega dottið frá
SHM og skemmst. Fjarlægðu hólfin eins
og sýnt er áður en þú skiptir um eða
fjarlægir SHM.
Aðvörun
Þegar þú fjarlægir eða skiptir um SHM af
viðhaldsástæðum, þá skaltu gæta þess að
User Manual 6002 5350 / Rev. 6
nota ekki óhóflegt afl þegar boltar eru
losaðir eða hertir sem halda því á sínum
stað. Vegna hornsins sem stjörnulykillinn
(10 mm) er notaður við, getur hann rekist í
eða skemmt hluta af SHM.
Aðvörun
Ekki hreyfa SHM undir nokkrum
kringumstæðum þegar rafmagnið er tengt
við tækið. Það mun skemma mótorinn
sem er tengdur við SHM.
Aðvörun
Ekki taka rafmagnið af Infratec Sofa meðan
verið er að uppfæra hugbúnað tækisins.
Aðvörun
Nokkuð afl þarf til að fjarlægja
lampaeininguna frá tækinu vegna krafna
um varnir gegn ryki og vatni. Gættu að
því að kapalinn sem tengir lampann við
tækið sé ekki of strekktur.
Aðvörun
Sá aðili sem fer með ábyrgð skal vera
meðvitaður um það að ef búnaður er
notaður á annan hátt en tilgreint er af
framleiðanda, þá getur verið að sú vörn
sem búnaður á að veita sé ófullnægjandi.
Aðvörun
Ef ESD hetta fylgir með, þá ætti það að vera
fest á öll þau tengi sem ekki eru notuð.
Aðvörun
Ekki snerta lampaglerið eða endurkastara
og ekki láta neitt hrjúft yfirborð komast í
snertingu við lampaglerið. Örsmá rispa á
glerinu gæti valdið sprengingu á
lampanum síðar.
Aðvörun
Infratec Sofia á annað hvort að tengja við
12 V jafnstraum (EKKI 24 V jafnstraum) í
gegnum Foss P/N 60024388 eða við 100-
240 V riðstraum í gegnum Foss P/N
60024086 straumbreyti (annars er ekki
hægt að fá CE-merkingu fyrir tækið).
Straumbreyti má aðiens tengja við
straumúttak sem er með jarðtengingu.
Heitt yfirborð
Lampinn verður mjög heitur vegna hás
vinnsluhitastigs. Það er einnig hægt að
skemma lampann með fingraförum og
olíukenndum óhreinindum. Hægt er að
nota baðmullarhanska þegar skipt er um
lampa til að koma í veg fyrir skemmdir eða
brunasár.
21:1